Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 17.09.2016, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 17.09.2016, Qupperneq 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. september 2016 25 ár frá tónlistarsprengju Það var líf í tónlistarút- gáfunni fyrir 25 árum. Þá streymdu á markað plötur sem hafa síðan talist sígildar. Septembermánuður árið 1991 var ótrúlega gjöfull þegar kom að tónlistarútgáfu í Bretlandi og Bandaríkjunum. Margar sí- gildar og áhrifamiklar plötur heimsfrægra tónlistarmanna litu dagsins ljós. Sumt er vel heppnað vinsældapopp sem enn virkar, annað framsækin tónlist sem mótað hefur tónlistarfólk og tónlistaráhugamenn sem nú eru að ná miðjum aldri. Yngra fólk, sem ekki þekkir til verkanna, gæti gert margt vitlausara en að tékka á einhverju af þessari tón- list, sem öll kom út í september 1991. | gt Sjálfsmeðvitund leikarans og þjóðarkrísa Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Verkið er eftir Marius von Mayenburg og er frá 2010. Ég vann það með hljómsveitinni Evu og fjórum leikurum. Verk- ið var upprunarlega unnið með leikurum sem unnu með sjálfa sig í ferlinu. Við sprengdum það upp og tókum inn okkur sjálf,“ segir Gréta Kristín. Sjálfsmeðvitund leikarans Í sýningunni er unnið með blekk- ingu leikhússins og sjálfsmeðvit- und leikara gagnvart áhorfendum. Sýningin í heild sinni er meðvituð um eigin sviðsetningu og leita leik- arar við að ná stjórn á aðstæðum og eigin birtingamynd. „Það verða á köflum svolítið súrar aðstæður og alveg viðbjóðslega fyndnar og misheppnaðar. Ferlið hefur snúist um að ganga alltaf lengra inn í klisjurnar og ganga nær okkur sjálfum og hugmyndum okkar um okkur sjálf, bæði sem manneskjur og sem Íslendinga.“ Krísa þjóðarsálarinnar Verkið er innblásið að atburð- um síðasta vors, Panamaskjöl- in og stöðu stjórnmálamanna í samfélaginu. „Leikararnir eru alltaf að reyna að vera vinsæl- astir í sýningunni eða vera mesta fórnarlambið eins og stjórnmála- mennirnir okkar. Við vildum með þessu verki ávarpa það hvað keppnin í samfélaginu í dag er skökk. Við tölum beint inn í krís- una sem íslenska þjóðarsálin lendir í. Misskiptingin er alltaf að aukast og við erum alltaf að horfa á stærri þversagnir. Við erum stolt af náttúrunni, samt viljum við virkja hana. Við prísum okk- ur af menningu sem þjóðararfi en sveltum svo listir og menn- ingu. Við hendum hælisleitend- um heim en tökum alltaf af móti fleiri ferðamönnum. Við erum að spyrja hvort við getum enn sagt að við séum best í heimi. Við not- um myndlíkingu leikhússins til að ávarpa þetta.“ Hvernig er að vera nýútskrifuð og strax komin með verk í leikhúsið? „Allt hefur gerst svo hratt að það er ekki alveg tími til að hugsa en þetta er allt saman smá svakalegt. Ég er að fást við verkefni og sett inn í hlutverk sem eru ekki beint kennd í skólanum. Mér er bara hent beint í djúpu laugina og það er bara kominn tími til að byrja að synda.“Grétu er hent beint út í djúpu laugina. Mynd | Rut Gréta Kristín Ómarsdóttir útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands nú í haust. Útskriftarverk hennar Stertabenda er strax komið á svið Þjóðleikhúsins. Kormákur Örn Axelsson leyfði Fréttatímanum að skyggnast í draslskúffuna sína og útskýrir til- gang hennar. „Skúffan er geymsla fyrir dót og drasl sem maður finn- ur þegar maður arkar um götur og búðir Reykjavíkur og finnst vera algjör fjársjóður. En þegar maður kemur heim fattar maður að fjár- sjóðurinn hefur sennilega engan almennilegan tilgang á heimilinu. Í stað þess að henda slíku er gott að eiga hirslu sem verður bara skemmtilegra að róta í þegar fram líða stundir.“ Dót af öllum toga finnst í skúff- unni hans Kormáks og frá hinum og þessum áfangastöðum: „Í skúff- unni minni er bensínkveikjari sem merktur er herstöðinni í Keflavík. Draslskúffa Kormáks Við mamma fund-um hann í göngutúr um hávetur, fros- inn í klaka skammt frá heimili okkar. Slíkum fjár- sjóði fer mað- ur nú ekki að henda. þó hann sé ekki endi- lega stofustáss. Í skúffunni minni er einnig samansafn penna sem enginn veit hvaðan raunverulega koma. Þeir einfaldlega dúkka upp í vösum eða töskum og enda flestir í draslskúff- unni. Svo er í henni yddari merkt- ur MTV, ansi skrautlegur, en ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvernig ég komst yfir hann.“ | hdó Flestir eiga eina skúffu sem allt drasl heimilisins lendir í. Allskonar gersemar geta leynst í skúffunni. Draslskúffa Kormáks. Mynd | Hari Kormákur með gersemar sínar. Mynd | Hari Nirvana Nevermind Red Hot Chili Peppers Blood Sugar Sex Magik Hole Pretty on the Inside Talk Talk Laughing Stock Guns N’ Roses Use your Illusion I & II Mariah Carey Emotions Orbital Orbital Saint Etienne Foxbase Alpha A Tribe Called Quest The Low End Theory MC Lyte Act Like You KnowSEPTEMBER TILBOÐ

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.