Fréttatíminn - 03.06.2016, Blaðsíða 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. júní 2016
Vera Illugadóttir
vera@frettatiminn.is
Svallveislur þar sem vongóðum
ungstirnum er byrlað eiturlyf og
þau þvinguð til að þóknast fullorðn-
um körlum. Vinalegir umboðsmenn
sem reynast úlfar í sauðargæru. Fyr-
irsagnir um skipulagða starfsemi
barnaníðinga í Hollywood vöktu
athygli á dögunum. Þetta er ekki
í fyrsta sinn sem fregnir berast af
slíku – en það hefur þó aldrei farið
hátt. Ný heimildarmynd um barna-
níð í kvikmyndabransanum vestan-
hafs hefur átt erfitt uppdráttar.
Það var bandaríski leikarinn
Elijah Wood, flestum kunnur úr
Hringadróttinssögu og ótal fleiri
stórmyndum, sem vakti máls á því
í viðtali við Lundúnablaðið Sunday
Times á dögunum að í Hollywood
hefðu lengi verið starfandi
skipulagðir hringir barnaníðinga.
Þeir stunduðu það að níðast á ung-
um drengjum og stúlkum sem væru
að reyna fyrir sér í kvikmynda- og
sjónvarpsbransanum.
Wood bar þetta saman við hin
ótalmörgu misnotkunarmál sem
hafa komið upp í Bretlandi á síðustu
árum í tengslum við sjónvarpsmann-
inn Jimmy Saville, breska skemmt-
anabransann og stjórnmál. Sjálfur
var Wood barnastjarna og fékk sitt
fyrsta hlutverk í kvikmynd aðeins
átta ára gamall. Hann segir í við-
talinu við Sunday Times að hon-
um hafi þó tekist að forðast þessa
undirheima draumaverksmiðjunn-
ar, þökk sé árvekni móður sinnar.
Leyndarmálið sem allir vita?
„Ég fór aldrei í partí þar sem eitt-
hvað svona var í gangi,“ sagði Wood.
„Það eru svo margar freistingar í
þessum furðulega bransa. Ef maður
hefur ekki sterkan grunn, helst frá
fjölskyldu sinni, getur reynst erfitt
að takast á við þær.“
Dró ummælin til baka
Rannsókn bresku lögreglunnar á
Jimmy Savile og tengdum málum
snúa flestar að glæpum sem talið
er að hafi verið framdir fyrir mörg-
um árum og áratugum. En Wood
sagðist í viðtalinu ekki efast um að í
Hollywood væri enn verið að níðast
á börnum í dag. „Þetta er örugglega
enn að gerast,“ sagði hann. „Ef þú
ert saklaus og hefur litla þekkingu
á heiminum, en vilt komast áfram
– þá sjá þessir níðingar þig
sem auðvelt fórnarlamb.“
Ummæli Woods vöktu
mikla athygli og urðu tilefni
fjölda frétta um allan heim.
Degi síðar fann Wood sig þó
knúinn til að gefa frá sér yfir-
lýsingu þar sem hann kallaði
þann fréttaflutning „ósannan
og villandi“. Hann hefði sjálf-
ur enga persónulega reynslu
eða þekkingu af skipulögðum
barnaníðhringjum umfram
þar sem fram kom í heim-
ildarmynd sem hann hefði ný-
lega séð. Stutt spjall hans við
blaðamann Sunday Times um
myndina hefði aldrei átt að
verða miðpunktur viðtalsins.
Mynd stórleikstjóra fór lágt
Heimildarmyndin sem Wood sá var
að öllum líkindum An Open Secret,
sem út kom í fyrra. Leikstjórinn,
Amy Berg, er þekktust fyrir heim-
ildarmyndina Deliver Us From Evil.
Sú fjallar um glæpi kaþólsks prests
frá Írlandi, Oliver O’Grady, sem
misnotaði tugi barna í norðanverðri
Kaliforníu frá ofanverðum áttunda
áratuginum og fram til þess tíunda.
Myndin var sýnd um heim allan
og hlaut ótal verðlauna og mikið
lof, var meðal annars tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem besta heim-
ildarmyndin 2006. Öllu minna hef-
ur farið fyrir An Open Secret. Hún
hefur ekki verið sýnd víða, hvorki
í kvikmyndahúsum né í sjónvarpi,
og var hafnað af mörgum kvik-
myndahátíðum.
Náttfatapartí og klúrir brandarar
An Open Secret segir sögur fimm
ungra manna sem byrjuðu að
leika í kvikmyndum, sjónvarpsþátt-
um og auglýsingum á barnsaldri og
lentu þannig í klónum á níðingum.
Meðal annars er rætt við fórn-
arlömb Martins nokkurs Weiss,
sem um árabil var stórtækur um-
boðsmaður og sérhæfði sig í barn-
ungum leikurum og söngvur-
um, sér í lagi piltum. Hann þótti
áhrifaríkur umboðsmaður, skjól-
stæðingar hans fengu iðulega mik-
ið að gera. Hann varð líka oftar en
ekki náinn vinur drengjanna sinna
og foreldra þeirra, leyfði þeim að
gista þegar þeir þurftu að mæta í
áheyrnarprufur snemma morguns
og hélt tíð náttfátapartí- og grímu-
böll á heimili sínu.
Hann stundaði það líka að segja
strákunum klúra brandara og kyn-
lífssögur – og fara með þá í bíltúra
þar sem hann beraði sig og leitaði
á þá. Weiss var árið 2012 dæmdur
fyrir að hafa brotið gegn ungum
skjólstæðingi sínum, leikaranum
Evan Henzi. Í An Open Secret er
rætt við Henzi, sem er 22 ára í dag.
Hann segir að Weiss hafi, á fimm
ára tímabili, misnotað sig þrjátíu til
fjörutíu sinnum. Fyrst þegar hann
var aðeins ellefu ára gamall. Þrátt
fyrir að hafa hlotið dóm sat Weiss
aðeins í tæpt hálft ár í fangelsi.
Táningasvallpartí hjá DEN
Annað fyrirbæri sem tekið er fyrir
í kvikmyndinni er fyrirtækið Digi-
tal Entertainment Network eða
DEN. Það var stofnað árið 1999,
þegar fyrsta „dott kom-bólan“
stóð sem hæst, með það að mark-
miði að framleiða stutta þætti og
myndbönd fyrir unglinga og dreifa
á netinu. Það var byltingarkennd
hugmynd á þessum tíma, löngu fyr-
ir daga YouTube, og forsvarsmönn-
um DEN tókst fljótt að safna tug-
milljónum dollara frá fjárfestum.
Í myndinni er rætt við nokkra
unga menn sem léku í slíkum
internetþáttum um aldamótin síð-
ustu eða voru á annan hátt viðriðn-
ir DEN. Þeir lýsa villtum veisl-
um í glæsivillu forstjórans, Marc
Collins-Rectors, þar sem áfengið
draup af hverju strái og nóg var um
hverskyns fíkniefni og læknadóp –
líka fyrir yngstu gestina.
Collins-Rector var um fertugt um
þessar mundir. Hann bjó í villunni
ásamt kærasta sínum og meðstofn-
anda DEN, Chad Shackley, sem var
um fimmtán árum yngri. Shackley
og Collins-Rector kynntust að
Marc Collins-Rector er á
lista bandarísku alríkislög-
reglunnar yfir kynferðisaf-
brotamenn. Collins-Rector
varð milljónamæringur í
netbólunni en býr nú snauður
og sjúkur í Antwerpen.
Leikstjóri An Open Secret,
Amy Berg, ásamt viðmæl-
andanum Evan Henzi. Frá
blautu barnsbeini dreymdi
Evan um frama sem söngv-
ari, en honum var ítrekað
nauðgað af umboðsmanni
sínum, fyrst þegar hann var
ellefu ára gamall.
Mektarmenn í
Hollywood
sagðir níðast á
barnastjörnum