SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 24

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 24
S í BS hlaðið. Þiálfun lungnasjúklinga (- til hvers? E Þessi greinargóöa lýsing á vanda lungna- sjúklinga og endurhœfingarþjónustunni sem i boði er í HL stöðinni í Hátúni 14 í Reykjavík kemur frá starfsliðinu þar. Undanfarin ár hafa rannsóknir á þjálfun lungnasjúklinga sýnt að þjálfunin læknar ekki lungnasjúkdómana. Til hvers er þá að vera að puða? Flestir lungnasjúklingar kannast við þann vítahring sem hefst þegar hreyfing fer að valda mæöi. Mæði er óþægileg tilfinning en ólíkt t.d. hjartaverk er hún ekki merki um að vefír liggi undir skemmdum. Flestir lungnasjúklingar taka þá stefnu að minnka álag og þar með mæðina. Með því minnkar þrek og því þarf enn að minnka álag til að vekja mæðina. Hvað er til ráða? Flestir lungnasjúklingar sem hafa prófað reglubundna þjálfun vita að árangurinn lætur ekki á sér standa. Fyrst lungun læknast ekki, hvað er það þá sem gerist? Við þjálfun verða ýmsar breytingar í vöðvum. Blóðflæði eykst og vöðvaþræðirnir nýta betur það súrefni sem berst til þeirra. Þannig gerir meiri vinna minni kröfur til lungnanna og þannig minnkar mæðin. Lungnasjúklingar finna því gjarnan fyrir því að auðveldara er að ráða við dagleg störf, félagslíf og aðrar kröfur sem gerðar eru til þeirra. Þannig getur þjálfun tvisvar til þrisvar sinnum í viku eina klukkustund í senn skilað sér í því að allt lífið verður léttara. Það er auövelt að finna ástæð- ur fýrir því að drífa sig ekki af stað. Peninga- og tímaskortur er algeng ástæða, rétti útbún- aðurinn er ekki til og svo mætti lengi telja. A FIL stöðinni í Reykjavík hefur síðastliðin tiu ár verið starfrækt endurhæfing fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Á HL stöðinni starfa læknar og sjúkraþjálfarar. Þjálfunin hefst á því að gert er þolpróf og læknis- skoðun til að meta líkamlegt ástand og afkastagetu hvers og eins. í þolprófinu er fylgst meö því hvort blóðþrýstingssvörun við álagi sé eðlileg, hvort hjartasjúkdómar séu til staðar og hvort einstaklingurinn hafi þróað með sér lungnasjúkdóm. Súrefnismettun blóðs er til að meta þörf fyrir súrefnisgjöf. Út frá þolprófinu er einstaklingunum raðað í hópa eftir afkastagetu. Þannig á að tryggja að allir fái hæfilegt álag. Til að þjálfunin verði skemmtileg býður HL stöðin upp á fjölbreytta þjálfun sem reynir bæði á úthald, styrk, samhæfingu, jafnvægi - og siðast en ekki síst góðan félagsskap. Gott aðgengi er að íþróttahúsi fatlaðra þar sem við leigjum aðstöðu. Fyrir þá sem þurfa súrefnisgjöf í áreynslu höfum við súrefniskúta og súrefnisgleraugu. Á HL stöðinni er læknir alltaf til staðar. Meðal annarra starfar Gunnar Guömundsson lungnasérfræðingur hjá okkur. Nánari upplýsingar fást á HL stöðinni í síma 561 8002 eftir klukkan 16:00.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.