Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 13
Tenór Elmar Gilbertsson verður einsöngvari jólatónleikanna í þetta sinn, hann syngur af innlifun.
notalegt að hlusta á jólasöng þeg-
ar húmar að. Svo kíkja þau gjarn-
an í heimsókn til okkar hjóna að
loknum tónleikum.“
Elmar fellur vel að kórnum,
er léttur og skemmtilegur
Vigfús segir að kórinn syngi
ævinlega einhver jólalög sem hann
hafi ekki sungið áður, en sum lög
séu að sjálfsögðu fastur liður, eins
og til dæmis Heims um ból.
„Hátíðleikinn er það sem við
leggjum mikið upp úr og hluti af
honum er að syngja gömlu góðu
jólalögin sem eru hluti af jóla-
minningum fólks. Friðrik kórstjóri
fær svo alltaf tónleikagesti til að
standa upp og syngja með okkur
eitt lag í lok tónleikanna, og núna
er það Nóttin var sú ágæt ein.
Þannig sameinast allt fólkið í
kirkjunni í söng, sem er afar há-
tíðlegt.“
Vigfús segir að hluti af hátíð-
leik jólatónleikanna sé að skarta
góðum einsöngvara, ýmist karli
eða konu.
„Stundum hefur einsöngv-
arinn verið úr röðum kórsins, en
oftar fáum við gestasöngvara og í
fyrra var það hin ástsæla Diddú
en núna er það Elmar Gilbertsson
tenór. Hann hefur stimplað sig
heldur betur inn hjá þjóðinni með
söng sínum í óperunni um Ragn-
heiði biskupsdóttur og í Don Giov-
anni og Evgení Onegín. Elmar
söng með okkur á síðastliðnum
vortónleikum og hann fellur vel að
kórnum, er léttur og skemmti-
legur og honum fylgir góður andi.“
Jólin mega koma
að loknum konsert
Vigfús segir Hallgrímskirkju
vera dásamlega umgjörð utan um
tónleikana sem og pípuorgelið sem
Lenka Mátéóva, orgelleikari
þeirra, fari liprum höndum um.
„Svo höfum við okkur til halds
og trausts fastagestina þrjá, Ás-
geir H. Steingrímsson og Eirík
Örn Pálsson sem leika á trompet,
og Eggert Pálsson sem leikur á
pákur. Allt skapar þetta heild sem
umvefur tónleikagesti og lyftir
þessu upp á æðra plan.“
Vigfús vill ekki taka svo djúpt
í árinni að segja að jólin komi ekki
fyrr en með tónleikum Karlakórs
Reykjavíkur, en hann segir að jól-
in megi vissulega koma að loknum
konsert.
„Við leggjum áherslu á hátíð-
leika og notalegheit, við viljum
ekki nota stór lýsingarorð, það á
ekki við á aðventunni.“
Söngmenn Eins gott að vanda sig á síðustu æfingunni fyrir helgi fernra jólatónleika.
Fernir jólatónleikar Karlakórs
Reykjavíkur fara fram í Hall-
grímskirkju í dag, laugardaginn
17. des., og á morgun, sunnudag
18. des., kl. 17 og kl. 20 báða
dagana.
Í Karlakór Reykjavíkur eru um
80 söngmenn og stjórnandi er
Friðrik S. Kristinsson. Kórinn er
90 ára, var stofnaður 3. jan.
1926 af Sigurði Þórðarsyni tón-
skáldi. Sjö stórnendur hafa
stjórnað kórnum frá upphafi, fjór-
ir aðeins í eitt ár hver, en þrír
stórnendur hafa borið kórinn uppi
í hin 86 árin, þar af núverandi í
hátt í þrjá áratugi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Póstsendum • Næg bílastæði • Selena undirfataverslun
Dásamlegar
Jólagjafir
Opið til kl. 21
alla daga til jóla