Fréttatíminn - 09.09.2016, Blaðsíða 64
alla föstudaga
og laugardaga
„Ég er rosalega félagsfælin og á erfitt með margt,
en það er að lagast.“
Rebekka Einarsdóttir er í viðtali í amk á morgun
Tom bannar Katie Holmes að eiga annan kærasta
Samkvæmt skilnaðarsáttmála þeirra mátti hún ekki hitta aðra menn í fimm ár.
Dóri herjar á
Þýskaland
Rithöfundurinn og uppi-
standarinn Dóri DNA er með mörg
járn í eldinum um þessar mundir.
Auk þess að koma fram með
Mið-Íslandi og víðar er hann að
vinna að nýrri ljóðabók sem
kemur út hjá Bjarti á næstunni.
Fyrsta bók Halldórs, Hugmyndir:
Andvirði 100 milljónir, kom út hjá
Tungl forlagi í fyrra og svo hjá
Bjarti þá um haustið í breyttri
mynd. Hlaut hún góðar viðtökur
hér heima og í síðasta mánuði var
bókin svo gefin út í hinum
þýskumælandi heimi. Fulltrúar frá
bókaforlaginu Roughbooks sáu
Dóra lesa upp á sýningu með
Ragnari Kjartanssyni í Volks-
bühne í Berlín og sömdu við hann
á staðnum. Bókin kallast Ich bin
ein Bauer und mein Feld brennt á
þýsku og Dóri kallar sig Halldór
Laxness Halldórsson þar í landi.
Mun höfundurinn fylgja útgáfunni
eftir og fer nokkrum sinnum til
Þýskalands nú í haust til að lesa
upp úr bókinni.
Katie Holmes skildi við Tom Cruise
fyrir fjórum árum. Hún hefur ekki
verið mikið að hitta aðra menn eftir
það en hefur verið orðuð við Jamie
Foxx að undanförnu, en það hefur
ekki verið haft hátt um það. Ástæðan
fyrir því er komin upp á yfirborðið.
Katie skrifaði undir það, við undir-
ritun á skilnaðarpappírum, að hún
myndi ekki eignast annan kærasta í
fimm ár eftir skilnaðinn. „Katie var
það örvæntingarfull að losna við
Tom að hún samþykkti allt saman
þegar þau skildu,“ segir heimildar-
maður RadarOnline. Tom var alltaf
mjög stjórnsamur í hjónabandi
þeirra og hefur greinilega haldið því
áfram eftir skilnaðinn. Nú er ár eftir
af þessum samningi en fimm ár eru
liðin að ári.
Þarf að bíða í ár Katie Holmes má ekki eiga
kærasta næsta árið, samkvæmt samningi
sem hún gekkst undir við Tom Cruise við
skilnað þeirra. Mynd | NordicPhotos/Getty
Hætt við að fjárfesta
í JÖR
Sagt var frá því á þessum
stað í vor að Artikolo ehf., undir
stjórn Kolfinnu Vonar Arnar-
dóttur, ætlaði að fjárfesta í
fatamerkinu JÖR. Síðar kom í ljós
að Kolfinna og Björn Ingi Hrafns-
son, eiginmaður hennar, voru í
samstarfi við Kristbjörgu
Jónasdóttur og Aron Einar
Gunnarsson, fyrirliða íslenska
landsliðsins í knattspyrnu, um
þessa fjárfestingu. Ekkert hefur
frést frekar af téðri fjárfestingu
og nú herma heimildir amk... að
fjárfestarnir hafi bakkað út úr
verkefninu. Guðmundur Jörunds-
son fatahönnuður er þó ekki af
baki dottinn og hyggst halda
áfram með JÖR.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT