Fréttatíminn - 03.06.2016, Qupperneq 68
… heimili og hönnun 16 | amk… FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Grænar inniplöntur og hvers
kyns hengiplöntur hafa átt
miklum vinsældum að Fagna
undanfarin misseri. Það er
mikil prýði að fallegum og
vel hirtum plöntum, þær gefa
hvaða rými sem er svolítinn lit,
líf og hlýju.
Að koma plöntunum
fyrir í fallegum pottum
er svo það sem setur
punktinn yfir i-ið og
er úrvalið af blóma-
pottum orðið virkilega
skemmtilegt og fjöl-
breytt.
Lífgaðu upp á rýmið með fallegum blómapottum
Koparpotta
er hægt að fá
í
alls konar stæ
rðum
og gerðum. Þe
ir eru
fallegir og njót
a sín
vel með græn
a
litnum.
Plöntustandur
frá Ferm Livin
g
gerir plöntuna
nánast að falle
gu
húsgagni.
Hægt er
að fá ílát undir
hengiplöntur
í mörgum
skemmtilegum
útgáfum.
Hvítir
pottar eru
alltaf klassíski
r
og sóma sér v
el
í hvaða rými
sem er.
Oft eru það litlu hlutirnir sem
mestu máli skipta þegar verið er
að gera fínt í kringum sig – hlutir
eins og blóm, kertastjakar, vasar
og krúsir, bækur og aðrir smá-
munir.
Þó að ekki sé endilega um stóra
hluti að ræða getur það samt
verið þó nokkur kúnst að raða
inn í rými þannig að útkoman sé
smekkleg og gleðji augað. Þessa
hluti er gott að hafa í huga áður
en þú hefst handa við uppröðun.
1. Hlutir úr sömu línu, frá sama
hönnuði eða vörumerki þurfa
ekki að vera paraðir saman. Sama
hvort um er að ræða samstæða
kertastjaka eða blómavasa. Það
getur verið fallegt að dreifa
hlutunum frekar um rýmið og para
þá með öðrum ólíkum hlutum.
2. Ekki setja tvo, fjóra eða sex
hluti saman. Reyndu frekar að raða
hlutum saman þannig að þeir séu í
oddatölu, það kemur oft betur út.
3. Hlutir sem þú raðar saman
þurfa ekki að vera af sömu
hæð. Blómavasi, kertastjaki og
stytta geta vel sómt sér saman
í „hópi“.
4. Veldu lifandi plöntur fram yfir
gerviblóm, þær glæða rýmið lífi.
5. Mundu að minna er oft á
tíðum meira og ekki endilega
fallegt að fylla rýmið af alls
konar smádóti.
Þegar raðað er inn í rými
Körfur af ýmsum stærð-um og gerðum eru eitt vinsælasta stofustássið í dag. Þetta er klárlega tískubylgja sem taka
skal fagnandi enda hægt að geyma
ýmislegt í körfunum sem annars
væri að þvælast fyrir á öðrum
stöðum. Körfurnar eru til í ýmsum
útfærslum. Bastkörfur eru sérlega
vinsælar, en körfur úr járni fást líka
í ýmsum hönnunarbúðum. Vinsælt
er að geyma teppi og púða í körf-
unum, jafnvel bækur og blöð. Það
er um að gera að nota hugmynda-
flugið þegar kemur að körfunum og
nýta geymsluplássið sem myndast
með þeim á skemmtilegan hátt.
Körfurnar fara auðvitað ekki
bara vel í stofunni heldur í öllum
herbergjum heimilisins. Tilval-
ið er að nota körfur undir hrein
handklæði á baðherberginu og
óhreinan þvott. Og undir rúmfötin
í svefnherberginu.
Körfur hér, körfur
þar, körfur alls staðar
Eitt vinsælasta stofustássið í dag eru körfur af öllum stærðum og gerðum
Teppi og púðar Körfur fylltar með púðum
og teppum eru mjög vinsæl uppstilling á
nútímaheimilum.
Rúmfötin Sniðugt er að geyma rúmfötin í
körfu í svefnherberginu.
Kósí Járnkörfur geta sett skemmtilegan
svip á heimilið, fullar af púðum og teppum.
Baðherbergið Einstaklega smekkleg upp-
setning á körfum undir hrein handklæði og
óhreinan þvott.
Stofan Það er ekki nauðsynlegt að fylla körfurnar af dóti, sérstaklega ekki ef þær eru fallegar.