SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 5

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 5
Örorku- og húsaleigubætur þurfa að hækka Við raunum aldrei geta sinnt leiguíbúðaþörf- inni þótt við myndum leggja allt okkar fé í þær framkvæmdir, því að öðru óbreyttu yrði biðlistinn alltaf jafn langur og hann er í dag, eða lengri ef eitthvað er. Mér finnst vera kominn tími til að stjórnvöld hætti aö mismuna kaupendum og leigjendum húsnæðis - húsaleigubætur þurfa að hækka og þaö á að hætta að skattleggja bæturnar. En umfram allt á að hækka örorkubætur svo okkar fólk geti eignast eða leigt húsnæði að eigin vali, rétt eins og aðrir. Höldum áfram að tala við stjórnvöld á jafnréttisgrundvelli Við höfum á síðustu árum reynt að koma fram af hógværð í samskiptum við stjórnendur landsins, en ég tel að stjórnvöld hafi misnotað sér þá aðferð okkar. Síðan hafa þau brugðist illa við gagnrýni okkar vegna þess að þau eru óvön gagnrýni af þessu tagi. Það þykir vart við hæfi að öryrkjar, sem ekki hafa verkfalls- rétt eða pólitískt bakland, brýni raustina eins og aðrir í þjóðfélaginu. Við munum samt halda áfram að tala við stjórnvöld á jafn- réttisgrundvelli og við munum aldrei fara aftur í gamla farið. Þaö mun eflaust taka stjórnvöld einhvern tíma að átta sig á þessu því þau eru óvön því að heyra þessa rödd frá Öryrkjabandalaginu, en það er bara tíma- bundinn vandi enda margir stuðningsmenn og framámenn í stjórnarflokkunum þegar farnir að skilja og virða baráttuaðferðir okkar. Kynna sig kinnroðalaust sem öryrkja - Þaö er vaxandi umrœöa í fjölmilum um málefni öryrkja og þaö gœtir sársauka og reiði í þessum skrifum. Menn virðast vera að þjappa sér saman í andófi gegn stefnu ríkisstjórnarinnar. - Það ánægjulega við þessa baráttu er að fólk er farið að kynna sig kinnroðalaust sem öryrkja og skrifar t.d. greinar um sín mál undir fullu nafni. Þetta er verulegur sigur í baráttu okkar allra. Fjölmiðlar hafa sýnt málefnum okkar vaxandi áhuga og skilning og Morgunblaðið hefur ítrekaö vakiö athygli á málstað okkar og tekið undir með okkur. Það er gríðarlega mikilvægt. Þá hefur kirkjan komið inn í þessa umræðu með biskup fremstan í flokki. Sá stuðningur er líka mjög dýrmætur. Þá hefur Ólafur Ólafsson, fyrr- verandi landlæknir, talað tæpitungulaust um þetta mál og ég vil að íslenskir læknar bætist almennt í hópinn, láti að sér kveða sem stétt eins og prestarnir. ta Vissir þú? Að hvergi á Norðurlöndum eru öryrkjar hlutfallslega færri en á íslandi. í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er hlutfall þeirra um tvöfalt hærra. Að hvergi á Norðurlöndum eru öryrkjum greiddar eins lágar bætur og á íslandi. Að jafnaði eru þær um tvöfalt hærri hjá frændþjóðum okkar. Að ísland hefur um árabil verið í hópi fimm tekjuhæstu ríkja OECD. Að á síðustu 5 árum (1993-1998) hafa lágmarkslaun hækkað um 52°/o, launavísitalan um 30°/o, en örorkulífeyrir og tekjutrygging einungis um 17,4%. (Úr bæklingi frá ÖBÍ) Átakiö kostar 3-4 miljaröa - Hvað eiga stjórnvöld að gera að þínu mati? - Stjórnvöld ættu íyrst og fremst að viður- kenna vandann, sem verður ekki leystur nema með auknum útgjöldum. Það mun kosta a.m.k á bilinu 3-4 miljarða króna á ári að gera það átak sem bætir úr brýnasta vandanum. Menn verða að horfast í augu við þessar stað- reyndir. A undanförnum tveimur árum höfum við verið að sýna fram á hve langt aö baki við stöndum nágrannaþjóðum okkar í þessum málum. Bókin hans Stefáns Ólafssonar, íslenska leiðin, staðfestir rækilega það sem við höfum verið að segja um hag öiyrkja. Það er líka vitað að um helmingur þeirra sem leita aðstoðar Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða krossins eru öryrkjar. Það getur ekki verið þjóðfélagslega hagkvæmt að hafa hlutina í þessum farvegi. Ef við virkjum öryrkja til atvinnuþátttöku, til aukins félagslífs og auðveldum þeim að ala upp börn sín á sama hátt og venjulegir foreldrar gera - gefum börnunum kost á að sækja tónlistar- skóla og taka þátt í íþrótta- og tómstunda- starfi þá byggjum við upp ánægðara og

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.