Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 03.06.2016, Qupperneq 54

Fréttatíminn - 03.06.2016, Qupperneq 54
Skúli Mogensen kaupir lúxusvillu á Nesinu Flugkóngurinn borgar 300 milljónir fyrir nýtt heimili …fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 Eiginmaðurinn kallar hana eyrnapinna Hin sjötuga kántrísöngkona Dolly Parton kom nýlega fram á Hallmark sjónvarpsstöðinni Home&Family. Þar tjáði hún sig meðal annars um hárið sitt sem er eitt af kennmierkjum söngkon- unnar góðkunnu. „Hér áður fyrr túperaði ég sjálf hárið á mér eins mikið og ég gat. Ég lét aflita hárið og allt svoleiðis og þá brotnaði það bara af. Þá fór ég að hugsa af hverju ég væri að leggja allt þetta á mig? Af hverju fer ég ekki bara að vera með hárkollur. Þannig mun ég aldrei eiga slæman dag með hárið á mér. Ég get verið með mjög stórt hár, en aldrei ljótt hár,“ segir þessi skemmtilega söngkona. Dolly sagði líka frá því í þessum þætti að maðurinn sinn gerði oft grín að hárinu og kallaði hana gjarnan „eyrnapinna“. Fær skilaboð frá ófæddu barni sínu Megan Fox tengist barninu sínu, sem hún gengur nú með, á einstakan hátt. Megan kom fram í þætti Jimmy Kimmel á dögunum þar sem hún sagði að hún og barnið væru nú þegar farin að hafa samskipti. „Þú heyrir kannski ekki alvöru rödd, en þú heyrir skilaboð ef þú ert opin fyrir því,“ sagði Megan og tók sem dæmi: „Barnið vildi að ég myndi búa annars staðar svo við erum að flytja á allt annan stað í Los Angeles því ég held að barnið mitt vilji alast þar upp.“ Megan segist vera orðin nokkuð sjóuð í því að ganga með barn þar sem hún er búin að vera ófrísk annað hvert ár síðan 2012, en hún á tvö börn fyrir. Myndi aldrei vilja karlkynsbarnfóstru Leikarinn Jerry O’Connell leikur meðal annars í Mistresses þessa dagana, þar sem hann leikur barnfóstru sem dregur vinnuveit- anda sinn á tálar. Hann var spurður að því nýlega hvort hann myndi ráða karlmann til að passa börnin sín. Hann á tvíburadæt- urnar Dolly og Charlie sem eru á áttunda ári. Jerry segir að hann myndi alls ekki ráða karlmann í að passa sín börn. „Mér þykir leitt ef ég er þröngsýnn en ég myndi bara ekki vilja að það væri karl að passa börnin mín.“ Milljarðamæringurinn og flug- kóngurinn Skúli Mogensen stend- ur í ströngu þessa dagana við að klára kaup á tæplega 600 fermetra lúxusvillu á Seltjarnarnesi. Einbýlishúsið rúmgóða, sem er við Hrólfsskálavör með sjávarút- sýni af dýrari gerðinni, var byggt af Eiríki Sigurðssyni, einatt kennd- um við 10/11 og núverandi eiganda Víðis, og eiginkonu hans, Helgu Gísladóttur, en þau hafa aldrei búið í húsinu. Samkvæmt heimildum amk... borgar Skúli 300 milljónir króna fyrir húsið sem nær þó varla fyrir byggingakostn- aði enda ekkert til sparað við byggingu og hönnun þess. Þetta hús við Hrólfsskálavör hefur verið eftirsótt og í sölu í töluverðan tíma. Eftir því sem næst verður komist bauð leikarinn og Íslandsvinurinn Ben Stiller rétt tæpar 200 milljónir í húsið skömmu eftir að tökum lauk hér á landi á myndinni The Secret Life of Wal- ter Mitty en hafði ekki erindi sem erf- iði. | óhþ Flott Húsið við Hrólfsskálavör er eitt hið glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu. Hugguleg híbýli Skúli Mog- ensen er að flytja á Seltjarnar nes. Sama og þegið Íslands- vinurinn Ben Stiller reyndi að kaupa húsið. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég fæ alveg pínu í magann við tilhugsunina um þetta. Ég er vön að vera bara ein heima á skrif-stofunni minni að vinna texta, búa til lógó, teikna og pakka inn vörum. Allt í einu er farið að biðja mig um skýrslur fyrir útflutn- ing. Þetta er orðið svolítið stórt. Miklu stærra en ég bjóst við,“ segir Íris Björk Tanya Jónsdóttir sem keypti hönnun Guðbjarts Þor- leifssonar gullsmiðs fyrir fjórum árum og stofnaði í kringum það fyrirtækið Vera Design sem nú er komið í útrás. Kim og Kanye fengu gjafir Um var að ræða armband með trúartáknum sem framleitt var í kringum kristnihátíðina á Þing- völlum árið 2000. Gripurinn hafði þá ekki formlegt nafn er Íris nefndi hann Infinity armband. „Það er sú vara sem ég hef unnið mest með og hef hannað mína eig- in línu út frá því,“ útskýrir hún. Vörur Vera Design fara í sölu hjá Airport Retail Group í sumar, en það er norskt fyrirtæki sem rekur verslanir á flugvöllum, bæði hér á landi og erlendis. Þá er Íris komin með umboðsmann í Svíþjóð, Sig- ríði Maríu Sundin, til að markaðs- setja vörurnar þar í landi. Sigríður hefur sjálf framleitt og selt fatnað undir merkinu Hattemarks síð- ustu 17 ár og Íris segir hana því vel kunna á sænska markaðinn. Íris segir mikilvægt að vera dug- legur að ota sínum tota og nýta öll sambönd til að ná árangri, en hún hefur alltaf stefnt hátt. Íris notaði sambönd sín til dæmis til að færa Kim og Kourtney Kardashian og Kanye West gjafir þegar þau vöru stödd hér á landi fyrr á þessu ári. „Ég veit reyndar ekkert hvað varð um gjafirnar, en Jonathan Cheban tók á móti þeim.“ Missti mikið í hruninu „Ég er ofsalega þakklát fyrir mót- tökurnar. Boltinn fór að rúlla af alvöru þegar ég kom vörunum í sölu hjá Icelandair. Síðan hafa þeir verið alveg frábærir og duglegir að taka inn nýjar vörur frá mér sem hafa verið að seljast mjög vel.“ Það er óhætt að segja að vin- sældir Vera design hafi vaxið hratt, en Íris segir söluna hafa tekið stökk eftir að hún setti hring með æðruleysisbæninni á markað á síðasta ári. „En það að stækka of hratt get- ur líka verið hættulegt,“ segir Íris sem hefur reynsluna af því að fara aðeins fram úr sjálfri sér. Hún tók þátt í góðærinu af fullum krafti, byggði og fjárfesti eins og enginn væri morgundagurinn. „Ég tap- aði miklu og týndi sjálfri mér í smá tíma. Ég dvaldi samt ekki við það heldur reif mig fljótt upp. Ég er ekki fyrir eymd og volæði. En þetta er pakki sem ég lærði af og vona að fleiri hafi gert. Ég reyni því að fara varlega af stað og taka þetta á auðmýktinni. Lífið er núna og kannski ekki á morgun, þannig kýs ég að lifa mínu lífi. Ef draum- ar þínir hræða þig ekki þá eru þeir ekki nógu stórir.“ Getur verið hættulegt að stækka of hratt Íris Björk er komin í útrás með fyrirtækið sitt, Vera Design, og viðurkennir að hún fái í magann við tilhugsunina um hvað fyrirtækið sé allt í einu orðið stórt Útrás Íris segist ætla að fara varlega af stað, enda hafi hún lært af reynslunni þegar hún missti allt í hruninu. Mynd | Thormar V Gunnarsson Ég missti allt og týndi sjálfri mér í smá tíma. Ég dvaldi samt ekki við það heldur reif mig fljótt upp. Ég er ekki fyrir eymd og volæði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.