Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.09.2016, Qupperneq 39

Fréttatíminn - 24.09.2016, Qupperneq 39
 „Þegar ég lygni aftur augunum og hugsa: „Hvernig gæti Reykjavík orði enn þá betri,“ er bara eitt sem kem- ur upp í hugann: Bar með ónýtri þvottavél út á miðju gólfi. Ég er búin að vera að horfa svo mikið á bresku sjónvarpsþættina Peep show. Vinur minn reyndi lengi að fá mig til að horfa á þá en ég hélt, út af nafninu, að þeir væru um strípisýningar og ég er löngu búin að fá minn æviskammt af þeim. En svo ákvað ég loksins að gefa þeim séns og vá hvað ég hef skemmt mér mikið yfir þeim. Ein vinkona mín hefur verið að suða í mér að horfa aftur á Friends þættina en mér leiðast svona þættir um fallegt, vel innrætt fólk sem er að böggl- ast með öll ástarsamböndin sín og starfsframann. Ekkert í mínu lífi lætur mig tengja við þessi um- fjöllunarefni. En í Peep show, hins vegar, finnst mér bara verið að fjalla um mig og mínar tilfinningar, ég meina: misheppnaðar viðreynslur, ömurlegar ferðir út á land og reyna að taka þátt í 3-some-i en í staðinn fyrir að finnast það gaman langar þig bara að fara að gráta? Það hljómar nú bara nokkurn veginn eins og síðasta vika hjá mér. Ég mæli með því að þið horfið á þá um helgina. Á meðan ætla ég að drösla ónýtu þvottavélinni minni út á mitt stofugólf. Ég er viss um að þá verður enn þá skemmtilegra að detta í það á mánudaginn.“ Sófakartaflan Kamilla einarsdóttir Peep show fjallar um mig og mínar tilfinningar Gestur spjallar við gesti N4 þriðjudag kl. 19.30 Hvítir mávar Hinn kunni fjölmiðlamaður Gestur Einar Jónasson fær til sín skemmtilegt fólk í spjall. Bridget með tvo í takinu og barn í maganum Sambíóin og Laugarásbíó Bridget Jones's Baby Bridget Jones siglir inn í fimm- tugsaldurinn í glænýjum kafla, nú orðin einhleyp, á fullu í rækt- inni og vinnur sem framleið- andi hjá sjónvarpsstöð. Hlutirnir ganga vel og heldur hún ágætu sambandi við fyrrverandi, Mark Darcy, en vinnan og félagslíf- ið hefur forgang hjá henni fram yfir karlmenn. Það tekur þó ekki langan tíma fyrir hana að falla fyrir myndarlegum Ameríkana að nafni Jack sem er allt það sem henni þykir Darcy ekki vera. Lífið hjá Bridget umbyltist enn meira þegar hún kemst að því að hún er ófrísk, en ekki alveg viss um hvor sé faðirinn, nýi kærastinn eða Mark. Garnið tengir okkur Bíó Paradís laugardag kl. 18 Yarn/Garn Hið gamalgróna prjón og hekl er orðið partur af vinsælli bylgju í nútíma og götulist. Við fylgjumst með alþjóðlegu lista- og hand- verksfólki útfæra þetta listform hvert á sinn hátt. Þetta litríka og alþjóðlega ferðalag byrjar á Íslandi og varpar meðal annars ljósi á það hvernig garn tengir okkur öll á einn eða annan hátt. Leikstjóri: Una Lorenzen, Heather Millard, Þórður Bragi Jónsson. Leiðist Friends Kamilla vill frekar horfa á þætti þar sem hún tengir við umfjöllunarefnið. Við ferðuðumst heimshorna á milli í leit að baunum í nýjustu kaffiblönduna okkar. Mikið brennt og kröftugt kaffi sem vekur bragðlaukana. leggur heiminn að vörum þér EXPRESSÓ Dökkur kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a NÝTT …sjónvarp11 | amk… LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.