Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 03.06.2016, Page 50

Fréttatíminn - 03.06.2016, Page 50
Mannamál LÍN frumvarpið Margir hafa enn ekki áttað sig á þeim breytingum sem felast í nýju frumvarpi um námslán og námsstyrki. Fréttatíminn hefur tekið saman tíu veigamestu breytingarnar á núverandi fyrirkomulagi og fært yfir á mannamál. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Ég ákvað að búa Rúllu-smjörið til því ég hata að smyrja,“ segir Jón Aðalsteinn um uppfinn-ingu sína, Rúllusmjörið, sem er smjör í svita- lyktareyðisumbúðum. Jón Aðalsteinn var staddur á Vísindasafninu í Barcelona með fjölskyldu sinni þegar Fréttatíminn náði tali af honum, en uppfinn- ingin var seld á nýsköpunarmark- aði Barnaskóla Hjallastefnunn- ar síðustu helgi, þar sem krakkar í átta ára bekk seldu uppfinn- ingar sínar til styrktar góðu málefni. Upp- finningarnar þróuðu krakk- arnir á nýsköp- unarnámskeiði á vegum Innoent og kenndi ýmissa grasa á markaðn- um: „Sumir gerðu skopparabolta, aðrir súkkulaði og enn aðrir slím,“ segir Jón Aðalsteinn. „Svo gerðu Þorsteinn, besti vinur minn, og Illugi, frændi minn, teygjubys- su sem var geðveikt flott.“ Rúllusmjörið þróaðist hins vegar úr sameiginlegri óbeit krakkanna í bekk Jóns á að smyrja brauð með hnífi. Þá kom upp hugmynd um smjör í tann- kremstúpu, en Jón þróaði þá hugmynd út í Rúllusmjörið. „Við pöntuð- um tóma svita- lyktareyðisstauta frá útlöndum og settum 70% olíu á móti 30% smjöri í þá.“ Sextán eintök voru framleidd af Rúllusmjörinu og kostaði hvert eintak 500 krón- ur. Rúllusmjörið varð fljótt uppselt á markaðnum og var Magga Pála, stofnadi Hjalla- stefnunnar, meðal kaupenda. Jón á sjálfur eintak heima, en tók það þó ekki með í frí- ið til Barcelona, enda segist hann ekki borða mikið brauð með smjöri þar ytra. Foreldrar Jóns Aðalsteins eru hönnuðir, en Jón segir þeirra hönnun ólíka hans eigin. Allur ágóði af sölu uppfinning- anna rennur til styrktar Malaika, heimili og skóla fyrir munaðar- lausar stúlkur í Tansaníu. Uppfinning átta ára barna Rúllaðu smjörinu á brauðið Jón Aðalsteinn með Rúllusmjörið góða. Krakkarnir með uppfinningarnar. Arnar Guðjónsson, tónlistarmaður og upptökustjóri, er með hljóð- stúdíó úti á Granda, í húsnæði sem hann deilir með um tuttugu manns, meðal annars tónlistarfólki á borð við Ólaf Arnalds og hljómsveitina Sigur Rós. „Þetta er einskonar samfélag upptöku- stjóra og pródúsenta. Í upptökubransanum vilja menn oft einangr- ast í stúdíóinu, svo það er gott að geta hitt annað fólk í kaffistof- unni og spjallað,“ segir Arnar. Fyrir mánuði byrjaði upptökuferli nýrrar plötu hljómsveitarinn- ar Skálmaldar í stúdíói Arnars og nú vinnur hann hörðum hönd- um að hljóðblöndun plötunnar. Vinna Arnars er fjölbreytt en hann vinnur að mestu sem upp- tökustjóri hljómsveita á borð við Kaleo og Quarashi, auk þess sem hann gerir tónlist fyrir auglýsingar og kvikmyndir: „Svo þegar ég hef tíma aflögu vinn ég í minni eigin tónlist.“ | sgþ Vinnustofan Menn einangrast oft í stúdíóinu 1. Verðtryggðir vextir af lánum nærri þrefaldast. 2. Tekjutenging er afnumin. Með því borgar leikskólakennari sömu afborg- un og mánuði og lögmaður. 3. Lánið safnar vöxtum strax og það er greitt út til námsmanns en ekki þegar hann lýkur námi eins og áður var. 4. Afborganir hefjast einu ári eftir námslok en ekki tveimur eins og nú er. 5. Doktorsnám er ekki lengur lánshæft nema að hluta. Þó er lánað fyrir fyrir 420 ECTS einingum óháð námsferli. 6. Ekki er útlit fyrir að MBA og MPA nám verði lengur lánshæf. 7. Lán fyrir skólagjöldum eru greidd út eftir að námsárangur liggur fyrir en ekki áður, sem hefur í för með sér að margir þurfa að taka háan yfirdrátt í byrjun annar til að eiga fyrir skólagjöldum. 8. Námsmaður hefur 40 ár til að borga námslánið en námslán skulu alltaf vera greidd þegar lántaki hefur náð 67 ára aldri. 9. Hámarksfjöldi ára til að fá greidd námslán er sjö ár í stað átta, eins og fyrirkomulagið er í dag. 10. Hámarksfjárhæð til námsláns er 15 milljónir en áður var hámarksfjárhæð- in ótakmörkuð. Hins vegar er greidd- ur námsstyrkur (65 þúsund krónur á mánuði) að hámarki þrjár milljónir en styrkirnir eru nýjung í lögunum. 11. Allir sem stunda lánshæft nám eiga rétt á fjárstyrk upp á 65 þúsund krónur á mánuði Uppfinningar krakkanna í átta ára bekk Hjallastefnu: Táfýlubani úr silíkoni sem þú setur í skóinn Skopparabolti sem lýsir í myrkri og virkar kannski á sunnudaginn eða í næstu viku, að sögn uppfinningar- mannanna Teygjubyssur Innkaupapokar, treflar og fleira úr endurunnum fötum Stjörnumerkjalyklakippur Nammisprey sem gerir vondan mat góðan 50 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. júní 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.