Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Tilboð óskast í fasteignina
Strandgötu 55, Fjarðabyggð
20473 – Strandgata 55, Fjarðabyggð, Eskifirði,
eigandi Íslandspóstur ohf.
Um er að ræða eignarhluta Íslandspósts, samtals
174,0 m² neðri hæð í steinsteyptu húsi. Eignin
samanstendur af afgreiðslusal, kaffistofu, snyrt-
ingu og starfsmannarými. Á þessari stundu liggja
ekki fyrir samþykktir húsfélags vegna viðhalds
hússins en vitað er að fara þarf í utanhússvið-
gerðir og gluggaskipti í sameign. Í haust var
hitaveituinntakið yfirfarið og lagfært og þá var
hluti af gamla kyndikerfinu fjarlægður. Einhverjar
vatnskemmdir urðu fyrir nokkrum árum í kjallara
hússins. Þá eru innréttingar, gólfefni og annað
nánast óbreytt frá byggingu hússins. Eignin selst í
því ástandi sem hún er í, en nánari upplýsingar
um ástand hússins eru ekki til og því eru bjóð-
endur hvattir til að kynna sér ástand þess vel.
Eignin er laus til afhendingar frá og með 1. mars
2017.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Hjördísi
Andrésdóttur í síma 825 1435 á skrifstofutíma.
Nánari upplýsingar fást hjá Ríkiskaupum, Borg-
artúni 7c, 105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10:00
þann 14. febrúar 2017 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði,
Ljósá - varnarvirki
Útboð nr. 20361
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Fjarðabyggðar, kt.
470698-2099, Hafnargötu 2, Reyðarfirði, óskar eftir
tilboðum í framkvæmdir við Ofanflóðavarnir á
Eskifirði, Ljósá - varnarvirki.
Framkvæmdin felst í gerð ofanflóðavarna í og við
farveg Ljósár á Eskifirði.
Farvegur Ljósár verður breikkaður og dýpkaður
og botn og bakkar mótaðir með grjóthleðslum og
steypu. Farvegurinn er 4 m breiður í botninn, 230
m langur og um 3 m djúpur. Hliðar farvegarins eru
ýmist hlaðnar úr grjóti með fláanum 1:0,25 (=4:1) í
einum eða tveimur stöllum eða steyptar.
Steyptir leiðiveggir verða byggðir báðum
megin við efri hluta farvegar. Veggirnir verða
hæstir 3,7 m háir, 30 og 40 m langir og með lang-
halla að jafnaði 38%.
Steyptar brýr verða byggðar á Strandgötu og
Steinholtsvegi og þarf að fjarlægja núverandi
brúarmannvirki á báðum stöðum og koma fyrir
hjáleiðum til að koma umferð framhjá á meðan á
brúarsmíði stendur.
Lagnir þarf að flytja til, bæði til bráðabirgða og
varanlega í tengslum við framkvæmdirnar.
Landmótun og yfirborðsfrágangur felst í
mótun svæða við skurðbakka og leiðivegg og
gerð göngustíga og bílaplans ásamt nýjum
grjóthleðslum og endurgerð á eldri hleðslum.
Svæðið verður jafnað og þakið gróðurlagi og
síðan borið á og sáð grasfræi eða þökulagt.
Efni til verksins fæst úr skeringum á fram-
kvæmdasvæðinu og námum sem vísað er til í
grein 1.0.6. Óvalið fyllingarefni og grjót fæst að
stærstum hluta úr skeringum en sækja þarf það
sem uppá vantar í námur. Safna skal öllu lífrænu
jarðvegsefni saman í upphafi framkvæmdar og
það síðan nýtt við yfirborðsfrágang.
Vettvangsskoðun verður haldin 5. janúar 2017 að
viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
15. júní 2018, sjá einnig áfangadagsetningar í
útboðsgögnum.
Útboðsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is frá og með miðvikudeginum 21.
des. 2016.Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum
þriðjudaginn 17. jan. 2017 kl. 14:00 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á
utbodsvefur.is
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki
13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Tilboð óskast í fasteignina Bjarkar-
braut 4, Laugarvatni
20298 – Bjarkarbraut 4 (Mörk), Laugarvatni.
Um er að ræða fyrrum kennaraíbúð og heimavist
Héraðsskólans á Laugarvatni, samtals 435,2,0 m²,
byggð árið 1940, vel staðsett.
Brunabótamat er kr. 68.750.000,- og fasteignamat
er kr. 34.750.000,- skv. Þjóðskrá Íslands – fast-
eignaskrá.
Á efri hæð er kennaraíbúð og níu herbergi ásamt
baði samtals 216,2 m² og kjallari 219,0 m². Ástand
kjallara er slæmt. Húsið er steinsteypt og hlaðið,
innveggir hlaðnir og loft forsköluð. Rými er yfir
herbergjum og þakið er óeinangrað. Einfalt gler er
í gluggum og gluggar víða óþéttir. Rakaskemmdir
í innveggjum eru sýnilegar. Þá er sig á suðurhlið
hússins. Húsnæðið þarfnast töluverðs viðhalds og
lagfæringa. Aðkoma og staðsetning er mjög góð
og stendur húsið á 1.743 m² leigulóð.
Eignin selst í því ástandi sem hún er og eru
bjóðendur hvattir til að kynna sér ástand hennar
vel. Eignin verður laus til afhendingar frá og með
1. mars 2017.
Húseignin verður til sýnis í samráði viðTómas
Tryggvason í síma 894 0920 á virkum dögum.
Nánari upplýsingar fást hjá Ríkiskaupum, Borg-
artúni 7c, 105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði. Gögnin eru einnig aðgengileg á vef
Ríkiskaupa http://www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00
þann 14. febrúar 2017 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
20347 – UT tölvubúnaður
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að ramma-
samningum ríkisins á hverjum tíma, standa fyrir
þessu útboði vegna kaupa á tölvum, skjám og
aukahlutum.
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli
útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru
gerðir um tiltekna vöru- eða þjónustuflokka í
tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar.
Einstök kaup fara fram eftir að rammasamningur
er kominn á. Umfang kaupa ríkisins í þessum
vöruflokki er ca 1.5 mia.kr. á ári. Gert er ráð fyrir að
nýr rammasamningur taki gildi 01.03.2017.
Nánari upplýsingar í útboðsgögnum á vef
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 31.
janúar 2017 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á
utbodsvefur.is
Tilboð/útboð
Auglýsingasíminn 569 1100