Fréttatíminn - 17.06.2016, Side 8
Ísland, (þriðja) best í heimi
Hæst hlutfall
ferðamanna
6,5%
San Marínó7+93A
4,0%
St. Kitts4+96A
5,0%
Seychelles6+94A
10,5%
Bahrain11+89A
8,3%
Mónakó8+92A
5,8%
Ant. & Barb.6+94A
4,4%
Kýpur5+95A
7,0%
Malta7+93A
4,1%
Barbados5+95A
5,6%
Ísland 20156+94A
11,4%
Palau11+89A
9,0%
Bahamas9+91A
5,8%
Maldives6+94A
4,0%
Eistland4+96A
4,6%
Singapore6+94A
84+16A 83,6%Vatíkanið
30+70A 30,2%Andorra
17+83A 17%Ísland 2025
ÍSLAND 4.0
Flest bendir til að ferðamönnum muni á næstu árum fjölga áfram með sama hraða og undnfarin ár. Slík þróun mun gerbreyta
Íslandi. Það Ísland sem þú ólst upp í er óðum að hverfa og það Ísland sem tekur við er annað land og allt öðruvísi samfélag
2010
460.000
2022 5.201.575
Annað
Fiskur
Ál
Ferðamenn
2020
Gjaldeyristekjur Ferðamenn
færa okkur gullið og gera
dverga úr sjávarútvegi og
álverksmiðjum
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Ferðamannastraumurinn hefur síð-
ustu ár vaxið um 20 til 25 prósent
á ári og mun gera það líka á þessu
ári. Og allt bendir til að sama gerist
á næsta ári og þá verði fjöldi ferða-
manna nálægt tveimur milljónum.
Og þar sem ekkert bendir til það sé
að draga úr fjölguninni er fólk inn-
an ferðaþjónustunnar farið að spá
áframhaldandi vexti næstu árin.
Nú síðast sagði Björgólfur Jóhanns-
son, stjórnarformaður Icelandair,
að landsmenn ættu að búa sig undir
að hingað kæmu þrjár til fimm millj-
ónir ferðamanna.
Ef reiknað er áfram með sama
vexti og undanfarin ár myndu
ferðamennirnir fara yfir þrjár millj-
ónir árið 2020 og yfir fimm milljón-
ir árið 2022.
Ferðamenn meginstoðin
Aukinn ferðamannastraumur hefur
breytt miklu á Íslandi á undanförn-
um misserum. Þótt tína megi ýmis-
legt annað til þá má segja að fjölgun
ferðamanna sé meginforsenda þess
að atvinnulífið hefur tekið við sér.
Engin önnur megin atvinnugrein
hefur vaxið að nokkru ráði. Ef ekki
væri fyrir fjölgun ferðamanna væri
hér enn nokkur kreppa og fram-
tíðarhorfur daprar.
Á núvirði jukust gjaldeyristekjur
þjóðarinnar um 160 milljarða króna
frá 2010 til 2015. Á sama tíma juk-
ust tekjur af ferðamönnum um 175
milljarða króna. Ferðamennirn-
ir vega því upp samdrátt í öðrum
greinum og standa undir öllum
þeim vexti sem varð.
Tekjur af ferðamönnum voru
19 prósent af gjaldeyristekjum
þjóðarinnar 2010 en verða lík-
lega um 37 prósent í ár. Ef spár
um fjölgun ferðamanna yfir þrjár
milljónir á ári ganga eftir verða
þær líklega meira en helmingur
af heildargjaldeyristekjum þjóðar-
innar. Ef ferðamannafjöldinn fer
yfir fimm milljónir árlega verð-
ur hlutur ferðamanna nær tveir
þriðju af heildartekjunum.
Gamlar burðargreinar, sjávar-
útvegur og áliðnaður, yrðu sem
dvergar í samanburði með saman-
lagt um 22 prósent af tekjunum.
Hættan af of háu gengi
Ef af þessu verður mun margt
breytast. Eitt er gengisstýring
krónunnar. Alla sögu krónunnar
hefur vandinn verið veikir tekju-
stofnar, viðvarandi viðskiptahalli
og reglubundnar gengisfellingar.
Með innstreymi gjaldeyris frá ferða-
mönnum verður vandinn að halda
genginu niðri svo krónan styrkist
ekki um of og geri landið of dýrt
fyrir ferðamennina.
Það vill svo til að töluvert af fé
bíður þess að komast út úr krónu-
hagkerfinu. Annars vegar er það
snjóhengjan, leifar af eignum er-
lendra aðila frá því fyrir Hrun, og
hins vegar lífeyrissjóðirnir, sem
eiga orðið of lítinn part eigna sinna
í erlendum eignum svo að skynsam-
legt geti talist.
En þetta er hvort tveggja
tímabundinn vandi sem getur veg-
ið upp á móti hækkun krónunnar
um stund en ekki til langframa ef
ferðamenn verða um og yfir fimm
milljónir árlega um langan tíma.
Lýðræðisvakning í atvinnulífi
Auknar tekjur af ferðamönnum
munu líka raska valdajafnvægi í
samfélaginu. Meginstoðir atvinnu-
lífsins hafa verið fjórar. Landbúnað-
ur, sjávarútvegur, álvinnsla og inn-
lend þjónusta og verslun. Allt eru
þetta fákeppnisgreinar og margar
lokaðar. Landbúnaður og sjávar-
útvegur er lokaður inni í kvótum,
álvinnsla er í höndum er-
lendra auðhringa og
innlend þjónusta
og verslun hefur
lokast inn í tví-
eða þríkeppni
fárra stórra
aðila.
Vaxandi tekjur af ferðamönnum gerbylta undirstöðum þjóðarbúsins. Fyr-
ir fáum árum voru gjaldeyristekjur af ferðamönnum aðeins um 19 pró-
sent af heildargjaldeyrisöflun. Í fyrra voru þær orðnar um 31 prósent
og líklega verða þær nærri 36 eða 37 prósentum. Aukning ferða-
manna hefur drifið áfram þann efnahagslega ábata sem merkja
hefur mátt með vaxandi þunga síðustu misseri.
Ef spár ganga eftir um fjölgun ferðamanna upp í fimm milljón-
ir um miðjan næsta áratug munu undirstöður þjóðarbúskaparins
gerbreytast. Ef ruðningsáhrif ferðaþjónustunnar verða
ekki þess meiri má búast við að gjaldeyristekjur
muni vaxa um vel yfir þúsund milljarða króna
eða nærri tvöfaldast á tíu árum. Ferðaþjón-
ustan myndi þá afla um 65 prósent alls
gjaldeyris og gömlu burðarstoðirnar verða
eins og hjálpardekk; sjávarútvegurinn með
um 11 prósent gjaldeyristekna, álverk-
smiðjurnar með um 10 prósent og annað
með um 13 prósent.
Miklu meiri tekjur
og allt öðruvísi land
Ef fjölgun ferðamanna á næstu árum
verður viðlíka og undanfarin ár
munu ferðamenn til Íslands verða
yfir fimm milljónir fyrir miðjan
næsta áratug. Það mun breyta
atvinnuháttum og valajafnvægi,
umbylta samfélaginu og byggðunum,
Til verður nýtt Ísland, Ísland 4.0
Ferðamenn
umbylta tekjunum
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. júní 2016
Ferðaþjónustan er annars eðl-
is. Vaxtarmöguleikar hennar eru
nánast ótakmarkaðir því hún kepp-
ir í raun ekki á innanlandsmark-
aði heldur heimsmarkaði. Hún er
vaxtaland lítilla og millistórra fyr-
irtækja og þótt stóru flugfélögin,
hótelkeðjurnar og rútufyrirtækin
dragi til sín mest af tekjunum er
erfitt að sjá fyrir sér að staða þeirra
í samfélaginu geti orðið svipuð og
kvótakónga síðustu áratuga eða
kaupfélaganna og bændahöfðingj-
anna fyrr á árum. Það er vandséð
að ferðamálakóngar fari að halda
úti dagblöðum og stjórnmálaflokk-
um til að verja hagsmuni sína.
Vöxtur ferðaþjónustu getur því
orðið einskonar lýðæðisvakning í
atvinnulífinu sem mun án efa smit-
ast yfir í staðnað stjórnmálalíf.
Þegar litið er til þeirra áhrifa sem
áframhaldandi vöxtur ferðaþjón-
ustunnar getur haft á marga
þætti samfélagsins verður ljóst
að við þurfum að hugsa flesta
þætti samfélagsins upp á
nýtt. Við erum að sigla inn
í nýtt tímabil, Ísland 4.0.
12+88A 12%Ísland 2020
Ferðamenn á íbúa Ef spár ganga eftir verða hvergi fleiri ferðamenn
á hvern íbúa en á Íslandi árið 2025 – nema í Vatíkaninu og Andorra.
Skiljanlega raða fá-
mennustu þjóðirnar
sér efst á listann yfir þau
lönd þar sem ferðamenn
eru stærst hlutfall þeirra
sem dvelja í landinu hverju
sinni. Vatíkanið, með sína
fáu íbúa en stórfenglegt að-
dráttarafl fyrir ferðamenn,
trónir lang efst en þar á eftir
kemur Andorra, smárík-
ið upp í Pýrenafjöllum á
landamærum Frakklands
og Spánar.
Ef spár um aukningu
ferðamanna til Íslands
ganga eftir mun Ísland á
allra næstu árum komast
upp í þriðja sætið á þess-
um lista. Reikna má með
að árið 2020 verði um 12
prósent þeirra sem eru á
Íslandi hverju sinni erlendir
ferðamenn eða um áttundi
hver maður. Þegar árlegur
fjöldi ferðamanna fer yfir
fimm milljónir á Íslandi
verður um 17 prósent þeirra
sem hér dvelja hverju sinni
túristar, tæplega sjötti hver
maður.
Þetta eru meðaltöl. Fjöldi
ferðamanna verður meiri
yfir háannatímann. Ef
reiknað er með að fjölgun
ferðamanna verði svipuð
og undanfarin ár má reikna
með að fjölgunin verði meiri
yfir vetrarmánuðina og um
vor og haust en um sumar-
ið. Eftir sem áður má reikna
með að um hásumarið verði
erlendir ferðamenn um 25
prósent þeirra sem dvelja á
landinu, fjórði hver maður.
Miðað við fjölda ferða-
manna í fyrra er Ísland í
ellefta sæti á listanum yfir
þau lönd sem hafa flesta
ferðamenn á íbúa. Fyrir
fimm árum hefði landið
ekki komist á listann, ferða-
menn voru of fáir. Þá voru
ferðamenn hlutfallslega
færri á Íslandi en hjá mun
fjölmennari þjóðum á borð
við Austurríkismenn og Íra.
Á hverjum tíma eru túristar um 84 prósent þeirra sem eru innan
Vatíkansins. Hinir eru aðfluttir starfsmenn kaþólsku kirkjunnar.
Við erum hér!
Annað Fiskur
Ál
Ferðamenn
2025
2010
Annað Fiskur
ÁlFerða-
menn
Annað Fiskur
ÁlFerða-
menn
2015