SÍBS fréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 12
Renault árgerð 1946, einn af happdrœttisbílum SIBS árið 1947, á Byggðasajhinu að Görðum á Akranesi
(sjá nœstu síðu „20 ólöglegar bifreiðar").
Þá voru bflar og flug-
vél meðal vinninga
Brot úr happdrœttissösu SIBS
Samband íslenskra berklasjúklinga hefur sem kunnugt er unnið
ötullega að uppbyggingu vinnuheimilisins að Reykjalundi um
áratuga skeið. Sú uppbygging og starfsemi sem þar er hefur ekki
einungis vakið athygli hér á landi, heldur víða um heim. Til að
afla fjár til uppbyggingarinnar hafa samtökin rekið vöru-
happdrætti í hálfa öld.
Fyrir daga þess happdrættis var
aflað fjár með ýmsum hætti. A
landsfundi SÍBS árið 1945 var
ákveðið að efna til happdrættis
og var aðalvinningurinn tlugvél,
sem til þess var keypt frá
Amerrku og kostaði hingað
komin 70 þús. krónur. Hún gat
lent bæði á sjó og landi og tók
þrjá farþega. Vinningar voru alls
12 • SÍBS-fréttir
20 og voru auk flugvélarinnar
bátur, farmiðar og álitlegar pen-
ingaupphæðir. Það seldust 75
þúsund miðar sem kostuðu 10
kr. og var hagnaðurinn 623 þús.
krónur. Þegar dregið var í happ-
drættinu í ársbyrjun 1946 kom
flugvélin uppá miða, sem ekki
hafði selst og var því áfram í
eigu SÍBS.
Flugvélin aftur sem
vinningur
Á þessum árum var SÍBS með
merkjasölu á Berklavamardag-
inn og um haustið 1946 fékkst
leyfi til að númera merkin og
hafa flugvélina á ný sem vinn-
ing. Aðeins var dregið úr seld-
um merkjum. Merkjasalan gekk
vel og þegar dregið var úr
merkjunum 1. febr. 1947 kom í
ljós að tvö börn höfðu unnið
flugvélina. 19. febrúar sama ár
keypti flugfélagið Vængir flug-
vélina og hlaut hún skráningar-
númerið TF-VIA.