SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 27
Sjúklingar á Reykjalundi leggja af stað í gönguferð.
hæfingar sé að yngjast. Skýringin gæti verið
sú að almenningur og heilbrigðisstarfsfólk sé
að vakna til vitundar um skaðsemi tóbaks og
möguleikana á því að íyrirbyggja afleiðingar
þess. Önnur tilgáta er sú, að þar sem við sem
vinnum við lungnaendurhæfingu séum að
eldast þá finnist okkur skjólstæðingar okkar
vera að yngjast.
sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa fær sjúklingurinn
stundaskrá. Stundaskráin er í stöðugri endur-
skoðun á þessum 6 vikum og getur sjúkling-
urinn sjálfur haft sín áhrif á það. I miðju
viðtali er farið yfir hjúkrunargreiningar og
íhugað hvort sjúklingurinn er ánægður með
framvindu mála í endurhæfingunni og hvort
breytinga sé þörf að einhverju leyti.
Sex vikna æfingadvöl - innihald
Hvaða læknir sem er getur sent inn beiöni um
lungnaendurhæfingu fyrir skjólstæðinga sina,
þó flestar beiðnir komi frá lungnasérfræð-
ingum.
Hin venjubundna sex vikna endurhæfingar-
dvöl nýtist til 5 vikna þjálfunar og viðtala og
lífeðlisfræðilegra rannsókna í upphafi og í
lok dvalar. Þolpróf eru gerð hjá flestum við
komu og brottför vegna þess að þol er hægt
að bæta með þjálfun. Öndunarmæling er gerö
hjá öllum við komu og einnig við brottför hjá
þeim sem eru að hætta reykingum, því ekki er
hægt að bæta árangur á öndunarmælingu
nema með reykingastoppi eða lyíjum.
Sá hjúkrunarfræðingur sem tekur á móti sjúkl-
ingi er hans „umsjónarhjúkrunarfræðingur"
þann tíma sem hann dvelst á Reykjalundi.
Hann tekur viðtal við sjúklinginn við komu,
um miðbik dvalar og við útskrift. Ut frá komu-
viðtali eru gerðar hjúkrunargreiningar, mark-
mið og hjúkrunaráætlun í samráöi við sjúkl-
inginn. Einnig er þá gert komu- og markmiðs-
mat sem kynnt er fýrir öðrum aðilum innan
lungnateymisins. Fyrsta mánudagskvöld eftir
komu heldur hjúkrunarfræðingur fund með
nýkomnum sjúklingum og kynnir íýrir þeim
hlutverk sjúklingsins sjálfs í endurhæfingu.
Stundaskráin í stööugri
endurskoðun
Að loknum fýrstu rannsóknum, skoöun og
viötölum hjá hjúkrunarfræðingi, lækni,
Áframhald að lokinni útskrift
Þá er Iíka farið að huga að útskrift því ef
þörf er á að sækja um aðstoð heima, hjálpar-
tæki eða annað slíkt er nauðsynlegt að hafa
góðan fýrirvara á því. Fjölskyldufundur
stendur öllum til boða fyrir útskrift og er
hann oftast á dagskrá þegar fer að síga á
seinni hluta endurhæfingardvalar. Fyrir
útskrift er markvisst unnið að því að aðstoða
einstaklinginn við að skipuleggja áframhald-
andi líkamsþjálfun, þar sem oft er um að
ræða allsherjar breytingu á lifsstíl viðkom-
andi.
A Reykjalundi eru margar fagstéttir sem koma
að endurhæfingu sjúklinga. I lungnateyminu
eru hjúkrunarfræðingur, læknir, iöjuþjálfi,
sjúkraþjálfari og rannsóknarfólk. Aðrir, sem
oft er leitað til eru félagsráðgjafi, geölæknir
og næringarfræðingur.
Við, sem vinnum við lungnaendurhæfingu,
segjum oft að þó þaö sé mikilsvert að
lungnaendurhæfmg bæti árum við líf
lungnasjúklinga, þá er þó ef til vill meira
viröi að hún bætir lífi í árin sem eftir eru.
Heimildir:
Lungnaendurhæfing á Reykjalundi, þriðja
endurskoðun, apríl 1997.; Öndum léttar:
Fræðsla um lungnasjúkdóma, orsakir þeirra,
meðferð, orkusparnað, úthaldsþjálfun,
ferðalög og fleira. Björn Magnússon o.fl. Útg.
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð 1992.
27
Lunqnasiúkdómar