Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Í úrskurði úrskurðarnefndar vel-
ferðarmála um velferðarþjónustu
Árnesþings segir að gögn í máli
fatlaðs einstaklings sem ganga þarf
níu kílómetra frá heimili sínu að
næstu biðstöð strætisvagns til að
komast leiðar sinnar beri hvorki
með sér að sveitarfélagið hafi tekið
umsókn kæranda fyrir á teym-
isfundi né að lagt hafi verið sérstakt
mat á aðstæður hennar. Að mati úr-
skurðarnefndarinnar liggur því fyr-
ir að aðstæður kæranda voru ekki
rannsakaðar með fullnægjandi
hætti, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga,
þannig að hægt væri að taka upp-
lýsta ákvörðun um hvort hún ætti
rétt á ferðaþjónustu fatlaðra á
grundvelli 35. gr. laga nr. 59/1992,
sbr. reglur Velferðarþjónustu Ár-
nesþings um ferðaþjónustu fatlaðra.
María Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður Skóla- og velferðar-
þjónustu Árnesþings, segist ekki
geta tjáð sig um einstök mál en hún
geti upplýst að málið sé komið til
nýrrar meðferðar hjá sveitarfé-
laginu.
„Við leitumst ávallt við að veita
fötluðum þjónustu samkvæmt al-
mennum lögum á sviði menntunar
og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í
þessu máli líkt og öðrum er metin
þörf einstaklings en úrskurð-
arnefndin telur að ekki hafi verið
gætt að rannsóknarreglu stjórn-
sýslulaga með nægilegum hætti og
málið er því komið til sveitarfé-
lagsins aftur til efnislegrar með-
ferðar,“ segir María.
Fatlaður einstaklingur
labbar níu km í strætó
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnas
Stjórnsýslua Velferðarþjónustan
gætti ekki að rannsóknarreglu.
Fær ekki ferða-
þjónustu fatlaðra
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Þegar ríflega 70% rekstrarkostnað-
ar liggja í mannahaldi er sömuleiðis
ljóst að ekki verður unnt að mæta
kröfunni öðruvísi en með uppsögn-
um,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans, í
forstjórapistli á
vefsíðu spítalans.
Vekur hann þar
máls á því að fjórir
milljarðar sem
ætlaðir eru til við-
bótar rekstrinum
frá síðasta ári
hrökkvi skammt
og segir hann fjár-
lagafrumvarpið
fela í sér aðhalds-
kröfu upp á 5,3 milljarða króna. Þess-
ir aukalegu fjármunir muni renna að
mestu í launa- og verðlagsbætur.
„Einhverjir kunna að telja að
áhyggjur okkar séu óþarfar eða of
miklar enda málið í vinnslu fjárlaga-
nefndar og ekki frágengið. Það er
hins vegar veruleiki Landspítala að
þurfa að sýna fram á það með trú-
verðugum hætti hvernig þessari að-
haldskröfu verður mætt með skýrri
áætlun til ráðuneytisins og það mun-
um við gera,“ segir Páll í pistlinum.
Hann segir að búið sé að gera áætl-
un hvað varðar forgangsröðun en
ljóst sé að auk uppsagna muni koma
til lokana deilda á spítalanum. Lífs-
bjargandi þjónusta komi fyrst, svo
sem meðhöndlun alvarlegra bráðatil-
fella og lífshættulegra sjúkdóma.
Næst sé forgangsraðað í þágu með-
ferða vegna alvarlegra langvinnra
sjúkdóma. Þá meðferð minna alvar-
legra slysa og sjúkdóma. Næst í þágu
endurhæfingar og forvarna. Þjónusta
við þá sem lokið hafa meðferð á Land-
spítala mun svo reka lestina hvað for-
gangsröðun varðar.
Páll bendir á að McKinsey-skýrsl-
an hafi sýnt fram á að spítalinn sé vel
rekinn en þar hafi verið bent á fjár-
sveltið. „Til að kóróna allt saman
kemur þetta ófullburða fjárlagafrum-
varp nú strax í kjölfar kosninga þar
sem allir flokkar sem nú sitja á Al-
þingi sóru og sárt við lögðu að nú væri
upp runninn tími endurreisnar heil-
brigðiskerfisins.“
Uppsagnir
blasa við LSH
Forstjórinn segir fjóra milljarða hrökkva
skammt 70% liggja í mannahaldi
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Áætlun hefur verið
gerð um forgangsröðun þjónustu.
Páll
Matthíasson
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur falið
stjórn Hafnarborgar og menningar-
og ferðamálanefnd sveitarfélagsins
að skoða mögulega aðkomu bæj-
arins að Sveinssafni til framtíðar.
Þetta er ákvörðun bæjarráðs sem
tekin var nýlega.
Sveinssafn hefur staðið fyrir sýn-
ingarhaldi á verkum Sveins Björns-
sonar, listmálara, í fyrrverandi húsi
listamannsins í Krýsuvík.
Hitaveita ekki lengur möguleg
Forsaga málsins er sú að einn
eigenda Sveinssafns, Erlendur
Sveinsson, skrifaði bæjaryf-
irvöldum í Hafnarfirði bréf þar sem
lýst er meðal annars aðstæðum við
kyndingu hússins í Krýsuvík. Sam-
kvæmt bréfinu er hveravatnshitun
hússins ekki lengur í boði og grípa
þurfi til kostnaðarsamrar raf-
magnshitunar. Er þetta vegna þess
að ekki var lengur talið óhætt að
nota heitt vatn úr borholu sem er
þarna í grenndinni, vegna aldurs
hennar.
Jafnframt er því lýst í bréfinu að
húsið leki rigningarvatni og brýnt
sé að ráð bót á því.
Erindi safnsins er þríþætt. Er
þess farið á leit að bærinn leggi
fram 420 þúsund krónur til að mæta
kyndingarkostnaði undanfarinna
tveggja ára og til að verjast leka.
Einnig er farið fram á að gerður
verði svonefndur menningarsamn-
ingur við safnið sem auka myndi
líkur á að safnið gæti aflað sér við-
urkenningar Safnaráðs og þar með
aðgang að rekstrar- og verk-
efnastyrkjum á þess vegum.
Þá er að síðustu lagt til að bærinn
útvegi úttektarmenn til að meta við-
haldsþörf hússins.
Erlendur Sveinsson sagðist í
samtali við Morgunblaðið bjartsýnn
á að erindi safnsins fengi já-
kvæðar viðtökur hjá bæj-
aryfirvöldum. Um merka
starfsemi væri að ræða
sem brýnt væri að yrði
hjálpað til að leysa þau
vandamál sem að steðja.
Sem fyrr segir var
bréf safnsins tekið fyrir
á fundi bæjarráðs
og bókað um
frekari skoðun
á mögulegri
aðkomu bæj-
arins að safn-
inu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveinshús Fjöldi verka listamannsins prýðir húsið í Krýsuvík en í verkum talið er safnið það þriðja stærsta.
Bæjaryfirvöld skoða
aðkomu að Sveinssafni
Hitaveita ekki lengur möguleg í Krýsuvík og húsið lekur
Náin tengsl eru milli Sveins-
safns og kirkjunnar í Krýsuvík.
Þannig var kirkjugestum um
árabil boðið til kirkjukaffis
eftir messu. Hlé hefur þó verið
á þessu frá því kirkjan brann í
ársbyrjun 2010. Nú hefur hún
verið endurbyggð og er stefnt
að því að koma henni fyrir á
grunni sínum næsta vor.
Ráðgera aðstandendur
safnsins að endurvekja þessa
hefð frá og með vígsluathöfn-
inni en leysa þarf fjárhags-
vanda safnsins svo það getið
orðið. Hugðist safnið jafn-
framt opna nýja sýn-
ingu með verkum
Sveins.
Þá er listamað-
urinn jarðsettur í
kirkjugarðinum
í Krýsuvík.
Tengsl safns
og kirkju
SVEINSHÚS Í KRÝSUVÍK
Erlendur
Sveinsson
Eins og önnur félög sjómanna felldu
vélstjórar kjarasamning við SFS.
Atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í gær
og voru 478 félagsmenn á kjörskrá.
Af þeim tóku 333, eða 69,7%, þátt í
atkvæðagreiðslunni. Já sögðu 109
eða 32,7% þeirra sem greiddu at-
kvæði, en nei sögðu 220, eða 66,1%,
og 4, eða 1,2%, skiluðu auðu.
Verkfall hófst á fiskiskipaflotan-
um klukkan 20 á miðvikudagskvöld
eftir að Sjómannasamband Íslands,
Sjómannafélag Íslands, Verkalýðs-
félag Vestfirðinga og Sjómanna- og
vélstjórafélag Grindavíkur höfðu
fellt kjarasamninga með afgerandi
hætti í annað skipti á árinu.
24. júní í sumar var undirritaður
kjarasamningur SSÍ og SFS, en
hann var felldur í atkvæðagreiðslu
sem lauk 10. ágúst. Verkfall var boð-
að í kjölfarið og stóð það í fimm sól-
arhringa, 10.-15 nóvember. Samn-
ingar voru undirritaðir á ný um
miðjan nóvember en þeir hafa nú
verið felldir í atkvæðagreiðslu. Verk-
fall á flotanum hófst á miðvukudag,
en í næstu viku er reiknað með fundi
deiluaðila hjá ríkissáttasemjara.
Vélstjórar felldu
samning við SFS
Morgunblaðið/Árni Sæberg