Fréttatíminn - 03.06.2016, Page 52
Gott að fiska
Hátíð hafsins fer fram um helgina.
Tónlistarfólk stígur á stokk, það
verður fiskismökkun, furðufiska-
sýning, fiskiprentunarnámskeið
og fjölbreytt dagskrá fyr-
ir börn og fjöl-
skyldur. Nánar á
hatidhafsins.is
Gott að hvetja
Landslið kvenna í hand-
bolta mætir Þjóðverjum á
sunnudaginn klukkan 14.50.
Leikurinn er hluti af forkeppni í
Evópumótinu og verður sýnd-
ur í beinni útsendingu
á RÚV.
Gott að hlaupa
Valshlaupið fer fram á
morgun og er boðið upp á 10
kílómetra hlaup frá Hlíðar-
enda niður Hlíðarfótinn
að ylströndinni og út
Ægisíðuna. Falleg hlaupaleið og
góður undirbúingur fyrir Reykja-
víkur maraþonið.
GOTT
UM
HELGINA
ÓTAKMARKAÐUR
LJÓSLEIÐARI
ÓTAKMARKAÐUR
FARSÍMI + 4GB
WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400
4.5X9MM.indd 1 2.6.2016 13:04:43
Fólkið mælir með ...
Elín Elísabet
Einarsdóttir
Uppákoman: Það eru
tónleikar á Borgarfirði
Eystra. Barinn Já Sæll
var að opna yfir sumartímann og
hljómsveitin Ylja er að fara að spila
um helgina. Mig langar þangað.
Appið: Ég er að nota Podcasts-app-
ið og er alltaf að hlusta á Alvarpið í
því, íslenska stöð, en ég hlusta mest
á Fílalag þar sem Snorri Helga og
Bergur Ebbi kryfja tónlist, eitt lag í
hverjum þætti.
Á fóninn: Þessa dagana er ég mest
að hlusta á Perfume Genius, mæli
með lögunum „Queen“ og „Hood“.
Ísinn: Bragðarefur í Vesturbæjarís-
búðinni er bestur. Ég fæ mér alltaf
með lúxus-dýfu, jarðarberjum og
þristi.
Kristjana Stefánsdóttir
Uppákoman: Tónleik-
ar djasstrommarans
Terri Lyne Carrington
á Listahátíð núna á
sunnudaginn, 5. júní, í
Eldborg. Og með henni
í för verður uppáhalds
djasssönkonan mín þessa dagana,
Lizz Wright.
Appið: Núna þessa stundina er það
Garage Band og We transfer þar
sem ég er að vinna að plötu og gera
söngleik fyrir Borgarleikhúsið.
Á fóninum: Úff! Það er slatti. Plata
Tame Impala, Currents, er búin að
vera í gangi síðan síðasta haust.
Pure Bathing Culture og nýjasta
platan þeirra, Pray For Rain, Black
Star með David Bowie, Take All
My Loves með Rufus Wainright,
Lemonade með Beyoncé og svo var
að bætast við nýja Radiohead plat-
an, A Moon Shaped Pool.
Ísinn: Til skiptis gamli ísinn í Ísbúð
Vesturbæjar og hreinlega allar
tegundirnar í Valdís.
Árni Grétar Finnsson
Uppákoman: Fimleika-
félag Hafnarfjarðar
er mitt lið og ég reyni
að sjá alla leiki þess.
Á sunnudagskvöldið
ætla ég í Kópavoginn
og sjá þá spila við Blika.
Appið: Fyrir B-manneskju eins og
mig er Sleep Cycle lífsnauðsynlegt.
Á fóninum: Platan Týndi hlekkurinn
með Forgotten Lores. Ég er búinn
að vera síhlustandi á hana síðan
árið 2003.
Ísinn: Ég og kærasta mín erum
fastakúnnar í ísbúðinni Valdís. Ég
myndi borða þar í öll mál ef það
væri samfélagslega viðurkennt.