SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 4

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 4
S-í-B-SLhJ a ö i ð *o Baráttan fyrir bættum kjörum öryrkja haröuar Hækkum örorkulífeyrlnn og drögum úr tekjutengingum -segir Garðar Sverrisson, nýr formaður ÖBÍ, sem talar tæpitungulaust um málefni öryrkja ö^kjabandalagi og niöurskuröi á tekjum ef þeir tengjast fólki sem hefur venjulegar tekjur. Um þetta þarf aö tala tæpitungulaust að mati Garðars og fleiri. Ég biö Garðar fyrst að segja mér frá starfi sínu frá degi til dags. IfiMPte Garðar Sverr/sson stendur á fertugu. Hann kom inn í stjórn Öryrkjabandalags íslands árið 1997 og hefur ásamt fleirum lagt drög að harðari stefnu gagnvart stjórnvöldum. Sam- hliða námi stundaði Garðar blaðamennsku frá unga aldri og framundir þrítugt, en þá lauk hann prófi í stjórnmála- og viðskiptafræðum. Síðan hélt hann til frekara náms í Banda- ríkjunum, en nú á sviði bókmennta og ritlistar. Hann lauk mastersprófi í þessum greinum frá University of Arizona. Margir þekkja Garðar af hinni snjöllu bók Býr íslendingur hér, sem byggð er á frásögn Leifs Muller, þekkts kaupmanns og iðnrekanda í Reykjavík. Þá ritaði Garðar ævisögu Kristjáns Jóhannssonar og skáldsöguna Veislustjórinn. Garðar er kvæntur Kristínu Þórarinsdóttur, skurðhjúkrunarfræðingi, og eiga þau 9 ára dóttur. Fyrir á Garðar son á 16. aldursári. Garðar er MS sjúklingur en er fulltrúi Daufblindrafélagsins í stjórn ÖBÍ þannig að hann kemur úr röðum félagsmanna í þetta mikilsverða starf. Garðar Sverrisson, nýkjörinn formaður ÖBÍ, hefur vakið athygli fyrir bein- skeyttan og á stundum harðan mál- flutning fyrir hönd félagsmanna innan raða ÖBÍ. Honum finnst, eins og Qölmörgum öörum, að ríkisstjórnin sé alls ekki að rétta öryrkjum hjálparhönd, heldur þvert á móti að leggja stein í götu þeirra með afar hæpnum skattareglum - Það fylgir formennsku í ÖBÍ margskonar erill. Ég tók við formennskunni af Hauki Þórðarsyni, formanni SIBS, í nóvember sl. Hingað leita margir einstaklingar með vand- kvæði sín og margir vilja ræða við mig persónulega. Félagsmenn geta fengið lögfræðiaðstoö einu sinni í viku. Margir vita lítið um réttindi sín og við reynum að leysa mál allra sem til okkar leita. Það mætti bæta mikið þekkingu fagfólks á réttindum öryrkja og þar þurfum við aö gera betur. Starfsfólkið hér hefur heyrt margar reynslusögur sem eru ótrúlegar og mikill skóli fyrir okkur sem herðir okkur í baráttunni. Ég tók líka að mér formennsku öryrkjabandalaga á Norður- löndum þannig að það er í mörg horn að líta. En við erum ákveðin í að herða róðurinn og virkja almenningsálitið betur í baráttunni fyrir bættum hag öryrkja. Um 37o manns bíða leiguhúsnæðis - Hvad eruð þið aö gera vel hjá ÖBÍ og hvað miður? - Frá byrjun hefur bandlagið verið að bregð- ast við gífurlegum vanda sem var og er ennþá á leigumarkaðinum. Mestur hluti tekna okkar hefur farið í að byggja leiguíbúðir, sem við leigjum út mun ódýrar en aðrir. Það ætti að vera hlutverk hins opinbera að byggja og leigja út íbúðir fyrir fatlaða og aðra sem minna mega sín. Segja má að almenn starfsemi okkar hafi liðið fyrir það hve mikla áherslu við höfum orðið að leggja á íbúða- byggingar en fjöldi leiguibúða í okkar eigu er í dag á sjötta hundraðið. Skrifstofan hefur ætíð verið undirmönnuð miðað við umfang verkefna. Nú eru á biðlista eftir húsnæði hjá okkur um 37o manns, en hjá Reykjavíkurborg bíða um 4oo manns og er lítið um skörun í þessum hópum. 4

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.