Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is 40 ára Stýrðu birtunni heima hjá þér OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Þegar ég var í námi í Winnipeg 1981-2 fann Haraldur Bessasoníslenskuprófessor styrk handa mér til að fara um Nýja Ís-land og fá fólk til að segja frá atvinnuháttum og heimilislífitil að kanna hvernig íslenskum orðaforða hefði vegnað í Vesturheimi. Þarna töluðu mörg ágæta íslensku á vissum sviðum en þegar kom út fyrir fjölskylduaðstæður og sveitaveruleika 19. aldar gripu flest til tökuorða úr ensku. Engin höfðu formlega menntun í ís- lensku og fá höfðu notið bókmennta á „gamla málinu“. Mörg vissu þó að á meðal þeirra hefði verið stórskáld, Stephan G. Stephanson, en töldu erfitt að lesa hann; höfðu jafnvel spurt Íslendinga af Íslandi hvort þeir gætu lesið hann og þeir svarað neitandi. Ég hugsaði með mér að líklega læsu fáir Ís- lendingar góðskáld frá fyrri tíð yfirleitt því að venjulegir grunnskólagengnir Íslend- ingar gætu varla átt í erf- iðleikum með að lesa Steph- an G. ef þeir gæfu sig að því á annað borð. Ég skildi hins vegar að Vesturíslendinga gæti rekið í vörðurnar yfir því sem Káinn orti um hjá skáldbróður sínum: „yrkir myrkt og stundum stirt / Stephan G. í Kringlunne“. Nú er komið á daginn að við lok grunnskóla eiga mörg íslensk skólabörn erfitt með að skilja ritað mál. Fróðlegt væri að vita hvort þeim gengi betur við kvæði Stephans G. en klúðurslegt orðalag á Pisa- prófi. Viðbrögð við niðurstöðum um lesskilning hafa verið allt frá því að efast um hæfi dómarans (sem er alsiða) til þess að efast um hæfi barnanna (sjaldgæfara). Flest hafa orð á því að nú til dags sé lítils metið að vera doktor og menntamaður, léleg kjör kennara þykja til marks um forgangsröðun samfélagsins um leið og sífellt meiri ábyrgð á uppeldi, umönnun og heilsugæslu er hlaðið á skólana sem mega þá kannski ekki vera að því, frekar en foreldrar, að láta börn lesa tor- ræða texta. Það er ærið verkefni að halda utan um hópinn, sjá um að öll fái að njóta sín á eigin forsendum og að engin verði útundan í ein- elti og fari í hundana – eins og þótti ekki tiltökumál fyrir nokkrum áratugum. Alkunna er að málþroski og lesskilningur eflist ekki nema börn noti málið, heyri það talað og þjálfist við að skrifa og lesa ögn erfiðari texta en þau ráða við áreynslulaust. Um slíka heilaþjálfun gildir sama lög- mál og í líkamsrækt (sem er mikils metin). Stundum finnst manni eins og þetta grundvallaratriði hafi gleymst þegar hætt var að velja hæfi- lega erfiða bókmenntatexta af bestu gerð handa grunnskólabörnum og í staðinn farið að láta þau lesa ólistræna, óáhugavekjandi og ein- faldaða en þó lítt stytta umritun Laxdælu, sem fletur söguna út líkt og það sé mest um vert að læra söguþráðinn utanað án þess að örva þá nautn sem felst í lestri góðri bókmennta; að læra að njóta þess hvern- ig eitthvað er sagt en ekki hvað er sagt. Ekki ólíkt því að taka skoppið úr boltanum og senda börnin svo út að leika sér með hann. Dómarinn og böðull hans Tungutak Gísli Sigurðsson Er til frjáls markaður á Íslandi? Hefur hann ein-hvern tíma verið til? Við búum á eyju norður íhöfum, fjarri öðrum mannabyggðum. Við eig-um allt undir innflytjendum sem flytja inn vörur eða framleiðendum sem framleiða vörur. Ef við er- um óánægð með verðlag getum við ekki gert það sama og þeir geta sem búa á Skáni og keyrt yfir brúna til Dan- merkur eða þeir sem búa á Suður-Jótlandi og keyra yfir til Þýzkalands tvisvar í viku til að kaupa í matinn. Við höfum áratuga reynslu af því, að það er nánast engin samkeppni í sölu á benzíni og olíu. Það sama á við um tryggingastarfsemi eða bankastarfsemi. Áratugum saman átti það við um flugsamgöngur bæði innanlands og milli landa, þótt breyting hafi orðið á því á allra síð- ustu árum eftir því sem flugfélögum hefur fjölgað sem fljúga hingað. Í raun hafa neytendur á Íslandi verið í „klóm“ verzl- unar- og þjónustufyrirtækja. Aftur og aftur upplifa neyt- endur það að lækki heimsmarkaðsverð á olíu lækkar það hægt hér en hækkun skilar sér fljótt. Það sama hefur verið að gerast á undanförnum mánuðum og misserum vegna styrkingar á gengi krónunnar. Lækkun sem ætti að skila sér í vöruverði skilar sér hægt. Talsmenn verzlunarinnar hafa alltaf mótmælt staðhæfingum af þessu tagi, telja þær ósanngjarnar og ekki taka tillit til þess að þeir kunni t.d. að liggja með óseld- ar birgðir sem keyptar hafa verið til lands- ins á hærra verði. Það eru röksemdir sem áreiðanlega eiga við að hluta til. Sú staðreynd að „frjáls markaður“ er í raun mjög takmarkaður hér á Íslandi, fyrst og fremst vegna legu landsins, veldur því að málflutningur þeirra sem boða frjálsa samkeppni og markaðslausnir er stundum svolítið holur að innan. Nú er t.d. verið að boða „markaðslausnir“ í sjávarútvegsmálum. En er í raun nokkur frjáls mark- aður með fisk á Íslandi? Það eru örfá fyrirtæki sem ráða þeim markaði – og þá er hann tæpast frjáls. Nú kann þetta hins vegar að breytast. Sl. mið- vikudagsmorgun var haldinn stórmerkilegur fundur á vegum Félags viðskipta- og hagfræðinga, þar sem fram fóru nánast einstæðar umræður um þessi mál, miðað við frásögn mbl.is, netútgáfu Morgunblaðsins, af þeim. Á fundinum hafði framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, Þórarinn Ævarsson, framsögu og talaði á annan veg en nokkur maður hefur áður talað í þau u.þ.b. 65 ár sem greinarhöfundur hefur fylgzt með slíkum umræðum. Þórarinn benti réttilega á smæð íslenzka markaðarins og áhrif þess á verðlag. Nú kann það að vísu að vera að breytast með þeim mikla fjölda ferðamanna sem hingað koma. En það voru ummæli Þórarins Ævarssonar um hlutskipti hins íslenzka neytanda sem eru þess verð að þeim verði veitt athygli. Hann sagði íslenzka kaupmenn nýta sér „fákeppni blygðunarlaust“ og sagði „neytandann lúbarinn“. Í frásögn Auðar Albertsdóttur blaðamanns af fund- inum á mbl.is segir: „Kallaði hann það hneyksli að fatnaður hefði ekki lækkað meira síðan vörugjöld voru lögð niður um síðustu áramót og að bílaumboð hefðu ekki lækkað verð. „Þarna er verið að vinna gegn neytandanum eins og alltaf,“ sagði Þórarinn. „Það er hneyksli að borga 300 krónur fyrir ½ lítra kókflösku í N1, sem kostar 50 krónur í innkaupum.“ Sagði Þórarinn að klókir neytendur væru farnir að „kjósa með fótunum“, þ.e. að verzla meira á netinu og er- lendis, flytja inn bíla sjálfir og nesta sig upp fyrir lang- ferðir, þar sem „benzínstöðvar og greiðasölur níðast á al- menningi“.“ Síðar í ræðu sinni sagði Þórarinn Ævarsson: „Í þessu samhengi held ég að öllum sé hollt að dvelja við þá staðreynd að fólk er ekki fífl. Fólk hugsar og það man og það bregst við.“ Þetta er hressandi hugvekja úr óvæntri átt, sem skyn- samlegt er fyrir alla aðila að taka mark á, bæði kaupmenn og aðra seljendur vöru og þjónustu og líka þá sem fjalla um þessi málefni á öðrum vettvangi, svo sem stjórnmálamenn sem tala frjálslega um markaðslausnir á hinu og þessu þar sem enginn raunverulegur markaður er til. Það eru vísbendingar um að neyt- endur á Íslandi séu að byrja að vakna til vitundar um mátt sinn. Það er svo annar þáttur þessa máls sem er umhugsunarefni. Hvernig stendur á því að tals- menn hins frjálsa markaðar hafa ótrúlega sjaldan tekið upp hanzkann fyrir neytendur þegar augljóst hefur verið að raunveruleg einokun hefur ráðið för og er þá átt við einkarekna einokun. Fyrir u.þ.b. þremur áratugum var Morgunblaðið tölu- vert með hugann við einokun í millilandaflugi á milli Ís- lands og annarra landa og vildi heldur ýta undir smá- vægilega samkeppni, sem þá var gerð tilraun til að halda uppi. Bréfaskipti forráðamanna Flugleiða og ritstjóra blaðsins á þeim tíma segja mikla sögu um ástand hins „frjálsa markaðar“ á Íslandi. Örlög skipafélagsins Bif- rastar, sem um skeið gerði tilraun til að halda uppi sam- keppni á Ameríkuleiðinni við Eimskipafélagið, voru dæmigerð fyrir hlutskipti þeirra sem vildu halda uppi frjálsri samkeppni á Íslandi. Það er hins vegar gott fyrir verzlunina að þessi gagn- rýni skuli koma úr hennar eigin röðum. Það er líklegra til að stuðla að viðhorfsbreytingu innan hennar en gagnrýni sem kemur utan frá. Þá er auðvitað ljóst að þótt við get- um ekki skroppið yfir landamæri eins og Danir og Svíar og fleiri þjóðir hefur netverzlun að hluta til dregið úr því takmarkaða svigrúmi sem íslenzkir neytendur hafa haft. Og hún á eftir að aukast að óbreyttu. Hvar er hinn „frjálsi markaður“ á Íslandi? Ummæli Þórarins Ævarssonar, fram- kvæmdastjóra ÍKEA, hljóta að vekja þjóðarathygli. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Mánudaginn 20. apríl 1942 fluttiGylfi Þ. Gíslason hagfræði- dósent erindi um daginn og veginn í útvarpið. Þar varð hann fyrstur manna til að andmæla fyrirætl- unum um að slíta sambandinu við Dani og stofna lýðveldi án þess samráðs, sem gert hafði verið ráð fyrir í sambandslagasáttmálanum frá 1918. Bjarni Benediktsson lagaprófessor hafði sett fram þá kenningu, að Íslendingum væri heimilt að segja sáttmálanum upp einhliða vegna vanefnda Dana, en þær leiddi af hernámi Danmerkur. Bjarni og aðrir forystumenn Sjálf- stæðisflokksins töldu varasamt að bíða til stríðsloka eftir því að lýsa yfir fullu sjálfstæði, því að óvíst væri, hvernig Danmörk yrði þá sett. Gylfi taldi hins vegar ódrengi- legt að koma á þennan hátt fram við vinaþjóð. Rétt væri að bíða til stríðsloka. Varð hann einn af leið- togum lögskilnaðarhreyfingarinnar svonefndu. Sú leið var valin að fresta sambandsslitunum um tvö ár sem kunnugt er. Menn geta ýmist ræktað vináttu við Dani í orði eða verki. Hvernig tókst það í verki? Þegar sam- bandslagasáttmálinn var gerður 1918, lagði Danastjórn fram tvær milljónir króna til eflingar vináttu Dana og Íslendinga. Helmingur fjárins rann í danskan sjóð og helmingur í Sáttmálasjóð, sem fal- inn var Háskóla Íslands til varð- veislu. Gekk misjafnlega að ávaxta hann. Árið 1947 stofnuðu starfs- menn Háskólans byggingarsam- vinnufélag, og reistu Gylfi Þ. Gísla- son og fleiri prófessorar sér bústaði við Aragötu og Oddagötu. Sátt- málasjóður keypti skuldabréf af byggingarsamvinnufélaginu, sem gat fyrir vikið lánað félögum sínum verulegan hluta byggingarkostn- aðarins, um 46% (samkvæmt at- hugasemd í Alþýðublaðinu 25. sept- ember 1976). Líklega er einbýlishús á þessum stað nú um 100 milljón króna virði, svo að slíkt lán hefur verið um 46 milljónir að núvirði. En í verðbólgunni minnkaði hið óverð- tryggða lán auðvitað að verðgildi: Sáttmálasjóður tapaði, en Gylfi Þ. Gíslason og félagar hans græddu. Prófessorarnir gerðu ekkert ólöglegt eða ósiðlegt, þegar þeir lánuðu sjálfum sér úr Sáttmálasjóði og létu síðan verðbólguna um að minnka lánin (og sjóðinn). Hefðu þeir ekki gert það, þá hefði sjóð- urinn líklega tæmst á einhvern annan hátt við þær aðstæður, sem þá voru á Íslandi (en hann hefur síðan verið endurreistur). En er þetta ekki enn eitt dæmið um grá- glettni sögunnar? Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Danavinátta í orði og verki ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.