Fréttatíminn - 24.09.2016, Page 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016
Skólamál Veikindi hjá
grunn- og leikskólakennur-
um hefur aukist verulega
á síðustu þremur árum.
Reykjavíkurborg hefur
ákveðið að rannsaka málið
sérstaklega, en formaður
Kennarafélags Reykjavíkur
segir hluta af vandanum
mega rekja til mikils álags.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Mikil aukning hefur verið á
skamm- og langtímaveikindum
kennara í Reykjavík en langtíma-
veikindi leikskólakennara hafa far-
ið upp um nær helming á þremur
árum.
45% aukning hefur verið á veik-
indum leikskólakennara frá árinu
2012 og 37% aukning hefur orðið
á langtímaveikindum kennara á
sama tímabili, samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg. Í krón-
um talið jókst kostnaður borgar-
innar vegna langtímaveikinda
grunnskólakennara um 70 millj-
ónir króna á aðeins þremur árum.
Kostnaður borgarinnar vegna
þessa hleypur því á hundruðum
milljóna, en borgin setti meðal
annars 270 milljónir króna í skóla-
kerfið þegar þeir tilkynntu um
myndarlega innspýtingu í síðustu
viku til þess að mæta auknum halla
í rekstri skólanna sem hafa mátt
þola langt og strangt aðhald.
Þessi mikla aukning á veikindum
á skömmum tíma er sérkennileg.
Svo sérkennileg að Skúli Helgason,
formaður skóla- og frístundarráðs
Reykjavíkurborgar, segir tilefni til
þess að rannsaka hverju þetta sæt-
ir.
Rósa Ingvarsdóttir, formaður
Kennarafélags Reykjavíkur, segir
fréttirnar koma sér á óvart, tölurn-
ar séu háar.
„Án þess að ég geti stuðst við
einhver vísindaleg gögn, þá veit
maður samt þetta: Það er gífurlegt
álag á kennurum auk þess sem
stoðkerfisvandamál, eins og bak-
meiðsl og annað í þeim dúr, eru
algeng.“
Hún segir veikindin hugsanlega
sjúkleikamerki á vinnuaðstæðum
kennara, sem einkennast af gífur-
legu og langvarandi álagi.
„Samfélagið er orðið mun
flóknara og skólarnir endurspegla
það auðvitað. Skólarnir eru með
mörg þjóðerni og eru án aðgrein-
ingar, og svo lífleg flóra kallar á
mikla peninga ef við ætlum að
sinna starfinu vel. Án þessara pen-
inga verður mikið álag í skólun-
um,“ segir Rósa.
Hún segir kennara almennt
þreytta auk þess sem meðalaldur
fer hækkandi og er nú nær fimmtíu
árum. Álagið hefur verið slíkt að
þeir eru orðnir langþreyttir. „Svo
er einnig nokkuð rætt um kulnun,“
segir Rósa og á þá við þegar starfs-
menn brenna hreinlega út. Þá geta
þeir farið í Virk sem er nokkurs-
konar endurhæfingarúrræði.
Hún segir Kennarafélag Reykja-
víkur ekki hafa rætt stöðu mála
sérstaklega þegar kemur að veik-
indum kennara, „en við förum nú
samt oft yfir stöðuna. Og það er
samdóma allra að verkefnin séu að
þyngjast allverulega,“ segir Rósa.
Álag á kennurum er orðið slíkt að það getur verið ein skýringin á mikilli aukningu
langtímaveikinda sem kostar útsvarsgreiðendur hundruð milljóna á ári hverju.
Mynd | Getty
Veikindi kennara hafa
stóraukist á þremur árum
Rósa Ingvarsdóttir,
formaður kennara-
félags Reykjavíkur,
segir kennara þurfa
að þola mikið álag í
starfi sínu.
Ekki er gert ráð
fyrir framboði til
formanns í dagskrá
þótt Sveinbjörn Eyj-
ólfsson hafi staðfest
framboð sitt.
fjallaði um jarðarkaupin í síðustu
viku en Ingimar vann með skuld-
settar bújarðir í starfi sínu í ráðu-
neytinu. Kaupverðið var 85 milljón-
ir og er jörðin veðbandalaus.
Í þeirri umfjöllun kom fram að
jörðin hefði verið skráð og seld í
gegnum fasteignasala í Borgarnesi.
Í vinnureglum um sölu fasteigna hjá
Arion banka segir meðal annars:
„Þegar fasteignasölur hafa fengið
eign til sölu ber þeim að auglýsa
eignina á heimasíðu sinni og á út-
breiddum fasteignavef.“ Fréttatím-
inn hefur ekki náð í fasteignasal-
ann í Borgarnesi, Inga Tryggvason,
til að spyrja hann um sölu eignar-
innar. Ingi hefur í gegnum árin
unnið oft fyrir Arion banka við sölu
fasteigna.
Vel kann að vera að jörðin hafi
verið auglýst til sölu, líkt og regl-
ur bankans gera ráð fyrir, en Arion
hefur ekki sýnt fram á það.
Fasteignir sem Arion banki tekur yfir á að auglýsa. Bankinn hefur ekki getað
sýnt fram á að Grímstunga í Vatnsdal hafi verið auglýst áður en hún var seld til
Ingimars Jóhannssonar árið 2012.
Auglýsing
um jörðina
í Vatnsdal
finnst ekki
Viðskipti Grímstunga í
Vatnsdal var seld til skrif-
stofustjóra í landbúnað-
arráðuneytinu á 85 milljónir
króna 2012. Arion banki hef-
ur ekki fundið auglýsinguna
um jörðina.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Auglýsing um jörðina Grímstungu
í Vatnsdal sem Arion banki seldi til
Ingimars Jóhannssonar, þáverandi
skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu, finnst ekki samkvæmt
svari frá bankanum. Fréttatíminn
Sakamál Þolandi hrotta-
legrar árásar í Vestmanna-
eyjum birti myndskeið af
áverkum sínum á Facebook
á fimmtudag. Ekki hefur
verið farið fram á áfram-
haldandi gæsluvarðhald
yfir grunuðum manni vegna
árásarinnar.
Konan sem varð fyrir fólskulegri
líkamsárás í Vestmanneyjum um
síðustu helgi hefur birt stutt mynd-
brot af áverkum sínum á Facebook.
Þar má sjá að konan er afmynduð
eftir árásina sem átti sér stað að-
faranótt sunnudags.
23 ára gamall Vestmannaeyingur
situr í gæsluvarðahaldi sökum máls-
ins en sá hefur neitað sök. Mann-
inum er gefið að sök að hafa mis-
þyrmt konunni með hrottafengnum
hætti, meðal annars sparkað í and-
lit hennar. Grunur leikur á að hann
hafi einnig beitt hana kynferðis-
legur ofbeldi
Konan fannst við illan leik
skammt frá skemmtistaðnum nokk-
ur eftir að honum hafði verið lok-
að. Þá hafði verið tilkynnt um málið
til lögreglu, en hún sinnti því ekki
fyrr en nokkru síðar. Nágranni kom
auga á konuna, þar sem hún lá nak-
in í sárum sínum, og kom henni til
aðstoðar.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
staðfestir að konunni hafi verið
skipaður réttargæslumaður og að
henni hafi verið boðin margvísleg
aðstoð sem hún hafi ekki þegið. Þá
hefur ekki verið tekin ákvörðun
hvort farið verði fram á lengra varð-
hald yfir manninum, en gæsluvarð-
haldið rennur út síðdegis í dag.
Mikil reiði er á meðal Vestmanna-
eyinga vegna málsins, en fram kom
í samtali við þá í Fréttatímanum í
gær að þeir teldu árásina afar ófyr-
irleitna, þá helst vegna þess að kon-
an stendur höllum fæti félagslega
og á erfitt með að bera hönd fyrir
höfuð sér. | vg
Líkamsárásin virðist hafa byrjað á Lundanum, þar sem maðurinn á meðal annars
að hafa dýft andliti hennar ofan í öskubakka.
Afmynduð eftir hrottalegt
ofbeldi í Vestmannaeyjum
Krísufundur um stöðu flokks og formanns
Sigurður Ingi
Jóhannsson
hraðar sér úr
þinghúsinu.
Mynd | Rut
Stjórnmál Sigurður Ingi
Jóhannsson býður sig fram
í fyrsta sæti Framsóknar-
flokksins í Suðurkjördæmi
á tvöföldu kjördæmisþingi
Framsóknarflokksins í dag,
laugardag. Fastlega er búist
við því að skorað verði á
hann að bjóða sig fram til
formennsku á flokksþinginu
í byrjun október. Þingflokk-
urinn lýsti yfir stuðningi við
Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son í gær.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans hefur Sigurður Ingi rætt við
stuðningsmenn sína að undan-
förnu. Þeir segjast bjartsýnir á að
hann muni fara fram. Frammistaða
Sigmundar Davíðs í leiðtogaumræð-
um á RÚV, þar sem Wintris-málið
var fyrirferðarmikið, þykir fremur
ýta undir framboð Sigurðar Inga.
Staða Sigmundar Davíðs og
flokksins var rædd á þingflokks-
fundi Framsóknarflokksins í gær,
föstudag, daginn eftir umræðurnar.
Fundurinn var þungur og erfiður,
samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans. Sigurður Ingi yfirgaf fundinn
laust eftir klukkan þrjú en aðrir
þingmenn sátu áfram í tvo tíma
til viðbótar. Sigurður Ingi hraðaði
sér úr þinghúsinu og gaf ekki færi
á spurningum og vék sér undan
spurningum fréttamanna en eftir
fundinn var því lýst yfir að sam-
þykkt hefði verið að lýsa yfir fullum
stuðningi við Sigmund Davíð
Sveinbjörn Eyjólfsson á Nauteyr-
um í Borgarfirði hefur boðið sig
fram til formanns gegn Sigmundi
Davíð en hann segist hafa rekið aug-
un í að ekki væri gert ráð fyrir for-
mannskjöri í dagskrá fundarins og
gert athugasemd við það við skrif-
stofu flokksins á þriðjudag. Skrif-
stofan hefur þó ekki enn breytt dag-
skránni. „Ég ímynda mér að þetta
hafi sé fljótfærni fremur en her-
fræði,“ segir hann.