Fréttatíminn - 09.09.2016, Blaðsíða 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 9. september 2016
Vinirnir Eva Brá og Hjalti
Vigfússon hafa verið vin-
ir í 4 ár. Vinasamband
þeirra byrjaði í tengslum
við framhaldsskólapóli-
tík en samskipti þeirra
blómstruðu fljótt í fallegan
vinskap og göfugt samstarf í
Druslugöngunni og má segja
að Eva og Hjalti séu hið eina
sanna ofurvinapar.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Við kynntumst fyrst þegar Hjalti
var forseti nemendafélags Mennta-
skólans við Hamrahlíð og ég var
varaformaður Sambands íslenskra
framhaldsskólanema. Mjög fljótlega
náðum við að ræða hugmyndirnar
okkar og sáum strax hvað við náð-
um vel saman. Þetta endaði með því
að við urðum bestu vinir og hann
varð varaformaður samtaka og ég
formaður,“ segir Eva um kynni sín
af uppáhalds vini sínum, Hjalta
Vigfússyni.
Hjalti og Eva elska að borða óhóf-
legt magn að af súrdeigsbrauði í frí-
tíma sínum, drekka kaffi og skipu-
leggja Druslugönguna. Hjalti var að
skipuleggja Druslugönguna þegar
þau bjuggu saman og hann kynnti
Evu fyrir göngunni: „Það var al-
gjör blessun þegar Eva bað um að
vera með. Eva lætur engan vaða
yfir sig og er mjög til í að synda á
móti straumnum með puttana á
lofti. Samfélagið og umræðan var
ekki á þeim stað sem hún er í dag
og að fá fluggáfaða baráttukonu
af gamla skólanum í hópinn skipti
miklu máli.“
„Gerum við nokkuð annað Eva?
Tökum þátt í prófkjörum? Reynum
við sömu mennina?“ segir Hjalti við
Evu og hlær.
Vinasamband Evu og Hjalta byrjaði í tengslum við framhaldsskólapólitík. Mynd | Rut
Vináttan: Druslur sem reyna við sömu mennina
Allir eiga þessa eina
ljótu flík sem annað
hvort liggur aftast í
fataskápnum sem
gleymist alltaf að
henda eða uppáhalds
þvottadagsflíkina
sem enginn léti sjá sig
í á götum bæjarins.
Flestum þykir vænt um
þessar flíkur og tengjast
þeim tilfinningalega.
Gunnar, Adda og Katrín
Helga útskýra fyrir lesend-
um hvernig þessi flík
kom til og fagna ljótleika
hennar.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Gunnar Helgi Guðjónsson
„Laugavegur, seinni partinn á sólrík-
um haustdegi fyrir um sex árum.
Það var mjög heitt og mig vantaði
eitthvað létt til að vera í. Þykki
jakkinn sem ég klæddist var mjög
íþyngjandi. Þá rambaði ég á bolaslá
á gangstéttinni sem var við hliðina
á tveimur ísbjörnum. (Þetta var fyrir
tíð ferðamanna og allt á standinum
kostaði 990 krónur.)
Ég keypti stærsta lundabolinn og
hef átt hann síðan. Hann er þægi-
legur þrátt fyrir ákveðinn ljótleika.
Praktíkin bjargaði honum í tilraun
minni til mínímalísks lífsstíls, þar
sem þrír svartir ruslapokar af fötum
enduðu í Sorpu.
Ég nota bolinn samt aðallega
í einrúmi.“
Adda Guðrún Sigurjónsdóttir
„Í nýju vinnunni minni í fyrra áttum við öll að mæta á hverj-
um föstudegi í jólapeysu. Ég var eitthvað auralítil og tók því
gamla Coca Cola peysu og saumaði á hana fullt af jólatrés-
skrauti og gömlum jóladúk. Hún er hrikalega ljót.“
Katrín Helga
Andrésdóttir
„Þá daga sem ég fer
ekki út úr húsi, fer ég
heldur ekki úr þess-
um slopp. Hann er
hlýr, mjúkur og það
er auðvelt að handa
honum yfir sig.
Stundum sef ég í
honum þegar það
er kalt.
Sólgleraugun
set ég bara upp
þegar ég er langt
frá siðmenningunni.
Til dæmis uppá
jökli. Mamma segir
að þau séu betri vörn
en hipstera sólgleraug-
un mín.“
Ljótasta
flíkin
Adda í hrikalega
ljótu peysunni sinni.
Mynd | Rut.
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900