SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 26

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 26
SÍRSjilaðíð Af nveriu lungnaendurnæfirig? Steinunn Ólafsdóttir hjúkrunar- deildarstjóri og Jónína Sigur- geirsdóttir hjúkrunarfrœðingur á Lungnaendurhcefingardeild Endurhcefingarmiðstödvarinnar á Reykjalundi lýsa hér hvernig deildin starfar. Langvinn lungnateppa algeng Steinunn Ólafsdóttir Jónína Sigurgeirsdóttir Lungnaendurhæfing hefur verið snar þáttur í starfsemi Reykjalundar síðan 1983. Skipulagning og þróun var undir stjórn Björns Magnússonar lungnasérfræð- ings frarn til ársins 1997, en siðan þá hefur Hans Jakob Beck lyflæknir verið yfirlæknir deildarinnar. Flestir sem koma inn til endurhæf- ingar á lungnasviði eru með lang- vinna lungnateppu, þ.e. lungnaþembu og - eða langvinna berkjubólgu, en margir aðrir kvillar fylgja í kjölfarið, svo sem vannæring eða offita, kvíöi, þunglyndi og fleira. Stór hluti þeirra sem koma til endurhæfingar vegna lungnasjúkdóma reykir eða hefur einhverntíma reykt. Lungnadeildin nefnist E deild og er staðsett á 3. hæð í húsinu. Á deildinni eru 22 sjúkra- rúm, auk þriggja rúma í einu húsi við Efri- braut 1 (í daglegu tali nefnt E:l). Samtals eru þetta því 25 pláss. Algengasti dvalartími er 6 vikur. Það svarar til um 4ra útskrifta og inn- skrifta um hverja helgi, en þá fara sjúklinga- skipti fram og það er aldrei autt rúm. Hvað er hægt að gera? En af hverju lungnaendurhæfing? Jú, lang- vinn lungnateppa (LLT) er algengasti lungna- sjúkdómurinn i vestrænum löndum og helsta viðfangsefni lungnaendurhæfíngar. Um það bil 15% reykingamanna fá LLT. Fjöldi þessara sjúklinga á íslandi skiptir því þúsundum. Dánartíðni vegna LLT fer hratt vaxandi hérlendis eins og í öðrum vestrænum löndum. Með lungnaendurhæfíngu má ná fram minnkun á öndunarfæraeinkennum, auka sjálfsstyrk, athafnafærni og úthald og draga úr kviða og þunglyndi. Auk þess leiðir lungnaendurhæfíng af sér bætta almenna líðan, einstaklingurinn þarf sjaldnar að fara á sjúkrahús og síðast en ekki síst er hægt að lengja líf ákveðinna sjúklinga með langvinnri súrefnismeðferð og með þvi að hjálpa þeim að hætta að reykja. Inntökuskilyrði í lungnaendurhæfíngu eru: • Sjúkdómseinkenni vegna LLT eða annarra langvinnra sjúkdóma í öndunarfærum. • Einhver göngugeta er æskileg. • Sjúklingur þarf að geta setið i a.m.k. eina klukkustund. • Sjúklingur þarf að skilja aðra og geta tjáð sig. • Áhugi eða hvöt til að ná árangri er nauðsynlegur. • Sjúklingur sé hættur að reykja eða hætti við komu með góðum vilja og ásetningi. Reykingavarnir Mikil áhersla er lögö á reykingastopp, því viðurkennt er af lungnasérfræðingum nær og fjær að til þess að ná betri heilsu er nauðsyn- legt að opna augun fyrir skaðlegum áhrifum reykinga á lungnastarfsemi. Ekkert eitt atriði gerir eins mikið gagn til aö minnka einkenni LLT og að hætta reykingum. Með það í huga hefur reykingastopp verið skilyrði fyrir endurhæfíngu á lungnadeild Reykjalundar síðastliðin 6 ár. Margreynt er að ef fólk reykir áfram er endurhæfíngin unnin fyrir gýg. Margir koma gagngert til að fá hjálp til að hætta reykingum og lungnalæknar vísa til okkar sjúklingum meðal annars með þetta að markmiði. Fræðsla um tengsl reykinga og LLT hefst þegar við innköllun sjúklings og þá kemur fram að plássið stendur aðeins þeim til boða sem hætta aö reykja; en jafnframt er reykingavarnanámskeið í boði sem hluti af meðferðaráætlun. Reykingavarnir eru í formi vikulegra fræðslu- funda, þar sem hjúkrunarfræðingur eða sjúkraliöi heldur fyrst erindi en stýrir síðan umræðum, þar sem fólkið fær tækifæri til að tjá sig. Myndast oft góður andi í þessum hópi. Rannsókn á árangri reykingavarna á Reykjalundi staðfesti að af þeim sem hættu að reykja hér árið 1995-96 voru 60% þátt- takenda enn reyklausir að ári liðnu og stefnir í svipaöan árangur áfram. Oftast er mælt með að fólkið noti nikótínlyf til að byrja með, þar sem rannsóknir hafa sýnt mun varanlegri árangur reykingavarna ef þau eru notuð. Það er tilfinning þeirra sem vinna viö lungnaendurhæfingu á Reykjalundi að sjúklingahópurinn sem kemur inn til endur-

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.