SÍBS blaðið - 01.03.2000, Page 20
F
ramundan hjá
LHS:
lVlerkjasala í maí og þing
í september
Við náöum tali af Rúrik Kristjánssyni,
skrifstofustjóra Landssamtaka hjarta-
sjúklinga, og báðum hann aö segja frá
því helsta sem vceri framundan hjá
samtökunum.
Merkjasala fer fram á okkar vegum 4., 5. og
6. maí nk. og þá ætlum viö aö selja hjartað
okkar með þeirri breytingu þó að það verður
ársett með árinu 2000 og á að kosta fimm
hundruð krónur. Við ætlum að verja ágóöan-
um til að koma upp endurhæfingu sem víðast
um landið og til tækjakaupa í því sambandi.
Merkjasalan er aðaltekjulind félaganna úti á
landi því þau fá 25% af andvirði merkjanna
til eigin nota og eru það umtalsverðar tekjur
fyrir mörg félaganna.
Aðalfundur Reykjavíkurfélagsins verður
25. mars í Arsal Hótel Sögu. Þá verða
aðildarfélög LHS, tíu talsins (Neistinn er
yngri, stofnaður i maí ’95), tíu ára í haust.
Við eigum Súlnasal Hótel Sögu frátekinn 16.
september nk. og er hugmyndin að dagskrár-
efnið verði saga hjartalækninga á íslandi.
Reykjavíkurfélagið stendur fyrir vikulegri
hjartagöngu, hópurinn hittist við Perluna laust
fyrir kl 11 á laugardagsmorgnum og það er
lagt af stað stundvíslega 11. Þátttaka hefur oft
verið góö og við hvetjum fleiri til aö mæta.
Þá hefur verið rætt um aö halda hjartagöng-
una í ár á Þingvöllum og munum við hvetja
félögin í nágrenni Reykjavikur að mæta á
Þingvöllum.
Næsta þing LHS verður haldið dagana 22. og
23. september í Rúgbrauösgerðinni. Þetta er
6. þing samtakanna og þingfulltrúar verða
um 6o talsins.
Þri'r framémenn hjá LHS - Rúrik Kristjánsson
nælir gullmerki LHS í barm Ingólfs
Viktorssonar. Til vinstri er Sigurður heitinn
Helgason.
Jólakortasalan gekk vel og skilaði okkur
dágóðum tekjum.
Næsta tölublað af Velferð kemur út um
miðjan apríl og veröur eflaust hið
glæsilegasta. Þá er nýkominn út
bæklingurinn Eru Ijón í veginum. Hefur hann
verið sendur öllum félagsmönnum og til
heilsugæslustöðva, sjúkrahúsa og
endurhæfingarstöðva. Bæklingurinn þykir
mjög góður og hafa margir pantaö
viðbótarupplag. Við eigum nóg til eins og
stendur og munum prenta viöbótarupplag
þegar þess gerist þörf.
Ingólfur Viktorsson hætti störfum hjá LHS um
síðustu áramót vegna aldurs. Hann var fyrsti
formaður samtakanna og hafði veriö
starfsmaður þeirra í ein tíu ár. í hans stað var
ráðinn Asgeir Þór Arnason, en hann er mjög
kunnugur þessum félagsskap og hefur verið í
stjórn Reykjavíkurfélagsins um langa hríð.
Sigurjón Jóhannsson
atvinnulIfsins hf
BYKO
w