SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 28
SÍJELS-bJ a ö i ö
„Meyöin kennir.................“
Samtök lungnasjúklinga - stofnun þeirra og starf
Sagt er aö neyöin kenni naktri konu
að spinna og lötum manni að vinna
og má með sanni segja að tilurð
stofnunar Samtaka lungnasjúklinga
megi að mestu leyti rekja til þessa
málsháttar.
Aðdragandi og
undirbúningur
Aðalhvatamaður aö stofnun Samtaka
lungnasjúklinga, Jóhannes Kr. Guð-
mundsson, og undirrituð voru svo
Brynja D. lánsöm að fá endurhæfingu á Reykjalundi um
Runólfsdóttir nokkurra vikna skeið á sama tíma vorið 1995.
Þar var margt skrafað og rætt og kom fljót-
lega í ljós, aö lungnasjúklingar höfðu engan
vettvang fyrir sín málefni og vandamál. Á
lungnadeildinni á Reykjalundi kom berlega í
ljós, að þaö voru fleiri en undirrituð sem
höfðu ekki hugmynd um rétt sinn til bóta -
og reyndar voru margir svo veikir, að þeir
hreinlega höfðu ekki krafta til að leita réttar
síns, og enn aðrir höfðu engan til að biðja
um hjálp.
Nauðsyn slíkra samtaka var færð í tal við
m.a. Björn Magnússon, lungnasérfræðing,
sem á þessum tíma starfaði á Reykjalundi.
Samtök lungnasjúklinga standa i mikilli
þakkarskuld bæði við hann og ekki síður við
Hauk Þórðarson, sem þá var yfirlæknir á
Reykjalundi, sem studdu okkur einarðlega og
styrktu við stofnun Samtakanna.
Það var svo siðla árs 1996 aö farið var að
vinna að undirbúningi að stofnfundi
Samtakanna og fengum við til liðs við okkur
Sólveigu Ólafsdóttur, lögfræðing, sem samdi
lög félagsins og kynnti þau á stofnfundinum,
sem haldinn var 20. maí, 1997 á Reykjalundi.
Það var ánægjuleg stund og ríkti mikil gleði
og eftirvænting í stóra salnum bæði meðal
sjúklinga, aðstandenda þeirra svo og
starfsfólks Reykjalundar.
getur haft áhrif á útbreiðslu lungna-
sjúkdóma
• að vinna að ráðgjöf og upplýsingamiðlun
fyrir lungnasjúklinga, sérstaklega er varðar
réttindi þeirra og velferð.
Samtökin hafa undanfarna vetur haldið uppi
öflugri fræðslu og haldið reglulega fræðslu-
fundi í Safnaðarheimili Hallgrímskirkju í
Reykjavik, þar senr haldin hafa veriö fræðslu-
erindi um hin ýmsu málefni, er varða sjúk-
dóma og almenna velferö lugnasjúklinga og
ekki síður gefið aðstandendum breiöari og
vonandi nýja sýn.
Þess má geta hér að næsti fundur Samtaka
lungnasjúklinga verður haldinn i Safnaöar-
heimili Hallgrímskirkju, fimmtudaginn 23.
mars n.k. og hefst kl. 20. Á þann fund kemur
til okkar Gunnar Sigurðsson, prófessor og
yfirlæknir á Landspítalanum í Fossvogi.
Fyrirlestur hans mun fjalla um áhrif lyfja á
bein, en eins og flestir vita þá hefur Gunnar
um árabil staöið fyrir beiþéttnimælingum og
ýmsum rannsóknum að þeim lútandi. Fund-
urinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Stjórn Samtakanna og skrifstofa
í stjórn Samtakanna sitja nú, og hafa setið
frá upphafi, Jóhannes Kr. Guðmundsson,
formaður, Dagbjört Theódórsdóttir, gjaldkeri,
Brynja D. Runólfsdóttir, ritari og meðstjórn-
endur: Björn Magnússon, Guðlaug Guðlaugs-
dóttir, Kolbrún Guðmundsdóttir og Magnús
Karlsson.
Haustið 1998 voru Samtökin tekin inn í SÍBS
og var það okkur mikill fengur. í byrjun
síðasta árs opnuöum við svo skrifstofu í
bakhúsinu í Suðurgötu 10 og er hún nú opin
einu sinni í viku á miövikudögum kl. 15-17.
Síminn okkar er 552-2154, en símsvari er á
skrifstofunni utan opnunartíma. Einnig er
hægt að ná í formann og ritara alla daga i
símum, sem gefnir eru upp á símsvaranum.
Markmið og fræðsla
I lögum Samtakanna stendur aö markmið
þeirra sé að vinna að velferðar- og
hagsmunamálum lungnasjúklinga og fleiri
markmiðum hyggjast Samtökin ná með því:
• að halda uppi öflugri félagsstarfsemi,
• að stuðla að fræðslu og rannsóknum á
lungnasjúkdómum og afleiðingum þeirra,
• að efla forvarnarstarf hvers konar, sem
Málefni í brennidepli
Samtökin hafa verið og eru að vinna að
ýmsum málefnum og má þar nefna lækkun
gjalda á þjjálfunarnámskeið HL-stöðvarinnar
fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, starfræksla
símahrings, unnið er að stofnun Minningar-
sjóðs Samtaka lungnasjúklinga, unnið er að
gerð heimasíðu, verið er að skoða nýjungar í
súrefniskútamálum. Einnig er í undirbúningi í
samvinnu við lyfjafyrirtæki að setja “akandi