SÍBS fréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 4
Happdrætti
SÍBS
fimmtíu ára
Um þessar mundir eru liðin fímm-
tíu ár frá stofnun happdrættis
✓
SIBS, en allan þann tíma hefur
það verið aðal máttarstoðin undir
s /
ölluin framkvæmdum SIBS. I
eftirfarandi greinarkorni verður
reynt að segja í stuttu máli frá
aðdraganda að stofnun happ-
drættisins og nokkrum megin-
dráttum í rekstri þess.
Samband íslenskra berklasjúklinga - SIBS - var
stofnað á Vífilsstöðum 24. október 1938. Á öllum
berklahælum landsins voru stofnuð félög sem allur
þorri berklasjúklinga á hælunum gekk í. Auk þess
voru stofnuð sambandsfélög í flestum stærstu
kaupstöðum landsins, en í þau gengu útskrifaðir
berklasjúklingar og styrktarfélagar.
Þegar á fyrstu árum sínum setti SIBS sér það
takmark að vinna að stofnun vinnuheimilis fyrir
berklasjúklinga sem voru að útskrifast af hælun-
um, því að algengt var að þessir sjúklingar veiktust
á ný, sérstaklega ef þeir fóru að vinna erfið störf
nýkomnir af hælunum, þeir þörfnuðust endur-
hæfingar. Stjórn SÍBS ákvað því snennna á ferli
sínum að einbeita öllum kröftum samtakanna að
byggingu vinnuheimilis. Strax var hafist handa við
fjársafnanir og ljóst að slíkar stórframkvæmdir
myndu kosta mikið fé. Farnar vona ýmsar fjáröfl-
unarleiðir, sem hér verða ekki raktar, og lands-
menn reyndust feikilega örlátir við þessa stórhuga
bjartsýnismenn.
Keypt var land í Mosfellssveit undir vinnuheim-
ilið, árið 1944 hófust framkvæmdir og hinn 1.
febrúar 1945 tók heimilið til starfa.
Þær fjáraflanir sem efnt hafði verið til
undanfarin ár höfðu fært SÍBS fimm milljónir
króna snemma árs 1949. Þeir peningar fóru í
svonefndan vinnuheimilissjóð. Mönnum varð
fljótlega ljóst að samtökin yrðu að koma sér upp
varanlegum tekjustofni.
Hugmyndarinnar um happdrætti SIBS er fyrst
getið í fundargerð stjómar 26. mars 1948, en
Olafur Jóhannesson
vafalaust hafa menn verið búnir að ræða málið sín
á milli áður en það bar á góma á stjómarfundi. Á
fundum stjórnar næstu mánuði var iðulega rætt um
hugmyndina, og á fundi 1. ágúst 1948 spyr einn
stjómarmanna hvort ekki myndi fást leyfi fyrir
peningahappdrætti, en fær það svar að það fáist
ekki meðan Happdrætti Háskóla Islands væri
starfandi.
Hinn 30. nóvember 1948 skýrir Þórður
Benediktsson, stjórnarmaður og erindreki SIBS,
svo frá að tilbúið væri lagafrumvarp um leyfi til
rekstrar vömhappdrættis og sagði að Gísli Jónsson
alþingismaður myndi leggja frumvarpið fyrir
Alþingi.
Á stjómatfundi 18. janúar 1949 er rætt um
málið og starfsmaður SIBS, Guðmundur Löve,
beðinn að segja frá undirbúningi. Hann skýrði svo
frá að hann hefði átt samtal við Gísla Jónsson sem
væri í óða önn að búa sig undir flutning frum-
varpsins og bæði um ýmsar upplýsingar frá SIBS
og þyrfti að fá þær fyrir 20. janúar. Á stjórnar-
fundinum kom fram að Þórður Benediktsson hafði
gert uppkast að frumvarpi um vömhappdrætti, en
4 • SÍBS-fréttir