Fréttatíminn - 09.07.2016, Side 4
Brexit Andúð í garð
útlendinga blossaði upp
strax eftir kosningar.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Í Bretlandi ríkir pólitískt tómarúm
þessa dagana. Stjórnmálaleiðtogar
hafa ýmist sagt af sér eða standa
laskaðir eftir. Ríkisstjórn Davids
Cameron er valdalítil nú þegar hann
er á leið úr embætti. „Allir stjórn-
málaflokkarnir þurfa að takast á
við uppþot þessa dagana, sem er
óvenjuleg staða í breskum stjórnmál-
um. Breskt samfélag finnur nú fyr-
ir þeim miklu efnahagshræringum
sem fylgdu kosningunum. Pundið
hefur ekki verið jafn veikt í ríflega
30 ár og vandamál í byggingariðnaði
aukast. Á móti kemur að ódýrara
verður að ferðast til Bretlands og
það hjálpar ferðamannaiðnaðinum
eitthvað,“ segir Ingibjörg Þórðar-
dóttir, ritstjóri fréttavefsíðu CNN.
Ingibjörg segir það misjafnt
hvernig úrslit kosninganna fara í
íbúa Bretlands. „Frá kosningum hef
ég bara verið í London og á Íslandi,
en það er mikilvægt að átta sig á að
stemningin fyrir þessu er gjörólík
eftir því hvar þú ert. Hér í London
eru eiginlega allir enn að jafna sig
á sjokkinu, enda kaus borgin að
halda sig innan Evrópusambandins.
Margir trúa því að þetta muni ekki
ganga í gegn, en annars staðar er
fólk visst um að það hafi kosið rétt
með því að segja já við útgöngunni
og vonar svo það besta.“
Ingibjörg segir að fólk hafi nýtt at-
kvæði sitt með mjög mismunandi
ástæður í huga. „Margir töldu að
útganga verndaði sjálfstæði Bret-
lands. Innflytjendamálin og sjálfs-
ákvörðunarréttur í þeim var oft
ástæða fyrir útgönguatkvæðum.
Aðrir telja að atvinnuástand muni
batna sé skorið á sambandið við
Evrópu.“
Fyrstu dagana eftir kosningarnar
bar nokkuð á andúð gegn útlending-
um, jafnvel í hinni fjölmenningar-
legu London. „Hér í borg birtist
þetta í hegðun sem ekki hefði þótt
ásættanleg fyrir Brexit, til dæmis
urðu Pólverjar fyrir aðkasti. Allt í
einu þótti í lagi að segja hluti sem
ekki þóttu í lagi áður.“ Ingibjörg tel-
ur þó að dregið hafi úr andúð á síð-
ustu dögum. „Ég vona að lítill hópur
skemmi ekki ímynd Bretlands sem
fjölbreytts og opins land.“
Ingibjörg segir að óvissan þurfi
ekki að koma á óvart. Nauðsynlegt
sé að fá stöðugleika í stjórnmálin
og botn í það hvernig standa eigi að
útgöngunni. „Fjölmargir vöruðu
við glundroða og nægir þar að
nefna Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn og Obama, forseta Banda-
ríkjanna. Ég held að hlutirn-
ir séu að þróast nákvæmlega
eins og margir spáðu. Við
erum bara búin að sjá
toppinn af ísjakan-
um af öllu því sem
mun gerast í kjöl-
far þessara örlaga-
ríku kosninga.
Bretland þarf að
græða sárin. Það
mun taka tíma.“
Grænmetisrækt Sóunin hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna er hræðileg,
að sögn matreiðslumeistarans
Dóru Svavarsdóttur. Hún segist
horfa á eftir hundruðum
kílóa fara í ruslið í hverri
viku. Kerfið skapi engan
hvata fyrir grænmetis-
bændur til að haga
ræktun í samræmi við
eftirspurn.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Matreiðslumeistarinn Dóra Svavars-
dóttir rekur veisluþjónustu og færir
starfsmönnum Sölufélags garðyrkju-
manna mat á hverjum degi. Hún
segist sjá að heilu ruslagámarnir
séu fylltir af heillegu grænmeti
sem ekki selst í búðum. „Það
gerist reglulega, þegar ég kem
þangað, að hundruð kílóa af
fullunnu og jafnvel pökkuðu
grænmeti sé hent í ruslið.
Mér finnst hræðilegt að
horfa á þetta enda sóun á
matvælum, orku, pakkn-
ingum, tíma og vinnu.“
Dóra hefur tekið þátt í
verkefninu Zero Waist sem
hrundið var af stað af Landvernd, Vakandi og
Kvenfélagasambandi Íslands og miðar að því
að minnka matarsóun. Hún hefur haldið fyr-
irlestra um matarsóun og segist stöðugt rýna í
umhverfi sitt með þetta fyrir augum.
Grænmetisbændur leggja inn uppskeru
til Sölufélags garðyrkjumanna sem sér um
að koma vörunni til neytenda. Félagið segist
tryggja að 90 prósent af heildsöluverði vör-
unnar skili sér til framleiðanda.
„Þó félagið sé í eigu bænda, þjónar það þeim
ekki ef það hendir svo miklu af uppskerunni,“
segir Dóra. Hún telur tilgang félagsins góðan
en margar hindranir í kerfinu komi í vegi fyrir
að það virki sem skyldi.
„Sóunin bitnar á okkur neytendum og
bóndanum á endanum. Því hluti af vandanum
er fjarlægðin á milli bónda og kaupanda. Það
þýðir að bóndinn fær of seint að vita hvern-
ig salan á afurðunum gengur og getur því illa
hagað sinni ræktun í samræmi við eftirspurn.“
Dóra segir eina af rótum vandans vera að
styrkir til bænda séu framleiðslutengdir sem
geri það að verkum að það borgi sig fyrir
bóndann að framleiða sem mest. „Löggjöf-
in um sölu grænmetis er heftandi og býr til
óþarfa flækjustig.“
Hún segist hafa rætt sóunina við starfsfólk
Sölufélags garðyrkjumanna og öllum þyki leitt
að þurfa að henda heillegu grænmeti. Það
hafi meðal annars komið til móts við hana, á
viðburðum sem Dóra hefur átt þátt í að skipu-
leggja, þar sem afgangs grænmeti var notað í
mikla súpugerð.
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016
Hver er Ingibjörg
Þórðardóttir?
• Býr í London og
starfar hjá CNN Digital.
• Ber ábyrgð á alþjóða
síðum CNN vefsíðunnar.
• Starfaði hjá BBC í 15
ár, meðal annars sem
fréttaritstjóri.
• Er með meistara
gráðu í alþjóða
stjórnmálum.
Hér í borg birtist þetta í
hegðun sem ekki hefði
þótt ásættanleg fyrir
Brexit, til dæmis urðu
Pólverjar fyrir aðkasti.
Ingibjörg Þórðardóttir
ritstjóri hjá CNN
Hræðileg sóun á íslensku grænmeti
Dóra Svavarsdóttir segir
grátlegt að horfa á eftir heillegu
grænmeti í ruslagám. Mynd | Hari
Bara toppurinn af ísjakanum
Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri fréttavefsíðu CNN, segir að rykið sem þyrlaðist
upp eftir Brexit sé langt frá því að setjast. Í London er fólk í áfalli.
Ingibjörg
Þórðardóttir
segir að eftir
Brexit hafi
þótt í lagi að
segja hluti
sem ekki
liðust áður.
Fimm afleiðingar
Brexitkosninganna
1David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði af sér í kjölfar úrslitanna. Þá hvarf Nigel
Farage, leiðtogi UKIP flokksins, af stjórnmála-
sviðinu og sagðist hafa náð sínum pólitísku mark-
miðum. Boris Johnson, sem fór fremstur manna
í Brexit umræðunni, ákvað að gefa ekki kost á sér
til formanns Íhaldsflokksins.
2Bretland fór úr því að vera fimmta stærsta hagkerfi heims, niður í það sjötta. Bretland
hefur verið í fimmta sætinu frá árinu 2014.
Frakkland er nú fimmta stærsta hagkerfið.
3Pundið hefur fallið um 14% gagnvart dollar og hefur ekki verið lægra í 31 ár. Þá hefur
pundið fallið um 0,9% gegn evru. Pundið er
komið niður fyrir 160 krónur.
4 Fjármálakerfi Breta gæti verið í uppnámi. Samkvæmt könnun fyrir kosningar sögðust
20% fyrirtækja í bankastarfsemi flytja starfsemi
sína annað ef Bretar gengju úr ESB. Það eru 80
þúsund störf. HSBC bankinn hefur tilkynnt að
1000 starfsmenn bankans muni flytja til Parísar.
5Bretland er stærsta viðskiptasvæði Íslendinga. Við seldum vörur fyrir 120 milljarða til Bret-
lands á síðasta ári. Þá eru 20% ferðamanna sem
hingað koma breskir. Það er ljóst að veikt pund
getur haft veruleg áhrif á þessi viðskipti.
Þessi evrópusinni var líklega ósáttur með úrslit Brexitkosninganna.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Menning Nokkrir íslenskir
tónlistarmenn sem fram
komu á tónlistarhátíðinni
Sónar, sem haldin var í febr-
úar á þessu ári, hafa ekki enn
fengið greitt fyrir vinnu sína.
Forsprakki Sónar hátíðarinnar er
Björn Steinbekk, sem nú er sakaður
um svik við miðasölu á landsleik Ís-
lendinga og Frakka á Evrópumótinu
í fótbolta.
Fréttatíminn hefur heimildir fyrir
því að nokkrir starfsmenn hátíðarinn-
ar hafi gengið á eftir launum sínum
við aðstandendur hátíðarinnar síðan
hún var haldin, en án árangurs.
Af þeim listamönnum sem Frétta-
tíminn ræddi við, kom í ljós að nokkr-
ir höfðu sannarlega fengið greitt fyrir
vinnu sína, en þó ekki þrautalaust.
„Ég fékk greitt,“ sagði einn tónlist-
armaðurinn í samtali við Fréttatím-
ann en bætti við: „Það var þó ekki
Ekki fengið greitt frá Sónar
Tónlistarhá-
tíðin Sónar
hefur verið
haldin frá
árinu 2013.
fyrr en eftir margar ítrekanir í tölvu-
póstum til Björns. Ég þurfti að leggja
á mig þvílíka aukavinnu til þess að fá
þetta greitt. Ég veit um að minnsta
kosti þrjá sem hafa ekki fengið greitt.“
Þeir tónlistarmenn sem höfðu
ekki fengið greitt hafa haft verulegar
áhyggjur undanfarið, sérstaklega
vegna miðamáls Björns, en þeir sem
keyptu miðana af honum lögðu inn á
reikning Sónar. Úr varð að Eldar Ást-
þórsson, eini stjórnarmaður Sónar
sem er ekki tengdur Birni fjölskyldu-
böndum, sagði sig úr stjórn félags-
ins. Þau svör fengust frá eigendum
hátíðarinnar á Spáni í vikunni að til
greina kæmi að hætta að leigja Birni
vörumerki hátíðarinnar. | vg/þt
Sakamál Eyþór Helgi Birgis-
son var dæmdur í 18 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi
fyrir nauðgun í Héraðsdómi
Suðurlands á fimmtudaginn.
Eyþór Helgi, sem er atvinnumað-
ur í fótbolta í Noregi, var ákærður
fyrir að hafa stungið fingrum sínum
í leggöng konu þegar hún gat ekki
spornað við kynferðismökunum
sökum svefndrunga og ölvunar.
Brotið átti sér stað á Suðurlandi
árið 2014 en í dóminum segir að
Eyþór hafi gist heima hjá konunni
ásamt vinkonu hennar. Fórnarlamb-
ið hafði ekki áhuga á kynferðislegu
samneyti við hann og gerði honum
grein fyrir því með skýrum hætti.
Eyþór braut engu að síður á
konunni þar sem hún svaf, en hún
vaknaði við verknaðinn og fraus,
eins og segir í dómsorði. Samskipti
þeirra á Facebook eftir atvikið voru
svo lögð fyrir dóminn og þar baðst
Eyþór afsökunar á framferði sínu,
en hann hélt því þó fram að hann
hefði ekki verið að biðjast afsökunar
á brotinu sjálfu. Dómarar töldu þá
skýringu ekki sannfærandi.
Eyþór spilar með norska liðinu
Volda TI í Noregi, þar áður spilaði
hann með Fram. Þegar brotið átti
sér stað keppti hann hinsvegar með
Víkingi í Ólafsvík. Eyþóri Helga er
gert að greiða konunni 900 þúsund
krónur í miskabætur. | vg
Atvinnumaður í
fótbolta dæmdur
fyrir nauðgun