SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 13

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 13
BJELbJaðið Endurhæfing fólks meö lungnasjukdóma íans b Beck Um endurhæfingu Endurhæfíng er í tveimur orðum sagt aðlögun og forvarnir. Aðlögun að lífi með skerta getu vegna sjúkdóma eða slysa og varnir gegn því að sjúk- dómar versni og getunni hraki. Endurhæfingin spyr því öðru fremur að færni fólks og lífsgæðum, en aðrir hlutar heilbrigðisþjónustunnar leggja áherslu á greiningu og meðferð við þeim ákveðnu og afmörkuðu sjúk- dómum, sem kunna að finnast. Á því stigi eru sjúklingar þiggjendur, en verða gerendur þegar til endurhæfmgar kemur, því allt veltur á vilja einstaklingsins til að nýta þjálfun og fræðslu eða vera reiðubúinn að taka upp hollari lífshætti. Vísa má til mannsævinnar til að skýra betur aðferðir endurhæfingar. Saga hvers nranns er einstök, en á þó margt sameiginlegt með sögu ijölda annarra, stundum án þess að maður óski þess sjálfur. Sá sem veikist af lungna- sjúkdómi á þau örlög sameiginleg með Qölda annarra, reyndar miklu fleiri en væri, hefðu tóbaksreykingar ekki illu heilli hertekið samfélagið. Til þess að snúa viö óheillaþróun versnandi ástands og kenna einhverjum lungnaveikum leiðir til að lifa með skemmd lungu þarf að skilja hvernig saga þessa einstaklings hefur mótast af sjúkdómnum, aðstæðum og upplagi, en jafnframt þarf að nýta reynslu hinna ófáu sem staðið hafa í sömu sporum og þekkinguna sem fengist hefur með rannsóknum á hópum fólks með sama sjúkdóm. Með öðrum orðum merkir þetta að endurhæfing beitir almennum aðferðum en verður þó að vera löguð að hverjum einstaklingi. Annað megineinkenni endurhæfingar er áherslan á lífsgæði og færni. Segja má að góð endurhæfing leggi metnað í að finna heil- brigðina sem bætt gæti lífið eins og læknir vill finna sjúkdóminn sem ógnar lífinu, en þarna er þó mikilvægur munur á og bætir hvort annað upp þegar vel tekst til. Aðferð endurhæfingarinnar tengist auðvitaö því markmiði að auka sjálfshjálp og sjálfstraust, eins og bætt færni gerir einnig. Til aö ná slíkum markmiðum verður að horfa á einstaklinginn af víðum sjónarhóli, huga jafnt að líkamlegri og andlegri heilsu sem aðstæðum og félagslegum stuðningi. Þetta er oft kallað að hafa heildræna sýn á sjúkling- inn, en má eins kalla að hlustað sé á sögu hans. Vítahringur mæöi og hreyfingarleysis Margir lungnasjúklingar eiga sameiginlega sögu um vitahring þrekleysis, hreyfingar- leysis, vanmáttarkenndar og einangrunar. Fyrst líða oft mörg ár hægfara versnunar með mæði og vaxandi þrekleysi áður en nokkuð er aðhafst. Það er erfitt að horfast í augu við þann dóm að fíknin i sígarettuna sé skynseminni máttugri og líkaminn sé orðinn varanlega skaddaður. Fólk kennir því ýmsu um: aldri, leti og lélegu formi. Fái mánuðirnir og árin að líða svona áfram dregur máttinn úr fólki smátt og smátt; það veigrar sér við ýmsu sem áður var létt og skortir drift til að hafa sig af stað, jafnvel til þess sem því áður þótti skemmtilegt. Mæðin og þrekleysið kallar á minni hreyfingu, bíllinn er notaður í tíma og ótíma og kyrrsetustundunum íjölgar. Skylduverkin verða erfiðari og taka lengri tíma, sem kallar á sektarkennd og kvíða, en lengi er lagt kapp á að gera erfiðleikana ekki sýnilega fýrir öðrum. Með minni hreyfingu minnkar þol enn frekar, því vöðvarnir rýrna, A/largir lungnasjúklingar eiga sameiginlega sögu um vítahring þrekleysis, hreyfingarleysis, vanmáttarkenndar og einangrunar. afvenjast notkun og nýta enn verr þá orku sem þegar er orðin af skornum skammti, sem aftur kallar á meira þrekleysi og mæði. Einangrun, depurð og kvíði gera ástandið ennþá verra og vandinn bítur í skottið á sér og að endingu rekur í strand, en vítahringur- inn verður ekki rofinn nema með algerum umskiptum. Því miður fá eyðileggjandi lifnaðarhættir iðulega að ganga á heilsu manna árum saman áður en snúið er við og þá er of seint að bjarga því sem tapast hefur á meðan. Lungnaendurhæfing Algengt verkefni í lungnaendurhæfingu er að styðja lungnasjúklinga til að snúa við slíkum Lunqnasiúkdómar

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.