Fréttatíminn - 09.07.2016, Page 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016
„Svo virðist sem enginn viti hvað
er að gerast í þessu hverfi og
enginn rati hér og komist rétt út
úr því,“ segir Agnes Ársælsdóttir,
en undanfarið hafa hún, Hrund
Ingvadóttir og Kristín Nanna
Einarsdóttir skoðað hvort Smiðju-
hverfið í Kópavogi sé vænlegt
umhverfi til listsköpunar. „Þetta
er Bermúdaþríhyrningur höfuð-
borgarsvæðisins.“
„Við efndum til listahátíðar síð-
asta þriðjudag því okkur langaði
að athuga hvort hægt væri að nota
svæðið til listsköpunar. Hlýtt var á
ljóðalestur og listamenn voru með
gjörninga og innsetningar. Hljóm-
sveitir stigu á stokk. Niðurstaðan
var í rauninni sú að svæðið sé kjör-
ið fyrir listsköpun og hér eigi sér
stað ákveðin gróska.“ segir Agnes.
„Við erum búin að kynnast
mörgum listamönnum á Smiðju-
vegi. Einn vinnur í raftækjaversl-
un og var að taka þátt í myndlist-
arsýningu á Akureyri. Ég held líka
að Smiðjuhverfið sé mjög vænlegt
fyrir starfandi listamenn til að
vera með vinnustofur. Hér er fullt
af efnivið sem hægt er að nota og
nóg pláss.”
„Þetta er það sem koma skal.
Áfram úthverfi!“ segir Agnes
sposk. | bg
Bermúdaþríhyrningurinn
í Smiðjuhverfinu
Segja svæðið vænlegt fyrir listsköpun
Hlutur
vikunnar
Í amstri hversdagsins
er auðvelt að gleyma
mikilvægi stólsins. Til
að hampa húsgagninu
sem fylgt hefur mann-
inum frá örófi alda
hefur Fréttatíminn
ákveðið að út-
nefna stól sem
hlut vikunn-
ar. Flestir eru
sammála um
að stóll sé mjög
sniðug upp-
finning.
„Í haust geri ég ráð fyrir að vera
orðinn atvinnuflugmaður,“ segir
hinn nitján ára gamli Kolbeinn Ísak
Hilmarsson frá Egilsstöðum sem
hefur ætlað sér að verða atvinnuflug-
maður frá því að hann man eftir sér.
Kolbeinn segir að allt líti út fyrir
að hann verði komin með öll tilskilin
réttindi í ágúst eða september en þá
verður hann rétt orðinn tvítugur.
„Lágmarkskröfurnar verða uppfyllt-
ar þá og í raun uppfylli ég tíma- og
hæfnisskilyrði hjá flugfélögum eins
og Icelandair.“ Honum er þó alveg
sama hvar hann fær vinnu fyrst.
„Mig langar bara að fljúga, sama
hverju eða hvernig og hvar. Komast
í vinnu.“
Hann segir langt og margþætt ferli
sé að baki en hann var ekki nema 15
ára þegar hann hóf flugnámið og það
á Egilsstöðum. Síðasta haust flutti
hann til Reykjavíkur og fór í atvinnu-
flugnámið.
Hann bætir við að ákveðinn
draumur sé að verða að veruleika.
„Þetta hefur verið draumurinn frá
því ég man eftir mér af því það felst
svo mikið frelsi í því að upplifa heim-
inn á flugi – frá öðru sjónarhorni.“ | bg Kolbeinn Ísak vill upplifa heiminn á flugi.
Atvinnuflugmannsdraumur frá barnæsku
Kolbeinn Ísak verður ekki nema tvítugur þegar fær atvinnuflugmannsréttindi
Klæðskerinn Mohammed Zahawi á sér trygga viðskiptavini og hefur
meira en nóg að gera. Hann leitar nú að saumakonu. Mynd | Hari
Vinsælasti
klæðskeri
landsins
Gerir við föt og annar ekki eftirspurn. Hann
lagfærði meðal annars föt karlalandsliðsins
og Guðna Th., verðandi forseta.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Ég lagaði jakkaföt íslenska karlalandsliðsins og Guðna, verðandi forseta, um daginn,“ segir íraski klæðskerinn Mohammed
Zahawi sem hefur búið á Íslandi
í sextán ár. Mohammed gerir við
jakkaföt ótal margra Íslendinga
og spannar kúnnahópurinn allt
frá íslenska karlalandsliðinu í
knattspyrnu til ráðherra ríkis-
stjórnarinnar. Hann annar varla
eftirspurn og er nú að leita að
saumakonu.
Mohammed lærði klæðskera-
iðn í Þýskalandi þar sem hann bjó
lengi og starfaði. „Síðan kom
íslensk dís sem heillaði mig
upp úr skónum fyrir sext-
án árum og ég hef verið á
Íslandi síðan, er giftur og á
börn,“ bætir hann við.
Þegar Mohammed kom til
landsins hóf hann störf hjá
Íslensku óperunni
en þaðan lá leiðin
til Sævars Karls og
Alvaro Calvi. „Ég
er kominn með
marga gamla og
trygga viðskipta-
vini en ég hef
lagað jakkaföt
og sniðið á flesta
ráðherra lands-
ins, Halldór og
Davíð til dæmis.
Þá vinn ég líka með
Herragarðinum og
fyrir stuttu gerði ég
við jakkaföt íslenska
karlalandsliðsins.
Síðan kom Guðni Th. hingað í
fyrsta skipti um daginn.“
„Frá því ég kom til Íslands hef-
ur það bara verið vinna, vinna,
vinna, en ég er auðvitað ánægður
með það.“ Hins vegar segist Mo-
hammed hafa svo mikið að gera
þessa dagana að hann hafi varla
tíma til að taka sér frí. „Ég þarf
nauðsynlega að ráða til mín annan
klæðskera eða saumakonu. Það
gengur hins vegar ekkert að finna
klæðskera hér á landi,“ segir Mo-
hammed sem auglýsti eftir slíkum
fyrir nokkru hjá Vinnumálastofn-
un en fékk engin svör. Því hefur
hann hafið leit að saumakonu en
reynist erfitt að finna þá réttu.
Margar hafi komið í prufu til
hans en hann er enn að leita.
„Ég geri margt annað en
það sem fellur undir klæð-
skeraiðn. Klæðskerar kunna
ekki allt. Þegar ég vinn
hugsa ég það sem
listvinnu, ég lít á
mig sem listamann
frekar en klæð-
skera.“
En ertu ekki bara
vinsælasti klæð-
skeri landsins?
„Jú. Maður
finnur heldur ekki
marga aðra hér á
landi. Ég finn að
margir tala um mig
og er mjög þakklátur
fyrir það því ég vinn
vinnuna mína vel.
Mestu máli skiptir að
vanda vel til verka.“
Skoða hvort og hvernig
hægt er að nota svæðið.
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Við kynnumst
stórkostlegri náttúru,
dýralíf og hinum forna
menningarheimi Maya
indíána. Skoðum m.a.
píramída,gamlar
menningaborgir, syndum
í sjónum við næst
stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn.
Endum svo á lúxus hóteli
við Karabíska, þar sem
allt er innifalið.
568.320.-
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið:
Flug, skattar, hótel með
morgunmat, islenskur
fararstjóri, allar ferðir og
aðgangur þar sem við á.
0 4 - 1 9 O k t ó b e r 2 0 1 6
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
MEXICO, BELIZE
& GUATEMALA
Hin fagra og forna Albanía.
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum
ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki
náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má
sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og
kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem
gömul gildi eru í hávegum höfð.
Verð 344.900 per mann i 2ja manna herbergi
Innifalið. Flug hótel í London, hótel m/hálfu fæði
í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar
og aðgangur þar sem við á.
Upplýsingar í síma 588 8900
Albanía
4. - 15. október