SÍBS blaðið - 01.03.2000, Side 33
SXELS±lJ a ð i ð
GOTT AÐ VITA
Ef þú heldur að vandamálið sem þú átt við
að stríða sé einstakt og þú sért þar af leiðandi
eina manneskjan í veröldinni sem glímir við
það, þá skjátlast þér hrapalega. Okkur hættir
mjög til að trúa slíku og byrgjum því oft
innra með okkur ýmislegt sem auðvelt er að
lækna eða leysa úr ef leitað er aðstoðar.
Á hvaða sviði er þitt vandamál? Heyrir það
undir lækni, prest, félagsráðgjafa eða kannski
góðan vin? Fyrsta skrefiö er að horfast í augu
við vandann og ræða hann við aðra. Láttu
slag standa og leitaðu aðstoðar, aðeins
þannig er hægt að losna frá áhyggjunum.
Eitt af mörgum atriðum i baráttunni við
beinþynningu er að passa vel upp á að
líkaminn fái nægjanlegt kalk (kalsíum). En til
þess að kalkið nýtist verður D-vítamín að
íýlgja með. Sjálfur Skyrgámur getur því
fengið beinþynningu ef hann ekki lætur
sólina skína á húð sina, tekur lýsi eða neytir
fiskjar og annarrar fæðu sem inniheldur D-
vítamín. Getur hann þá ekki bara tekið D-
vítamín í pilluformi? Nei, helst ekki því þá
getur skapast hætta á eiturmyndun í
líkamanum ef tekið er of mikið. Svo er bara
að muna eftir að hreyfa sig nóg og leggja
allar reykingar á hilluna.
Er konan þín ekki lengur falleg? Þá er gott
að vita að fegurð konunnar fer eftir því hve
heitt hún er elskuð.
HAPPDRÆTTI
Hjón á Austurlandi hlutu íýrsta vinning þegar
dregið var í happdrættinu 8. febrúar sl.
Vinningurinn var að verðmæti kr.
6.000.000,- og segjast hjónin ætla að nota
hann til að koma sér upp þaki yfir höfuðið en
það eiga þau ekki fýrir. Nokkrum dögum eftir
að þeim var tilkynnt um vinninginn hringdu
þau á skrifstofu happdrættisins og sögðu frá
ýmsu skemmtilegu, sem gerst hafði í lífi
þeirra á þessum tíma. „Þið verðið að íýrirgefa
hvað við erum glöð“, sögðu þau! Starfsfólki
happdrættisins fannst það ekki vera mikið að
fýrirgefa og ánægjulegt væri ef allir
vinningshafar í áranna rás hefðu látið í ljós
gieði við móttöku slíks vinnings. Hjartanlega
til hamingju!
H.F.
Svipmynd frá Múlalundi.
MÚLALUNDUR, VINNUSTOFUR
SÍBS
Ákveðið hefur verið að byggja eina hæð ofan
á húsnæði Múlalundar í Hátúni 10C. Vinnu-
stofurnar hafa þegar sprengt utan af sér
húsnæðið og er nú hráefni geymt á tveimur
stöðum úti í bæ. Við stækkunina mun þetta
breytast, allt færast á einn stað auk þess sem
rýmkast mun í vinnslusal. Frumvinnu og
teiknun er ekki lokið þannig að nokkur tími
mun líða uns framkvæmdir hefjast við sjálfa
bygginguna.
H.F.
CT3
o
O
STOÐDEILDIN
Á lausu blaði inni í ritinu eru inntöku-
beiðnir i Stoðdeild, annað fýrir
fýrirtæki og stofnanir og hitt fýrir
félög og hópa. Félagar í SÍBS og aðrir
velunnarar eru hvattir til þátttöku í
söfnun aðila í Stoðdeild SÍBS. Látum
drauminn um nýbygginguna á
Reykjalundi rætast!
33