SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 9
SjJELS-bJaðið
Góðar
Nviuriqar í meöferð
mngnasjukdoma
fréttir fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu
Viðtal við Hjörleif Þórarinsson, lyfjafræðing,
framkvæmdastjóra Glaxo Wellcome ehf.:
Nýverið voru kynntar niðurstöður
ISOLDE rannsóknarinnar, athugun
á langtíma notkun flútíkasón
innúðastera hjá sjúklingum með
langvinna lungnateppu (COPD).
Alls tók 751 sjúklingur þátt í
rannsókninni, konur og karlar á
aldrinum 40-75 ára með
staðfestan sjúkdóm. Að loknum
10 vikna undirbúningstíma, fékk
helmingur þátttakenda lyfið
fútíkasón, 500 míkróg 2svar á
Hjörleifur dag í 3 ár, en helmingur lyfeysu
’órarmsson (plaeebo). Árangur meðferðarinnar var
metinn með hefðbundnum lungna-
mœlingum, tíðni sjúkdómsversnana og
ítarlegum spurningalistum um lífsgœði.
Þetta kom fram í máli Hjörleifs
Þórarinssonar er SIBS blaðið bað um
fréttir af meðferð lungnasjúkdóma.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að
flútíkasón bætti raarktækt lungnastarfsemi
sjúklinga meö COPD, hægði á framgangi
sjúkdómsins, fækkaði versnunum og bætti
lífsgæði þátttakenda. Lífsgæöi sjúklinga með
langvinna lungnateppu eru mjög skert, bæði
vegna minnkaðrar hreyfigetu og svefntruflana
af ýmsum toga sem eru tvöfalt algengari hjá
COPD sjúklingum en öðrum. ISOLDE rann-
sóknin sýnir að flútíkason bætir verulega
lífsgæði COPD sjúklinga því sjúklingar á virkri
lyfjameðferð höfðu færri og vægari sjúkdóms-
einkenni, gátu hreyft sig meira og lifðu betra
lífí, samanborið við lyfleysuhópinn.
Glaxo Wellcome lyfjaíýrirtækið, sem er i
fararbroddi að því er varðar framfarir í
rannsóknum og meðferð astma og lang-
vinnrar lungnateppu, stundar einnig víðtækar
rannsóknir á öðrum lungnasjúkdómum ss.
lungnakrabbameini og slímseigjuvanþrifum
(cystic fibrosis), að sögn Hjörleifs.
Þróun öndunarfæralyfja frá Giaxo
Wellcome byggir á langri hefö
Salbútamól kom á markað 1968 og er enn
þann dag í dag íýrsta val í meðferð astma og
langvinnrar lungnateppu. Innúðasterinn
beclometasón (Becotide) kom á markað 1972
og hefur þjónað hlutverki sínu vel. Á sínum
tima umbylti lyfið meðferð astmasjúklinga, er
fram að því höfðu þurft að taka steralyf um
munn, meö öllum þeim aukaverkunum sem
því fýlgdi. í kjölfarið komu á markað
astmalyf frá öðrum lyfjaframleiðendum, s.s.
terbútalín og búdesóníð. Becotide er ekki
lengur fáanlegt hérlendis, en með tilkomu
flútíkasón telja sérfræðingar Glaxo Wellcome
sig hafa þróað enn betri innúðastera.
Berkjuvíkkandi lyfið salmeteról var þróað af
Glaxo Wellcome í upphafi þessa áratugar
gegn sjúkdómum sem valda berkjuþreng-
ingum, svo sem astma og berkjubólgu. Lyfið
er sérhannað til að verka lengi og gefur
áhrifaríka berkjuvikkun í lágmark 12 klst.
Rannsóknir hafa sýnt aö astmasjúklingar sem
höfðu stöðug einkenni þrátt fyrir notkun
innöndunarstera náðu betri stjórn á
einkennum með því að bæta salmeteróli við
meðhöndlunina í stað þess að auka stera-
skammtinn.
Nýtt lyf gegn astma
Nýverið samþykkti Evrópska lyíjamálastofn-
unin nýtt öndunarfæralyf frá Glaxo Wellcome
sem ber heitið Seretide. 1 lyfinu er blandað
saman salmeteróli og flútíkasóni og því
sameinast í einu tæki langvirkt berkjuvíkk-
andi lyf og bólgueyðandi lyf. Meðferð með
Seretide beinist því bæði að einkennum og
undirliggjandi orsök astma. Lyfið er sett á
markað í DISKUS tæki í styrkleikum 50/100,
50/250 og 50/500 mikróg. Seretide hefur nú
verið samþykkt af íslenskum heilbrigðisyfir-
völdum og er væntanlegt á markað innan
skamms.
Nú standa yfir víðtækar rannsóknir á notkun
á lyfinu í langvinnri lungnateppu, m.a. í sam-
starfi við íslenska lungnalækna og í góðri
samvinnu við lungnasjúklinga. Niðurstaðna er
að vænta innan 2ja ára.
Hin síðari ár hefur Glaxo Wellcome lagt
áherslu á að þróa úðalyf með vistvænum
drifefnum þar eð freon efnasambönd eru
skaðleg ósonlagi og notkun almennt óheimil.
í lyíjum er notkun slíkra efna háð sérstakri
undanþágu sem hér á landi er veitt af Lyíja-
nefnd. Að skipta um drifefni í innúðalyfi er
o
u
O
i
cn
03
9