Fréttatíminn - 09.07.2016, Qupperneq 20
Þegar farið í gönguferðir er gott
og næringarríkt nesti ekki síður
mikilvægt en góðir skór og annar
útbúnaður. Svo þarf nestið líka að
vera frekar meðfærilegt sé ætlun-
in að koma því fyrir í bakpoka og
ganga með það á bakinu í marga
klukkutíma. Og hafa gott geymslu-
þol utan kælis. Gott er að hafa í
huga að nestið þarf að vera blanda
af góðri fitu og kolvetnum og ekki
spillir fyrir að krydda matinn með
góðum kryddum til að gefa honum
gott bragð.
-Pasta, núðlur og hrís-
grjón eru rík af kol-
vetnum og því góðir
valkostir í gönguna.
Þetta eru matvæli
sem er létt að bera og
auðvelt að elda með vatni og prímus.
Þá er einnig sniðugt að hafa flatkökur,
tortillur og gróft brauð í nestispakk-
anum.
-Sem álegg er gott að hafa kjúkling
í strimlum eða
kjúklingaskinku, létt-
pepperoní, skinku,
túnfisk, kæfu, kavíar
og ost.
-Til að gera matinn enn lystugri og
orkuríkari getur líka
verið gott að hafa
góða olíu meðferðis
í brúsa, eins og ólífu-
eða kókosolíu.
-Fyrir skjóta orku er nauðsynlegt að
hafa meðferðis þurrkaða ávexti, hnet-
ur, múslístangir og súkkulaði.
-Svo má ekki gleyma vökvanum, en
mikilvægt er að hafa vatn í flösku
með sér í gönguna. Á mörgum stöð-
um er líka hægt að nálgast tært
lindarvatn til að fylla á flöskuna. Gott
er þó að hafa í huga að ekki er snið-
ugt að drekka vatnið ískalt þó það sé
freistandi. En mikil orka fer í að hita
vatnið upp í líkamanum. Best er að
drekka vatnið sem næst líkamshita.
Orkudrykkir sem innihald sölt eru líka
ágætir til síns brúks en vatnið er alltaf
besti vökvagjafinn.
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016
Newton skórnir
fara sigurför um heiminn.
Byltingarkenndir hlaupaskór á
frábæru verði.
Ath:Hlaupagreining er innifalin við kaup á öllum
Newton skóm.
Panta þarf tíma í síma: 553-1020
Fást aðeins í Afreksvörum Glæsibæ , Afrek.is og
CraftSport Ísafi rði
Newton hlaupaskórnir geta losað þig við
beinhimnubólgu, kálfa-, hásina-, bak- og
hnjáavandamál.
Newton skórnir fást aðeins í sérverslunum þar
sem þú færð faglega ráðgjöf við val og mátun.
Sérverslun hlauparans kynnir
Afreksvörur Glæsibæ – Sími: 553-1020 – Heimasíða: www.afrek.is
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
Adidas Ultra Boost ST
Þessir skór eru aðeins til
í takmörkuðu upplagi og
eru frábærir í hlaupin, að
mati sérfræðinga. Svokallað
primeknit upper úr tækni-
prjónuðu efni er notað við
framleiðslu. Þeir eru mikil
tískuvara og fæstir sem tíma
að nota þá í útihlaupið en
þeir eru þess virði.
Gott nesti í gönguna
Mikilvægt er að hafa orku- og næringarríkt nesti í bakpokanum.
Fremstu hlaupaskórnir
Hvort sem þú stefnir á maraþon eða ætlar einfaldlega að koma þér
í form þá skal byrja á byrjuninni: góðum æfingaskóm.
Gríðarlegt framboð er af hlaupa-
skóm og búnaði. Það getur reynst
erfitt að finna þá réttu og það get-
ur verið kostnaðarsamt að prófa
sig áfram. Göngu- og hlaupagrein-
ing er ráðlögð fyrir alla þá sem
setja aukið álag á fæturna, líkt og
hlaup eða hverskonar líkamsrækt.
Í greiningunni er veitt aðstoð við
val á skóm, leiðrétting á skekkj-
um og mislengd ef á við með sér-
smíðuðum innleggjum og púðum.
Bæði Flexor og Eins og fætur
toga bjóða upp á tíma í göngu- og
hlaupagreingu og má fræðast nán-
ar um það á heimasíðu þeirra.
Gott að hafa í huga
-Það tekur tíma að ganga skó
til svo kaupið ekki nýja skó
fyrir langt hlaup eða keppni.
-Léttir skór henta sprettum,
fyrir lengri hlaup þarf eilítið
þyngri skó.
-Hugsaðu um hvar þú
kemur til með hlaupa,
sumir skór henta hlaupa-
brettinu betur og aðrir
möl eða gangstétt.
ASICS MetaRun
Þeir eru sagðir vera bestu skórnir frá Asics til
þessa. Fyrir alla þá sem taka hlaup alvarlega.
Skórnir eru sérstaklega hannaðir fyrir
langar vegalengdir, með stöð-
ugleika, þyngdarpunkt og
góða púða í forgrunni.
APL Windchill Energy
Þessir háþróuðu íþróttaskór
eru svo tæknilegir að leik-
mönnum NBA deildarinn-
ar er bannað að klæðast
þeim. Skórnir anda vel og
eru sérstaklega hannað-
ir til þess að endurnýta
orkuna og halda fótunum
svölum og þurrum.
Nike Flyknit Lunar Epic
Skórnir eru orðaðir við ótrúleg
þægindi. Sokkurinn veitir gott
aðhald og skórnir sitja þétt við
ökklann. Skórnir eru léttir og
fæstir vilja fara úr þeim við
lok hlaupsins.