Fréttatíminn - 09.07.2016, Qupperneq 32
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2016
„Ég geng alveg upp að ókunn-
ugri manneskju og spyr hana
ef ég vil vita eitthvað. Þannig læri
ég. Ég vil líka að fólk spyrji mig, því
ég vil gjarnan deila minni reynslu.“
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is, Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Það hvarflaði ekki að mér að þetta myndi ganga svona ótrúlega vel. Það er líka best að búast ekki við neinu,
þá er maður glaðari ef vel geng-
ur og vonbrigðin minni ef illa
gengur,” segir Tanja Ýr Ástþórs-
dóttir, eigandi netverslunarinnar
Tanja Yr Cosmetics. Fyrirtækið
stofnaði hún fyrir rúmu ári og
hefur fram að þessu sérhæft sig í
gerviaugnhárum úr mannhári. Og
eftirspurnin hefur verið mikil. Nú
styttist hins vegar í nýjar vörur frá
henni, en síðustu níu mánuði hef-
ur hún verið að þróa línu af augn-
hárum úr minkahárum, sem samt
eru „cruelty free“.
Vildi gera eins og pabbi
Hún er einmitt í óða önn við að
skipuleggja kynningarpartí til
að kynna augnhárin. Þá er hún
líka með fleiri vörur í þróun, sem
væntanlega munu líta dagsins ljós
á næstu mánuðum. „Ég hann-
aði augnhárin sjálf frá grunni og
þess vegna er þetta búið að taka
svona langan tíma,“ útskýrir hún.
Augnhárin eru framleidd í Kóreu
og Bandaríkjunum, en Tanja fær
reglulega send til sín prufueintök
og lætur vita hvað þarf að bæta.
En hvað kom til að Tanja, sem
er aðeins 24 ára gömul, ákvað að
reyna fyrir sér í fyrirtækjarekstri?
„Mig langaði alltaf að vera minn
eiginn yfirmaður. Pabbi hefur
alltaf verið í fyrirtækjabransanum
og ég hef alltaf litið upp til hans.
Mig langaði að gera eins og hann.
Svo þegar ég vann Ungfrú Ísland
árið 2013 þá sá ég hvað ég hafði
mikil áhrif, greip strax tækifærið
og fór að gera eitthvað í þessum
málum,“ segir Tanja um hvað varð
til þess að hún ákvað að feta þessa
braut.
Fannst vanta betri augnhár
Hún ákvað að nýta athyglina á já-
kvæðan hátt og freista þess að láta
drauma sína rætast. „Það skiptir
svo miklu máli að vera með fylgj-
endur þegar maður er að byrja
á svona verkefni, sérstaklega ef
maður ætlar að setja nafnið sitt
við það,“ útskýrir Tanja, en hún
er í dag með 10000 fylgjendur
á snapchat, heldur úti vinsælu
bloggi og er með instagram síðu.
„Í upphafi vissi ég samt ekki alveg
hvað ég vildi gera. Ég var alltaf í
förðun og myndatökum á þessum
tíma, en var aldrei nógu ánægð
með augnhárin sem sett voru á
mig. Ég var alltaf að klippa þau til.
Úrvalið af gerviaugnhárum á þeim
tíma var mjög lítið, en í dag er
markaðurinn alveg að springa. Það
er ástæðan fyrir því að ég ákvað
að fara út í að gera augnhár.“
Strembið að fara af stað
Hún viðurkennir að það hafi verið
ansi strembið að koma fyrirtæk-
inu af stað. Hún lá yfir myndbönd-
um á youtube, fletti upp óteljandi
leitarorðum á google og las hinar
Ánægð með að Ungfrú Ísland
titillinn festist ekki við hana
Tanja Ýr vill vera þekkt sem sú persóna sem hún er, ekki vegna einhvers titils. Hún nýtti athyglina
á jákvæðan hátt og stofnaði fyrirtækið Tanja Yr Cosmetics sem gengið hefur framar vonum.
og þessar greinar til að kynna
sér markaðinn og hvað vantaði
helst. „Svo er ég líka óhrædd við
að spyrja fólk í kring um mig.
Ég geng alveg upp að ókunnugri
manneskju og spyr hana ef ég vil
vita eitthvað. Þannig læri ég. Ég
vil líka að fólk spyrji mig, því ég
vil gjarnan deila minni reynslu.“
Hún gat svo leitað ráða hjá föð-
ur sínum varðandi það hvernig
hún ætti að bera sig að við stofnun
fyrirtækis. Erfiðast fannst henni
að finna góðan framleiðanda á
augnhárunum en það tókst á
endanum. Fyrirtækið Tanja Yr
Cosmetics leit svo dagsins ljós
fyrir rúmu ári og hefur vaxið og
dafnað jafnt og þétt síðan.
Námið getur beðið
Frá því að Tanja tók þátt í Ung-
frú Ísland á sínum tíma hefur
hún tekið þátt í þremur öðrum
keppnum, meðal annars Miss
World. Hún segist hafa lært mikið
af þátttöku í þessum keppnum,
hafa stækkað tengslanet sitt mikið
og eignast góðar vinkonur. Hún
sér því svo sannarlega ekki eftir
því að hafa tekið þátt í Ungfrú Ís-
land og þannig opnað dyrnar út í
heim. „Það koma dagar þar sem
ég hugsa hvað ég væri eiginlega
að gera ef ég ekki stigið út fyrir
þægindarammann með þessum
hætti,“ segir Tanja en hún var
mjög feimin og átti erfitt með að
tala fyrir framan fólk. Eitthvað
sem er ekkert mál fyrir hana í
dag.
Tanja var í fjármálaverkfræði
í Háskólanum í Reykjavík þegar
hún hóf undirbúning fyrir Ungfrú
Ísland, en skipti síðan yfir í hug-
búnaðarverkfræði. Tækifærin á
erlendri grundu hafa hins vegar
verið svo mörg og spennandi og
fyrirtækið stækkað hratt, þannig
hún ákvað að gera hlé á náminu
um óákveðinn tíma. „Það var
bara orðið alltof mikið að gera hjá
mér. Námið verður alltaf þarna en
tækifærin ekki. Ég vil því reyna að
nýta þau.“
Peningar eru ekki allt
Tanja á fjölda áhugamála en hef-
ur lítinn tíma til að sinna þeim
út af vinnunni, sem tekur nánast
allan hennar tíma, sérstaklega á
álagstímum eins og núna. Hún er
Nýjar vörur væntanlegar Það hvarflaði ekki að Tönju þegar hún stofnaði fyrirtækið sitt fyrir rúmu ári, að það myndi ganga jafn vel og raun ber vitni. Mynd | Hari
þó svo lánsöm að vinnan er eitt af
áhugamálum hennar og hún nýt-
ur þess að sinna fyrirtækinu með
einum eða öðrum hætti. Skrifa
færslur á bloggið sitt og tala við
fylgjendur sína á snapchat. „Það
skiptir svo miklu máli að hugsa
um fyrirtæki með hjartanu. Ekki
hugsa of mikið um peninga. Það
skilar líka árangri,“ segir hún ein-
læg.
Kjánalegt að vera þekkt
Þrátt fyrir að Tanja hafi fyrst kom-
ið fram á sjónsviðið sem Ungfrú
Ísland, virðist titilinn ekki hafa
fest við hana, eins og vill stund-
um gerast. „Ég hélt alltaf að fólk
myndi tala um mig sem Tönju úr
Ungfrú Ísland, að það myndi fest-
ast við mig, en eftir að ég byrjaði
með snapchatið mitt: beautybyt-
anja, er fólk miklu frekar að tengja
mig við það. Ég er rosa ánægð
með að ég sé ekki föst með þenn-
an titil, heldur bara þekkt sem sú
persóna sem ég er.”
Hún kippti sér þó lítið upp við
athyglina sem hún fékk í kjölfar
þess að vera kosin Ungfrú Ísland
og fannst það til dæmis ekki frá-
brugðið því að vera í forsvari fyrir
góðgerðanefnd sem hún stofnaði
innan HR. „En þegar ég byrjaði
með bloggið og snappið þá varð
athyglin meiri og öðruvísi. Ég finn
alveg fyrir því að það er horft á
mig þegar ég fer til dæmis í búð
með mömmu. Henni finnst það
svolítið óþægilegt. Mér sjálfri
finnst það ekki óþægilegt en
kannski pínu kjánalegt stundum,
því ég er líka bara venjuleg. En
þetta er bara gaman,“ segir hún
og brosir.