Morgunblaðið - 17.12.2016, Page 60
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. H&M kemur í staðinn fyrir ...
2. Steingrímur og Linda keyptu...
3. Stjúpan skráði barnið á Facebook
4. Pör ársins 2016
Olga Vocal Ensemble heldur jóla-
tónleika á Hellu í kvöld, Ólafsfirði á
mánudag, Selfossi á miðvikudag og í
Háteigskirkju í Reykjavík á fimmtu-
dag kl. 20 öll kvöldin. Sungin verða
án undirleiks lög á borð við White
Christmas, Frosty the Snowman og
Jólakötturinn auk Hnetubrjótssyrpu.
Miðar eru seldir á tix.is.
Olga Vocal Ensemble
í jólagír næstu daga
Söngkonan
Kristjana Arn-
grímsdóttir heldur
árlega jólatónleika
sína í Fríkirkjunni í
Reykjavík annað
kvöld, sunnudag,
kl. 20.30. Með
Kristjönu koma
fram börn hennar, Ösp Eldjárn söng-
kona og Örn Eldjárn gítarleikari, auk
Karls Olgeirssonar á píanó, harmoniku
og orgel og Jóns Rafnssonar á kontra-
bassa. Á efnisskránni eru jóla- og að-
ventusöngvar. Miðar seldir á tix.is og
við innganginn.
Kristjana heldur jóla-
tónleika í Reykjavík
Guja Sandholt mezzósópran og
Helena Basilova píanisti halda tón-
leika við kertaljós í Fríkirkjunni í
kvöld kl. 20. Á efnisskránni er íslensk
og þýsk ljóða- og jólatónlist sem
koma ætti gestum í há-
tíðarskap, en m.a.
hljóma verk eftir Bach
og Wagner. Guja og
Helena eru báðar bú-
settar í Amsterdam í
Hollandi þar sem þær
vinna stundum
saman.
Jólatónleikar við
kertaljós í kvöld
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu síðdegis. Hvassast
með suðvesturströndinni, en mun hægari norðaustantil og úrkomulítið til kvölds. Hiti 2 til
7 stig þegar kemur fram á daginn.
Á sunnudag Sunnanátt, 5-13 m/s, víða rigning og milt veður. Snýst í suðvestan 10-18
m/s vestantil síðdegis með skúrum, en éljum um kvöldið.
Þórir Hergeirsson stýrði í gær norska
kvennalandsliðinu í handbolta til sig-
urs, 20:16, gegn Frökkum í erfiðum
undanúrslitaleik á EM í Svíþjóð. Nor-
egur leikur því gegn Hollandi í úr-
slitaleik á morgun en Hollendingar
unnu Dani í hinum undanúrslita-
leiknum. Þetta verður sjöundi úrslita-
leikur Noregs á stórmóti eftir að Þór-
ir varð aðalþjálfari liðsins, 2009. »1
Þórir með Noreg í úr-
slitaleik í sjöunda sinn
„Það tekur ákveðinn tíma að
slípa liðið saman en það sem
við höfum og er að fleyta því
áfram er að kjarninn er svo
sterkur og lætur svona hluti
ekkert hrista of mikið upp í
sér. Baklandið er líka gríð-
arlega gott og við eigum frá-
bæra stuðningsmenn út um
allt land,“ segir Helgi Freyr
Margeirsson, leikmaður
Tindastóls sem er á toppn-
um í körfuboltanum. »3
Sterkur kjarni og
gott bakland
„Staðan var svipuð í fyrra. Þá var allt
í kaldakoli. Menn ósáttir við okkur í
liðinu og við vorum á botninum með
sjö stig en okkur tókst að snúa við
taflinu eftir áramót og ná 12. sæti
þegar upp var staðið,“ segir Arnór
Þór Gunnarsson,
landsliðsmaður í
handknattleik,
um gengi liðs
síns, Berg-
ischer, í Þýska-
landi en það
situr á botn-
inum sem
stendur.
»4
Svipuð staða í fyrra og
við snerum taflinu við
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Minjasafnið á Mánárbakka á Tjörnesi
hefur vakið athygli sem og marg-
vísleg söfnun og útskurður Aðalgeirs
Egilssonar bónda, en því hefur minna
verið haldið á lofti að hann hefur jafn-
framt verið veðurathugunarmaður á
staðnum í rúm 60 ár.
Þegar Aðalgeir var 19 ára hafði
Veðurstofan samband við föður hans
og óskaði eftir því að hann tæki að sér
veðurathugun á Mánárbakka. Áður
höfðu Fiskifélagið og sjómenn frá
Húsavík beðið um að fá veðurstöð á
nesinu. „Svo fór að ég tók þetta að
mér og ég hef sinnt veðurathuguninni
frá upphafi,“ segir Aðalgeir. „Ég
byrjaði 26. júní 1956 og þegar við
byggðum nýbýlið 1961 fylgdi stöðin
með mér þangað.“
Mikil binding
Til að byrja með þurfti Aðalgeir að
taka veðrið þrisvar til fjórum sinnum
á sólarhring og sex sinnum, þegar
mest var. „Það var svo þrisvar sinn-
um á sólarhring síðasta árið, byrjaði
laust fyrir klukkan sex á morgnana til
klukkan sex á daginn, en lengi vel var
þetta til klukkan tólf á kvöldin. Þetta
var orðið viðráðanlegt þegar yfir
lauk.“
Augljóst er að starfinu fylgir mikil
viðvera. „Þetta er óskapleg binding
og það gerir sér enginn grein fyrir því
hvað ég var alltaf fastur við þetta all-
an ársins hring,“ segir Aðalgeir, sem
hætti formlega síðastliðinn þriðjudag.
Samt segist hann ekki hafa hugsað
um að hætta fyrr en nú. Hann segist
aldrei hafa lent í vandræðum og ekki
misst úr athugun. „Maður staulaðist
þetta út hvernig sem viðraði.“
Vinnuumhverfið hefur nær ekkert
breyst í 60 ár. Hitamælarnir hafa alla
tíð verið í eins kössum og lesturinn
farið fram með sama hætti. „En það
var mikil breyting að fá tölvuna og
geta sent upplýsingarnar rafrænt
frekar en að liggja yfir símanum og
koma efninu frá sér símleiðis. Það gat
verið tafsamt.“
Veðurathugunin hefur verið ríkur
partur í lífi Aðalgeirs. Hann segir að
oft hafi verið gaman að fylgjast með
veðrinu svart á hvítu. „Ég hugsaði
um veðrið allan sólarhringinn enda
þurfti ég að vita hvernig veðrið var á
milli athugana. Oft var hringt og
spurt um veðrið, ekki síst á árum áð-
ur.“
Veðurathugunin er nú sjálfvirk.
Aðalgeir segir það mikil viðbrigði að
vera hættur, „en á maður ekki bara
að gleðjast yfir því?“ spyr hann.
Hann segist ekki kvíða verkefna-
skorti. Minjasafnið taki sinn tíma sem
og söfnunin, ekki síst kortasöfnunin.
„Svo er ég í útskurði og öllum fjand-
anum,“ segir Aðalgeir, sem hefur auk
þess sinnt bústörfum alla tíð.
Veðurathugunarmaður í 60 ár
Aðalgeir á Mán-
árbakka snýr sér
að áhugamálunum
Morgunblaðið/Ófeigur
Viðurkenning Árni Snorrason veðurstofustjóri afhendir Aðalgeir Egilssyni gjöf í tilefni tímamótanna í gær.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Útskurður Aðalgeir Egilsson hjá Mánadís sem hann skar út í rekaviðartré.