Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.09.2016, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 24.09.2016, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016 vélum og reiðbuxum tók undir með honum. En sá sem þýðist að- eins eigin rödd var líka mættur og með gali sínu yfirgnæfði hann út- færslu litla kórsins í kringum fjall- kónginn á þessu vinsæla lagi. En hver í ósköpum er þessi María? Galsafengin hestamennska „Það eru fáir sem ná að lifa af hrossarækt eingöngu. Þetta er ákaflega tímafrek atvinnugrein og að mestu er það óbilandi áhugi á hrossum og ástríðan sem rekur fólk áfram. Allflestir hér í sveitinni eru með þetta sem hliðarbúgrein og starfa við annað meðfram. Hjónin Guðlaug og Jón Ragnar, eða Gulla og Nonni eins og allir þekkja, eru þó undantekning og reka hestaleiguna Galsa á Blöndu- ósi. „Við riðum fyrsta daginn með hópi af íslenskum ferðamönnum frá Húnaveri og upp í Þverárdal og þaðan yfir í Gautsdal. Frá Gautsdal riðum við síðan yfir í Kirkjuskarðs- rétt þar sem við sameinuðumst öðrum ferðalöngum og gangna- mönnum,“ segja þau hjón okkur og halda áfram. „Þetta er vinna og mikil fjárfesting, t.d. í hnökkum og reiðtygjum. Svo þarf auðvitað að járna öll þessi hross. En þetta er mjög skemmtilegt og við erum ákaflega ánægð með að aðsóknin í hestaleiguna okkar (aðallega á sumrin) hefur aukist um 100% frá því í fyrra. Það er gefandi að standa í þessu öllu og þetta skilar sér í ákaflega glöðum viðskiptavinum sem hreinlega bara knúsa mann í bak og fyrir eftir reiðtúrana,“ segja þau Gulla og Nonni og eru rokin af stað í að sinna hópnum sínum. Sumarhýran Tveir ungir menn vappa í kring- um hestinn Svala sem er orðinn 25 ára og er bundinn í múl. Þeir setjast á hann berbakt til skiptis og klappa honum og mæra gott geðslagið. Fleiri karlar blanda sér í hópinn og virða Svala fyrir sér og skiptast á lýsingarorðum um útlit og karakter. Svali er frekar hissa eftir öll þessi ár að fá skyndi- lega svona ómælda athygli, en hann hefur varla þurft að ganga við skeifu síðan hann skildi við eiganda sinn fyrir 22 árum. Svali var bara folald og Brynjólfur ung- lingur þegar sá síðarnefndi fékk hann í vinnulaun um haustið eftir gott sumar á Geitaskarði. Svali fór hinsvegar hvergi og varð eftir í um- sjá Sigurðar frænda Ágústssonar á Geitaskarði á meðan Brynjólfur Stefánsson, eða Bryn eins og hann er kallaður í New York af kollegum sínum hjá Stanley Morgan, fór út í heim að mennta sig og vinna í við- skiptageiranum á Manhattan. Svalur hafði notið sumarsins í Laxárdal þetta árið eins og svo mörg önnur hross og kom því með stóðinu niður í Kirkjuskarðsrétt. Siggi frændi tók sig til og járnaði hestinn á staðnum. Það mátti lesa úr andliti Brynjólfs að hann var ekki alveg jafn yfirmáta ánægður með þetta ráðslag og Siggi frændi, en það var augljóst að Brynjólfur hafði ekki annað val en að taka upp þráðinn við Sval og ríða hon- „Hestahvíslarinn“ Una Ósk Guðmundsdóttir fermdist á síðasta ári og er þegar byrjuð að temja hestana í sveitinni. 15 smalamenn ráku 350 hross niður í Kirkjuskarðsrétt um síðustu helgi, sem höfðu notið sumarsins í Laxárdal. Stelpurnar í anddyrinu búa sig undir að stíga á dansgólfið í félagsheimilinu á Blönduósi í lok annasams dags í réttunum. um niður í Skrapatungurétt. Í Skrapatungurétt, þegar allt var yf- irstaðið, brosti Brynjólfur hringinn og reiðin á Svala gamla gekk vel, „eins og í sögu“. Hestahvíslarinn „Hestahvíslarinn“ Una Ósk Guð- mundsdóttir, sem fermdist í fyrra og stundar nám við Grunnskólann á Blönduósi, gæti vel verið systir Sölku Völku ef hún væri skáldsaga. „Una er mögnuð segir Edda Vig- dís, stöðvarstjórinn á N1 á Blöndu- ósi. „Una hefur einstakt lag á hest- um og er þegar byrjuð að temja. Hún hefur alltaf verið á hesti, ég man eftir henni sem litlu barni ríðandi berbakt en hún er mikið „talent“ og á þetta milliliðalausa samband við hestinn sinn. Una geislar af himneskri ham- ingju og það er dagsatt að það dró frá sólu í fyrsta sinn á þessum degi þegar Una birtist í Skrapatungu eftir reið dagsins með Guðmundi, pápa sínum, sem nælir sér í flís af hákarli. En það eru hjónin í Skrapa- tungu, þau Benedikt og Guðrún, sem eru svona gestrisin og hafa alltaf opið hús fyrir reiðmennina á þessum síðasta áfangastaða dags- ins. Bolla og hárkarl í boði hjón- anna í Skrapatungu. Brjóstagjöfin í miðri reið Fjölmiðlafólkið frá Kaupmanna- höfn, þau Dagný Kristjánsdóttir ættuð frá Breiðavaði og Kristian Jensen frá Árhúsum, tóku þátt í réttunum með hálfs árs gamlan son sinn. Að vísu hossuðust feðgarnir í bíl á eftir Dagnýju sem reið á eftir stóðinu í gegnum þetta hrjóstruga landslag sem er ekki sjálfgefið að nokkrum þyki fallegt nema hinn sami hafi alist hérna upp og bund- ist þessum þúfum af samúð og væntumþykju yfir tryggð þeirra um að láta kyrrt liggja þrátt fyrir að sveitastúlkan komi æ sjaldnar að vitja þeirra. Foreldrarnir og „lillemand“, sem búa á Nörrebro í Kaupmannahöfn, skruppu heim í haustið til þess að sýna íslensku fjölskyldunni á Breiðavaði nýja manninn og þá var ákveðið að skella sér í rétt- irnar. Dagný reið á hestinum sín- um og Kristian keyrði á eftir með „lillemand“. Fjölskyldan sameinað- ist á áningarstöðum og Dagný fann næstu laut og skellti „lillemand“ á brjóst. Systurnar Reiðtúrinn sjálfur endar í Skrapa- tungurétt þar sem hrossin bíða yfir nótt þar til réttað verður að morgni sunnudags. „Það er nauðsynlegt að mæta á ballið í kvöld, það er hluti af stóðréttarstemningunni,“ segja systurnar í kór, þær Sara og Ragn- heiður Kristjánsdætur frá Blöndu- ósi. Sara en nýflutt aftur heim eftir nám fyrir sunnan og er nýtekin við stöðu félagsmálastjóra sýslunnar og Ragnheiður býr með sjómanni og börnum í Grundarfirði. „Það er líkt og óklárað verk að mæta ekki á ballið í Félagsheimilinu í kvöld.“ Lýkur dagsverkinu með trukki Trukkarnir standa á sviðinu í gamla félagsheimilinu á Blöndu- ósi. Allt eru þetta bændasynir úr sveitinni, utan einn sem er frá Blönduósi og spilar á harmónikku og hljómborð. „Sveitarfélögin fjög- ur í sýslunni ættu að taka sér þessa drengi til fyrirmyndar og samein- ast. Það yrði meira trukk í því fyrir íbúa svæðisins,“ segir einn aðdá- andi hljómsveitarinnar. „Komdu sæll og blessaður“ Lagið „Mustang Sally“ hljómar frá Trukkunum og fólk flykkist á „Það er líkt og óklárað verk að mæta ekki á ballið í Félagsheimilinu í kvöld.“ Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.