Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 17.06.2016, Side 40

Fréttatíminn - 17.06.2016, Side 40
Á næsta ári verður því fagnað að öld er liðin frá því að hafnargerð lauk í Reykjavík. Frá því að hafnargerðinni lauk árið 1917 hefur höfnin verið lífæð höfuðborgarinnar og líklega átt stærstan þátt í því mikla forskoti sem Reykjavík náði umfram aðra kaupstaði á landinu á flestum sviðum. Á stuttum tíma breyttist Reykjavík úr bæ í borg. Án hafn- ar hefði búseta eflaust þróast með öðrum hætti í Reykjavík og á Akranesi en saga byggðarinnar og atvinnulífs er samþætt hafnar- starfseminni. Hafnarframkvæmdin markaði tímamót í þróun og sögu Reykja- víkur. Síðan þá hefur hafnar- starfsemi í Reykjavík þróast og dafnað og með tilkomu Faxa- flóahafna sf. árið 2005 hófst nýr þróunarkafli í hafnarmálum við Faxaflóa. Kjarnastarfsemin hefur alltaf verið sú sama: Að skapa hafnaraðstöðu fyrir útgerðir og fiskvinnslu, að skapa örugga aðstöðu til flutninga til og frá landinu og trygga viðlegu skipa. Til hliðar við þessa kjarnastarf- semi hefur vaxið ýmis konar starfsemi tengd hafnaraðstöð- unni, svo sem hafsækin ferða- þjónusta, skipaviðgerðir og klasi fyrirtækja sem vinna að þróun verkefna sem tengjast útgerð og fiski. Þá eru fleiri fyrirtæki sem njóta góðs af aðstöðu á hafnar- svæðunum, ekki síst tengd menningunni en hún blómstrar á hafnarsvæðunum. Reglulegar framkvæmdir og endurbætur Nú í vor hefur verið unnið að endurbótum á gönguleiðum við Grandagarð. Verkið felst í jarð- vinnu og yfirborðsfrágangi á völd- um svæðum á Grandagarði frá Ánanaustum að Grunnslóð. Allar veitulagnir og yfirborð eru endur- nýjuð. Gönguleiðin er færð frá húsunum og þannig skapað rými framan við húsin. Lýsing á svæð- inu er einnig endurnýjuð. Komið er fyrir 30 km hliðum við Ánanaust og á gatnamótum Grunnslóðar og Fiskislóðar. Verkefnið er sameigin- leg framkvæmd Faxaflóahafna sf, Veitna ohf. Mílu ehf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. Grafa og grjót ehf. var lægstbjóðandi og er verksamn- ingurinn upp á 70 milljónir króna. Verkið er unnið í tveimur áföng- um. Fyrri áfanganum lauk í lok maí. Vinna við seinni áfangann mun síðan hefjast að aflokinni Menn- ingarnótt og ljúka í haust. Þetta verkefni er í raun fyrsti áfangi endurnýjunar Grandagarðs. Búast má við að því verði framhaldið á næstu árum. Þá gengu Faxaflóahafnir í vik- unni frá verksamningi við Ístak um uppsetningu nýs hafnarbakka utan Klepps. Verktími er áætlaður árin 2015-2019. Hinn nýi bakki tekur við hlutverki núverandi Kleppsbakka, sem megin vöruflutningabakki farmstöðvar Eimskip, fyrir stærri og djúpristari skip. Það má segja að verkefnið sem slíkt sé stærsta stálbakkagerð sem fram hefur farið á Íslandi, þar sem efnismagn Faxaflóahafnir sf. var stofnað 1. janúar 2005. Það á og rekur fjór- ar hafnir: Akraneshöfn, Borg- arneshöfn, Grundartangahöfn og Reykjavíkurhöfn. Faxaflóa- hafnir sf. byggja starfsemi sína á 100 ára hafnasögu, sem er í senn merkilegur og stór hluti af sögu þeirra sveitarfélaga sem standa að fyrirtækinu. Fyrirtækið Faxaflóahafnir sf. er sameign fimm sveitarfélaga: Akranesskaupstaðar, Borg- arbyggðar, Hvalfjarðarsveit- ar, Reykjavíkurborgar og Skorradalshrepps. Það sem gerir fyrirtækið einstakt er að það er lykilaðili í þróun, upp- byggingu og rekstri mikilvægra innviða í flutninga- og efna- Hundrað ára saga hafnarinnar Fjölbreytt atvinnustarfsemi og blómstrandi menning og mannlíf Fjölbreytt starfsemi í fjórum höfnum Faxaflóahafnir sf. fagna því á næsta ári að eitt hundrað ár verða liðin frá því að hafnargerð lauk í Reykjavík. Höfnin hefur allar götur síðan verið lífæð höfuðborgarinnar en hlutverk hennar hefur víkkað út á seinni árum. Nú reka Faxaflóahafnir fjórar hafnir og menning og mannlíf blómstra meðfram hefðbundinni starfsemi þar. …kynning 8 | amk… föstudagur 17. júní 2016Unnið í samstarfi við Erna Kristjánsdóttur markaðs- og gæðastjóra Faxaflóahafna.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.