Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 09.09.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 09.09.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 9. september 2016 Fékk taugaáfall eftir starf á Hótel Framnesi Fyrrum starfsmenn Hótel Framness í Grundarfirði segja vinnuálagið á hótelinu óbærilegt. Í þessu rými svaf einn af erlendu starfsmönnum hótelsins í sumar. Myndin er tekin af öðrum starfsmanni sem var brugðið við aðkomuna. Ferðaþjónusta Hótel Framnes í Grundarfirði er undir smásjá lögreglu og verkalýðs félags Snæfellinga en starfsmenn hafa lýst hörmulegum vinnuaðstæð- um. Í vikunni voru aðeins þrír menn að störfum á 60 manna hóteli. Carlotta Birtoglio segist hafa brotnað saman eftir að hafa sinnt þremur störfum á hótelinu í sumar. „Ég gat ekki boðið gestunum upp á þetta,“ segir annar starfsmaður. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Fyrrum starfsmenn Hótel Fram­ ness segja eigandann hafa keyrt þá út með ólýsanlegu vinnuálagi í sumar. Sigurkarl Bjartur Rúnars­ son, sem keypti Hótel Framnes í maí, hefur legið undir ámæli um að hafa hælisleitendur án atvinnu­ leyfis að störfum. Hann vildi ekki svara spurningum Fréttatímans þegar eftir því var leitað. Lög­ regla, verkalýðsfélag Snæfellinga og ASÍ fóru í þrjár í eftirlitsferðir á hótelið í sumar. Sigurkarl rak áður Reykjavík Hótel Center í Skipholti í nokkra mánuði, án þess að hafa rekstrarleyfi. Hótelið hefur verið starfrækt síðan 1954 en þar eru 38 herbergi. Um 17 starfsmenn voru á hótelinu áður, en í sumar hefur þeim fækk­ að verulega. Á föstudag var fjór­ um reyndum starfsmönnum sagt upp. Þegar Verkalýðsfélag Snæfell­ inga kom í eftirlitsferð á miðviku­ dag voru aðeins þrír Pakistanar að störfum. „Við höfum áhyggjur af hótelinu og að þar séu erlend­ ir starfsmenn sem ekki þekki rétt sinn né launakjör. Þar ríkir algjör undirmönnun og við vitum að starfsmenn hafa leitað læknishjálp­ ar vegna álags.“ Fréttatíminn hefur rætt við nokkra þeirra sem nýlega hættu störfum á hótelinu en þeir lýsa því að vinnuálagið hafi orðið óbærilegt eftir að starfsmönnum var fækkað, sem hafi bitnað á þjónustu og hrein­ læti. „Ég gat ekki boðið gestunum upp á þetta lengur,“ segir einn þeirra. „Herbergin voru hrikalega skítug og það var alls ekki alltaf skipt á rúmum fyrir nýja gesti.“ Á sama tíma og starfsfólki var fækkað, komu eigendur inn með útlent vinnuafl sem grunur leikur á að hafi verið hælisleitendur án at­ vinnuleyfa. Í upphafi sumars komu þrír karlmenn beint frá Rúmeníu en þeir hættu stuttu síðar. Fleiri útlendingar komu í kjölfarið, frá Marokkó, Afganistan og Pakistan. Sumir stoppuðu stutt við en aðrir eru enn að störfum. Hótelið er enn í rannsókn. Gat ekki meir Carlotta Birtoglio flutti frá Ítalíu til að starfa á hótelinu fyrir tæpum þremur árum. Í lok sumars segist hún hafa fengið taugaáfall eftir að hafa þurft að sjá ein um morgun­ mat, uppvask og aðstoð við þvotta á 60 manna hóteli. „Ég brotnaði bara saman og fór að ofanda. Tárin streymdu niður og ég gat ekki hætt að gráta. Ég hef aldrei upplifað slíkt áður. Þetta var bara vegna álags.“ Hún segist hafa verið herbergis­ þerna fyrsta árið en eftir að hún fékk bakeymsli af vinnunni var hún færð yfir í morgunmatinn. „Ég lét nýjan eiganda vita af þessu en samt var ég látin í þrif og þvott meðfram morgunmatnum. Ég gerði athugasemd við að ég væri í raun komin í þrjú störf, og þá var bara hlegið að mér.“ Carlotta lýsir morgninum sem hún gekk út úr vinnunni; „Ég hafði mætt klukkan sex til að undirbúa morgunmatinn. Eldhúsið var fullt af óhreinu leirtaui og það var ekki til nægilega mikill matur. Gestirnir áttu að koma klukkan sjö en streymdu að miklu fyrr. Ég var ein í öllu með um fjörutíu gesti. Þeir kvörtuðu undan gæðunum á hlaðborðinu. Enginn var í móttökunni svo ég var sú eina sem þeir gátu talað við. Þegar morgunmaturinn var búin fór ég inn í eldhús til að vaska upp allt óhreina leirtauið. Svo brotnaði ég bara saman yfir uppvaskinu og gekk út.“ Önnur kona segist hafa þurft að fara í veikindaleyfi vegna álagsins. Guðbjörg Jónsdóttir hjá Verkalýðsfé- lagi Snæfellinga hefur áhyggjur af að starfsmenn hótelsins þekki ekki rétt sinn. Carlotta Birtoglio brotnaði saman eftir starfið á Hótel Framnesi. Viltu stofna fyrirtæki? Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran rekstrarkostnað, útgáfu reikninga, ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, fjármál o.fl. kennt þriðjud. 20. sept., 27. sept og 4. okt. kl. 9-12 2. Síðdegisnámskeið, kennt 21. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30-19:30 Námskeiðsstaður er Holtasmári 1, Kópavogi (Hjartverndarhúsið). Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Nánari upplýsingar og skráning í síma 552 609 Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og verður kennt þriðjudagana 13., 20. og 27. september kl. 16:10 – 19. Námskeiðsstaður er Katrínartún 2 (Höfðatorg), 16. hæð, Reykjavík. Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Fyrirlesari: Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M N nari upplýsingar og skráning í síma 894-6090 eða á alb@lexista.i Námskeiðsgjald er 40.000 kr. og greiðist við skráningu. VR og fleiri félög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu um 50%. Orkuveitan Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að borgin lækki orkugjöld á borgarbúa vegna góðrar afkomu Orkuveitu Reykja- víkur. „Það er ljóst að Orkuveitan hefur rétt verulega úr kútnum og við telj­ um sanngjarnt að það verði farið í rýningu á því hvort það sé mögu­ legt að lækka orkugjöldin af þeim sökum,“ segir Halldór Halldórs­ son, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en flokkurinn er ósáttur við að tillaga þeirra um að orku­ gjöld verði lækkuð hafi verið vís­ að til borgarráðs í stað þess að hún væri samþykkt. Raunar segir í bókun, sem borg­ arfulltrúar Sjálfstæðisf lokksins lögðu fram á fundi borgarstjórn­ ar á þriðjudaginn, að meirihlutinn sýndi af sér fálæti í málinu. „Þeir vísuðu málinu þannig lagað frá,“ segir Halldór sem útskýrir að í nóvember árið 2015 hafi borgar­ stjórn samþykkt að vísa tillögu um rýningu orkugjalda til borgarráðs. Tíu mánuðum síðar bólar ekki á málinu. „Það er kannski þess vegna sem við tölum um fálæti,“ segir Hall­ dór sem bendir á að það hafi ver­ ið borgarbúar sem báru hitann og þungan af erfiðri rekstrarstöðu Orkuveitunnar, enda hækkuðu orkugjöldin um tæplega 50% á ör­ fáum árum. Nú hefur rekstrinum verið snúið við og ljóst að borgin reiðir sig á arðgreiðslur á fimm ára áætlun, en hagnaður af rekstri sam­ stæðunnar var yfir fjórir milljarðar á síðasta ári. Halldór segist vongóður um að tillagan fái meðferð hjá borgarráði, en bætir þó við að pólitíski frasinn „að svæfa málið í nefnd“ eigi vel við í þessu tilfelli. Sóley Tómasdóttir, borgarfull­ trúi VG og stjórnarmaður í Orku­ veitunni, segir sjálfsagt að skoða málið. „Og það munum við gera í borgarráði. Það eru fjölmargar hlið­ ar á málinu, hagsmunir borgarbúa sem eigenda og sem viðskiptavina og hvernig þeir fái notið góðrar þjónustu á sanngjörnu verði,“ segir hún. | vg Sjálfstæðisflokkur vill lækka orkugjöld Halldór Halldórsson telur að borgarbúar eigi líka að hagnast á góðu gengi Orkuveitunnar og þannig eigi að lækka orkugjöldin aftur. Flóttamenn Sýrlensku bræðurnir Kinan og Abd Almonem Kadoni hittust í fyrsta sinn í sex ár á dögun- um. Kinan sagði sögu sína í Fréttablaðinu í fyrra en stríðið hafði skilið bræðurna að og hrakið þá báða á flótta. Tilfinningarnar báru þá ofurliði við endurfundinn í vikunni. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Bræðurnir Kinan og Abd Almonem Kadoni hafa verið aðskildir frá því stríðið braust út í Sýrlandi fyrir um það bil sex árum. Viðtal við Kinan birtist í Frétta­ blaðinu í fyrra eftir að hann flutti er­ indi á þingi Norðurlandaráðs í Hörpu um aðstæður flóttamanna í Evrópu. Kinan yfirgaf Sýrland rétt áður en uppreisnin hófst en yngri bróð­ ir hans, Abd Almonem, varð eftir og hélt áfram háskólanámi. „Einn daginn brutust út mótmæli við skól­ ann hans. Hann var handtekinn og fangelsaður í rúman mánuð. Dvölin í fangelsinu reyndi mikið á hann og hann sætti illri meðferð. Hann flosn­ aði upp úr náminu í kjölfarið.“ Abd Almonem hefur haldið til í Þýskalandi að undanförnu ásamt frændum bræðranna en Kinan tókst að flýja til Belgíu. Fyrir ári fékk hann loks endurútgefið vegabréf og varð því aftur ferðafær. Hans fyrsta verk var að halda til Grikklands þar sem vann sem sjálfboðaliði við að að­ stoða flóttamenn, m.a. fyrir Lækna án landamæra. „Eftir að ég fékk vegabréfið hefur bróðir minn suðað í mér að koma til sín til Þýskalands. Ég hef alltaf gefið honum þær skýringar að ég komist ekki til hans, það sé svo langt ferða­ lag og ég geti það ekki þó ég vilji. Um daginn fórum við hálfpartinn að ríf­ ast yfir því að ég kæmist ekki til hans. Í kjölfarið ákvað ég að panta flug til Þýskalands og birtst heima hjá hon­ um daginn eftir.“ Kinan segir frændur þeirra hafa aðstoðað við að skipuleggja endur­ fundinn, tryggja að Abd Almonem væri heima þegar hann kæmi. Kinan faldi sig svo undir teppi í stofunni hjá Abd Almonem og frændurnir báðu hann um að kanna hver væri und­ ir því. Bræðurnir Abd Almonem og Kinan Kadoni hittust í fyrsta sinn í sex ár á dögunum. Tárvotur endurfundur aðskildra bræðra Mikill hagnaður er á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. Myndband af tilfinningaþrungnum endurfundi bræðranna er á vef Fréttatímans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.