Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Ellingsen Bónus Ársæll Höfnin Gra nda garð ur Vald ís Við erum hér Sjáðu þetta! Verið velkomin í nýja og glæsilega verslun okkar á Grandagarði 13. Eyesland leggur metnað sinn í að bjóða viðskiptavinum sínum vandaðar vörur á góðu verði. Heimsþekkt vörumerki og fjölbreytt vöruval. Red-Bull 737-004 umgjörð kr. 24.800,- Bollé black sportgleraugu kr. 22.850,- Tommy Hilfiger 1402 umgjörð kr. 35.485,- Cocoa Mint umgjörð kr. 14.900,- Ray-Ban 1527-3573 barnaumgjörð kr. 19.875,- Centro Style 56342 umgjörð kr. 16.800,- AlþjóðaskáksambandiðFIDE hóf að birta styrk-leikalista sinn byggðan áelo-stigum árið 1970. Á fyrsta listanum var fjöldi skák- manna í kringum 600 talsins og eng- inn þeirra var undir 2200 elo- stigum. Í dag eru nokkur hundruð þúsund manns og konur á elo-lista FIDE. Elo-stigin eru að einhverju leyti einnig notuð sem viðmiðun í ýmsum öðrum keppnisgreinum, t.d. í snóker, amerískum ruðningi og hafnabolta. Það er margt sem elo-stigin mæla ekki; glæsileg afrekaskrá er ekki metin sérstaklega, né heldur hug- kvæmni eða sköpunargáfa. Oft virð- ist mönnum umbunað um of fyrir íhaldssama og leiðinlega tafl- mennsku. Samanburður á skák- mönnum milli tímabila byggður á elo-stigum er líka hæpinn vegna „verðbólgu“ í stigunum. Og þó. Ný- lega birti vefsíðan chess.com nið- urstöðu byggða á tölvuútreikn- ingum á nákvæmni leikja heimsmeistarans Magnúsar Carlsen á síðustu fimm árum og fékk hann einkunnina 98,38%. Fyrir sitt besta fimm ára tímabil var Bobby Fischer með 97,59% nákvæmni og Garrí Kasparov 97,51%. Magnús hefur mest náð 2882 elo- stigum en Garrí Kasparov 2851. Það er of snemmt að efna til uppgjörs en langur ferill Kasparovs er ríkari að innihaldi. Einn galli við stigakerfið hefur löngum verið talinn sá að stigin virðast ekki ganga í takt við fram- farir ungra skákmanna. Við því var brugðist með því að hækka stuðul skákmanna 17 ára og yngri upp í 40 elo-stig á hvern vinning. Á tveim opnum mótum sem lauk um síðustu helgi, annarsvegar í Róm þar sem tefldu bræðurnir Ar- on Thor Mai og Alexander Oliver Mai, og hinsvegar í Benidorm þar sem bræðurnir Óskar Víkingur og Stefán Orri Davíðssynir voru meðal þátttakenda, skilaði frammistaða þessara hækkun upp á 514 elo-stig. Í Róm vann Alexander gull- verðlaun í stigaflokknum 1500-1799 elo, hlaut 5 vinninga af níu og hækk- aði um 120 elo-stig. Eldri bróðir hans, Aron Thor, tefldi við stiga- hærri skákmenn allt mótið og hækkaði um 72 elo-stig. Hann átti glæsilega leikfléttu sem tekið var eftir: Aron Thor – Rinaldo 26. Hb3 Dd2 27. Hg3 Hxc2 28. Rf5! Aron var í tímahraki og sá að jafntefli var að hafa með 28. Hxg7+ Kxg7 29. Rf5+ Kg8 30. Rh6+ Kg7 31. Rf5+ o.s.frv. en þetta er enn sterkara. 28. … Hc6 Hægt var að verjast með 28. … Hc7 þó hvíta staðan sé betri eftir 29. Df6! Rg5! 30. Dxg5 með sterkri sókn. 29. Rh6+! Kh8 30. Rxf7+ Kg8 31. Rg6+ Kh8 32. Dg8+! Hxg8 33. Rf7 mát. Á Benidorm tefldu bræðurnir Óskar Víkingur 11 ára og Stefán Orri 10 ára á tveim mótum, fyrst á opnu móti og síðan á aldursskiptu unglingamóti. Á þessum tveim mót- um hækkaði Óskar Víkingur um 136 elo-stig sem er ekki lítið en yngri bróðirinn Stefán Orri vann flokk keppenda 10 ára og yngri, hlaut þar 5 ½ vinning af sex mögulegum og hækkaði um 186 elo-stig. Þeir fiska sem róa. Í umferð opna mótsins sýndi Ósk- ar Víkingur mikla keppnishörku í vondri stöðu í 5. umferð gegn mun stigahærri andstæðingi: Louis Fernandes – Óskar Vík- ingur Það virðist fokið í flest skjól en Óskar var ekki af baki dottinn: 24. … Hg7 25. Bxg7 Kxg7 26. gxh7 Db2!? 27. h8(D)+ Hxh8 28. Hxh8 Kxh8 29. Df1? Allir hróksleikir hefðu unnið. 29. … Dg7+! 30. Kh1 Rf2+! Nú varð hvítur að gefa hrókinn á a1. Í jöfnu drottningaendatafli átti Óskar Víkingur svo síðasta orðið og vann! Bræðurnir hækkuðu um ríflega 500 elo-stig Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Erla Hlín Hjálmarsdóttir Bræður Óskar Víkingur t.v. og Stefán Orri sig- urvegari í flokki 10 ára og yngri á Benidorm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.