Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 24.09.2016, Blaðsíða 24
Saga Andra Snæs Magna-sonar af viltu og frjálsu geimbörnunum, sem lifa á bláum hnetti langt úti í geimnum, ratar nú aftur á leiksvið. Ný uppsetning á Sögunni af bláa hnettinum verður frum- sýnd í Borgarleikhúsinu í dag. Uppfærslan er mikil litasprengja en litríkir búningar leika stórt hlutverk í uppfærslunni. „Þetta er heillandi heimur sem ég fæ að vinna með og taka þátt í að upplifa,“ segir María Th. Ólafs- dóttir búningahönnuður sem fékk það spennandi verkefni að hanna búninga í sýninguna, meðal annars á þau tuttugu og tvö börn sem taka þátt í sýningunni. „Þess- ir krakkar eru allir fullir af lífi og fjöri, frábært ungt hæfileikafólk og það eru mikil forréttindi að vinna með þeim.“ Margir þekkja vel til Sögunnar af bláa hnettinum, sem sló í gegn um síðustu aldamót og hefur ratað víða um lönd. „Ég hef auðvitað lesið bókina fyrir börnin mín,“ segir María. „Mér finnst hún alveg frábær og hún hefur skilaboð sem eru svo mikilvæg í dag. Áherslan á náungakærleikann er dýrmæt og það að fara vel með þetta heimili okkar, hnöttinn. Þetta hittir beint í mark og við þurfum að hlusta og taka þetta alvarlega.“ Það er gleðin sem María leggur mesta áherslu á í litríkum bún- ingum sýningarinnar. „Þó að ógn steðji að þá kemur hún að utan inn í heim sem er algóður og bjartur. Ég vildi því hafa þetta ljóst og bjart. Í vor hafði ég verið að lesa um sjaldgæfa fugla sem fundust á eyju í suðurhöfum. Hver einasti þeirra var sérstakur og þetta kveikti eitthvað í mér. Ég sá fyrir mér að börnin væru eins og einstakir geimfuglar, hvert með sitt sérkenni.“ Þegar kom að hönnun bún- ingana kom endurvinnsla upp í huga Maríu, í takt við náttúru- verndarboðskap verksins. „Hér í Borgarleikhúsinu eru auðvitað til ógrynni af afgöngum af fallegum efnum. Ég fór í gegnum þá og tók mér til handargagns það sem greip augað og flokkaði niður í hrúgur. Þetta varð bráðskemmtileg fjár- sjóðsleit sem ég fór í og teiknaði svo búningana út frá hrúgunum. Á endanum verður hver karakter til úr einni hrúgu. Þetta var ekki auðvelt en saumastofan hér í hús- inu gerði náttúrulega kraftaverk í að koma þessu saman. Úr verð- ur undraheimur sem er í takt við verkið og söguna.“ | gt. 24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 24. september 2016 Suðrænir fuglar mótuðu búninga á bláa hnettinum Sýningin á Sögunni af Bláa hnettinum í Borgarleikhúsinu er mikil litasprengja. Ljós og litríkir búningar setja mikinn svip á sýninguna. Mynd | Grímur Bjarnason María Th. Ólafsdóttir, búningahönnuð- ur, tekur þátt í að skapa litríkan heim í sýningunni um börnin á bláa hnettin- um. Hún leitaði til suðurhafa eftir innblæstri. Mynd | Rut Hvað fólk spyr um á stefnumót- um veltur á ýmsu, til dæmis aldri og reynslu þeirra sem tala saman og vilja kanna rómantískan áhuga hins aðilans. Það er ekki óalgengt að spurningarnar byrji á orðun- um: Hvert er uppáhalds X þitt? Þá er oft spurt um kvikmyndir, leik- ara, liti og ekki síst tónlist. Það er gömul saga og ný að tónlistin getur brætt saman hjörtun. Nú hefur stefnumótaappið Tinder, sem leynist í símum fjöl- margra nú til dags, tengt sig við tónlistina og þar með mögulega komið í veg fyrir slatta af vand- ræðalegum samtölum þegar not- endur þess hittast í raunheimum. Um er að ræða samstarf Tinder og Spotify tónlistarveitunnar, þar sem notendum er leyft að bæta uppáhalds laginu sínu við prófíl- inn sinn í appinu. Notendur þurfa ekki að vera áskrifendur tónlist- arveitunnar til að geta spilað sín einkennislög fyrir vonbiðlana. Á Tinder eru um 50 milljón virkir notendur, þannig að víst er að tón- listarsmekkurinn hjá öllum þeim fjölda er nokkuð breiður. Tónlist hefur í gegnum tíðina reynst mörgum ágæt leið til að brjóta ísinn og þarna er því komin ný leið til að sigta út vitleysing- ana. | gt Fimm lög sem gætu unnið gegn manni á Tinder I Was Made For Loving You Kiss Slakaðu aðeins á félagi. I Put a Spell on You Nina Simone Ertu norn? I Will Always Love You Whitney Houston Full ákaft val. Ertu alveg viss? I Wanna Sex You Up Color Me Badd Ok, alveg rólegur félagi! Every Breath You Take The Police Jæja. Þetta er verulega krípí! Tónlistin á Tinder Allir vita að tónlistar­ smekkur getur skipt sköpum við makaleit. Nú hefur nútíma tólið við þá leit, tilhuga lífsappið Tinder, tekið þessa stað­ reynd til skoðunar og bætt þjónustuna. Þar ætti því að vera auðveldara að sigta út í framtíðinni. Tónlistarsmekkur getur haft áhrif á rómantíkina. Nú kemur Tinder til hjálpar eða flækir þetta bara enn frekar. Erfitt getur verið að finna réttu myndina í hinu enda­ lausa og frábæra úrvali Riff kvikmyndahátíðarinnar og vill því Fréttatíminn auðvelda þér valið. Í boði er fjöldinn allur af róman­ tískum kvikmyndum frá öllum heimshornum sem mælt er með til að ylja köldu hausthjarta. Kvikmyndirnar sem gætu glatt rómantíkerinn á Riff eru til dæm- is norska myndin Allt hið fagra/ Alt det vakre, eftir Aasne Vaa Greibrokk um par sem hittist á ný eftir 10 ár og erfið sambandsslit og Sundáhrifin/L’effet aguatique, eftir Sólveigu Anspach og Jean-Luc Gaget. Hún er um Samir sem skrá- ir sig á sundnámskeið, vel syndur, til að heilla konuna sem hann er skotinn í. Fréttatíminn er helst spenntur að sjá myndina Dýrafræði/ Zoology, eftir Ivan I. Tverdovsky. Myndin fjallar um miðaldra starfs- mann dýragarðs sem býr enn með móður sinni, henni Natöshu sem óvænt vex á hali. Natasha nýtir hinn nýja líkamspart til þess að endurskilgreina sig sem mann- eskju, sem konu. Hún ákveður að skammast sín ekki fyrir halann og ákveður að byrja í sambandi með manni sem finnst hún vera aðlað- andi og skoðar hvernig er að vera kynþokkafull með þennan nýja líkamspart. Hvernig hagar kona sér með hala ástarlífi sínu? Rómantískt Riff: Hvernig hagar kona sér með hala ástarlífi sínu? Natöshu vex óvænt hali í myndinni Zoology

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.