Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
EDDA 6016121815 El.br.k.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
*Nýtt í auglýsingu
20475 Veghefill fyrir Vegagerðina Ríkiskaup
fyrir hönd Vegagerðarinnar, óska eftir tilboði í
nýjan veghefil, 6x4, a.m.k. 18 tonn að stærð, með
a.m.k. 180 Kw (245 hestafla) vél með a.m.k. 1100
Nm togafli. Veghefillinn er ætlaður til vegheflunar
og snjóruðnings og skal hann vera til afhendingar
28 vikum frá töku tilboðs.
Opnun tilboða 20. janúar 2017 kl. 14:00. Nánari
upplýsingar er að finna í útboðsgögnum á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á
utbodsvefur.is
20478 – Meðferð gerenda í heimilis-
ofbeldismálum
Ríkiskaup, fyrir hönd velferðarráðuneytisins, óska
eftir hæfum aðilum, sjálfstætt starfandi sérfræð-
ingum, til þátttöku í auglýstu ferli um meðferð
gerenda í heimilisofbeldismálum. Ekki er um
formlegt útboð að ræða, heldur opinn og gegn-
sæjan feril skv. 15. gr. og 92. gr. laga um opinber
innkaup nr. 120/2016.
Markmið með þjónustunni er að koma í veg fyrir
eða draga úr líkum á frekari ofbeldishegðun með
því að veita einstaklingum aðstoð við að þróa
leiðir til að takast á uppbyggilegan hátt á við
ágreining og erfiðleika í nánum samböndum.
Lögð er áhersla á að þjónustan standi jafnt körlum
sem konum til boða, óháð búsetu.
Áhugasamir vinsamlega nálgist gögn á vefsvæði
verkefnisins hjá Ríkiskaupum:
http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/20478.
Skilafrestur þátttökutilkynninga er 9. janúar 2017
kl. 12:00
KÖNNUN Á ÁFORMUM MARKAÐSAÐILA
VARÐANDI UPPBYGGINGU
FJARSKIPTAINNVIÐA
Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Skorradalshreppi, sem veita á öruggt þráð-
bundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lög-
heimili í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja, sem
staðsett eru í dreifbýli Skorradalshrepps, til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert
er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljós-
leiðarakerfinu gegn gjaldi.
Einnig er möguleiki að hluti þessara fjarskiptainnviða tengist lögheimilum í hluta
Borgarbyggðar, nánar tilekið í dreifbýlinu Andakíl. Þar standi einnig eigendum
frístundahúsa og fyrirtækja í Andakíl, til boða að tengjast ljósleiðaranum.
Auglýst er eftir:
1. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða
annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu í Skorradalshreppi (utan þétt-
býlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.
2. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi
með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess
að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu
uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af upp-
byggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.
3. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Skorradalshreppi sem er
tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum
sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðis-
grundvelli.
Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Skorradalshrepps á netfangið
skorradalur@skorradalur.is fyrir kl. 12:00 þann 31. desember n.k. Í tilkynningunni
skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem
við á.
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir
sendar á netfangið: skorradalur@skorradalur.is
Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Skorradalshrepp né þá sem
sýna verkefninu áhuga.
Oddviti Skorradalshrepps
Skorradalshreppur
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Borgarheiði 1H, Hveragerði, fnr. 220-9878, þingl. eig. Dagmar
Jóhannsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Vestmannaeyja,
miðvikudaginn 21. desember nk. kl. 10:00.
Háeyrarvellir 48, Svf. Árborg, fnr. 220-0209, þingl. eig. Sigurður Krist-
insson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sveitarfélagið Árborg,
miðvikudaginn 21. desember nk. kl. 10:40.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
16. desember 2016
Nauðungarsala
Auglýsing um álagningu
vanrækslugjalds á árinu 2017
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Álagning vanrækslugjalds á eigendur
(umráðamenn) þeirra ökutækja sem skráð eru í
ökutækjaskrá hérlendis og ekki hafa verið færð
til aðalskoðunar frá og með 1. október 2016
hefst 3. janúar 2017.
Álagning gjaldsins byggir á 37. og 38. gr.
reglugerðar nr. 8/2009 um skoðun ökutækja
með síðari breytingum, sbr. 67. gr. umferðarlaga
nr. 50/1987, með síðari breytingum. Miðast
álagning gjaldsins, með þeim undantekningum
sem greinir hér að neðan, við endastaf á
skráningarmerki ökutækis og leggst það á sem
hér segir:
• 3. janúar vegna ökutækja með 0 sem endastaf
og færa átti til skoðunar í október 2016.
• 1. apríl vegna ökutækja með 1 sem endastaf.
• 3. maí vegna ökutækja með 2 sem endastaf.
• 1. júní vegna ökutækja með 3 í endastaf.
• 1. júlí vegna ökutækja með 4 í endastaf.
• 1. ágúst vegna ökutækja með 5 í endastaf.
• 1. september vegna ökutækja með 6 í endastaf.
• 3. október vegna ökutækja með 7 í endastaf.
• 1. nóvember vegna ökutækja með 8 í endastaf.
• 1. desember vegna ökutækja með 9 í endastaf.
• 1. ágúst vegna ökutækja með einkamerki sem
ekki enda á tölustaf.
• 3. október vegna fornbifreiða, húsbifreiða,
bifhjóla, þar með talin fornbifhjól og létt bifhjól,
hjólhýsa (fellihýsa) og tjaldvagna, sbr. 7. gr.
reglugerðar um skoðun ökutækja.
• Vanrækslugjald leggst á vegna þeirra ökutækja
sem ekki hafa verið færð til endurskoðunar skv.
ákvæðum reglugerðar um skoðun ökutækja
þegar liðinn er mánuður frá lokum þess mánaðar
er ökutækið skyldi fært til endurskoðunar
samkvæmt ákvörðun skoðunarmanns.
Tveimur mánuðum eftir álagningu
vanrækslugjalds hefst innheimta þess hafi
ökutækið ekki verið fært til skoðunar eða það
skráð úr umferð og gjaldið greitt innan þess
tíma
Ísafirði, 15. desember 2016.
Sýslumaðurinn í Vestfjörðum
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?
Tilkynningar