SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 32

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 32
SÍB S h 1 a ð i ð / cn Jórunri Olafsdóttir c lVlinning Óöum fækkar gömlu hlekkjunum sem upphaflega tengdu berklasjúklinga traustum böndum. Merk kona er látin, Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastööum í Fnjóskadai. Kynni okkar hófust þegar viö sátum þing SÍBS áriö 1960. Hún sem fulltrúi Sjálfsvarnar, deildar SÍBS á Kristnesi, en ég sem fulltrúi frá Berklavörn á Akureyri. Sameiginlegur áhugi okkar fyrir málefnum SÍBS kom í veg fyrir feimni mína í hennar garð. Ég var aö vísu enginn unglingur og hafði svo margt heyrt um þessa gáfuðu konu. Eftir aö hafa fundið hið hlýja handtak og viðmót Jórunnar og numið orð hennar fann ég að hér var vini að mæta. Jórunn var stórgreind kona, skáld gott, hnittinn hagyrðingur og hafði frábært vald á íslenskri tungu og menningu. Allt sem hún tók að sér vann hún af stakri trúmennsku og natni. Heiðarleiki var hennar aðalsmerki. Mér duldist ekki fremur en öðrum sem eitthvað umgengust Jórunni að þar fór engin miðlungs manneskja. Þvi bar glöggt vitni svipmót allt og orðafar, heill hugur og skýrt mótuð manngerö hennar og persónuleiki, skörp hugsun og viðkvæm lund. Hún var mikill vinur vina sinna, trúuð kona og ræddum við oft um trúmál og huglækningar, og sannfærð var hún um líf að loknu þessu. Að eiga Jórunni sem vin voru forréttindi. Lífssaga þessarar vinkonu minnar ætti betra skilið en þessar fáu og fátæklegu linur. Þær eru aðeins kveöja, borin fram af þakklæti fýrir kynni og trausta vináttu öll árin, fyrir bréfin, ljóðin og gjafir til min og ijölskyldu minnar. Jórunn Ólafsdóttir var fædd á Sörlastöðum i Fnjóskadal 8. maí 1920. Hún lést á Elliheimilinu Grund 1. febrúar sl. Útför hennar fór fram á Illugastöðum í Fnjóskadal 13. þ.m. að hennar ósk. Blessuð sé minning Jórunnar Ólafsdóttur frá Sörlastöðum. Og þegar veitist lausn frá iífsins þraut Hve Ijúft mun þá að öðlast hjá þér fró Að halla þreyttu höfði' í friðar skaut Og hljóta' í þínum faðmi grafarró. (Úr Ljóöabók Jórunnar Ólafsdóttur) Sigrún Bjarnadóttir ODDSSJOÐUR Sjóðurinn var stofnaöur til minningar unt Odd Ólafsson yfirlækni á Reykjalundi og ber nafn hans. Tilgangur sjóösins er aö efla fræöslu, rannsóknir og aöra vísindastarfsemi á Reykjalundi og veita fé til kaupa á tækjum og búnaöi til notkunar viö endurhæfingu á stofnuninni. Tekjur sjóösins eru minningargjafir og framlög frá velunnurum Reykjalundar. Sjóöurinn er í vörslu Reykjalundar og er aðgreindur frá öörunt Qárhag stofnunarinnar. Minningarkort eru til sölu á Reykjalundi og þar er tekið viö framlögum í sjóöinn. Sími Reykjalundar er 566 6200. 32

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.