Fréttatíminn - 17.12.2016, Qupperneq 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Tveimur börnum
vísað úr landi fyrir jól
Hælisleitendur „Við flúðum
spillinguna og ofbeldið, við viljum
bara eiga einhverja framtíð,“
segir Ensa Shiroki, hælisleitandi
frá Makedóníu, en hann hefur
búið hér á landi í þrjú ár ásamt
eiginkonu sinni, Zulejhi, en þau
hafa eignast tvær dætur sem
báðar eru fæddar og uppaldar á
Íslandi. Stúlkurnar heita Hiera
og Asaja, en þær eru tveggja ára
og tíu mánaða gamlar og þekkja
ekkert annað en Ísland. Þær voru
fluttar á sjúkrahús ásamt foreldr-
um sínum fyrir nokkrum vikum
með reykeitrun eftir eldsvoða í
Keflavík.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Ensa og fjölskylda fengu endan-
lega neitun frá Útlendingastofnun
nýlega og verða þau flutt á brott
skömmu fyrir jól, beint aftur til
Makedóníu ef ekkert verður að-
hafst. Þau vita ekki hvenær þau
verða flutt á brott, ekki frekar aðrir
hælisleitendur sem þurfa að bíða í
von og ótta eftir að fá símtal frá Rík-
islögreglustjóra um brottflutning.
Ensa er menntaður leikskóla-
kennari á meðan Zulejhi lærði
tannlækningar í Skopia, þar sem
þau bjuggu áður. Þau kynntust í
enskutíma en bæði tala þau ensku
reiprennandi. Þá hefur Ensa lært
hrafl í íslensku, enda segist hann
hrifinn af íslenskri menningu og
sögu.
Það er óhætt að segja að mikið
hafi gengið á hjá fjölskyldunni á ein-
um mánuði.
„Það kviknaði í hjá okkur um
daginn og við þurftum að fara á
spítala vegna þessa,“ segir Ensa en
fjölskyldan býr við Hafnargötu, í
sama húsi og íslensk kona kveikti
eld í og varð til þess að fjöldi íbúa,
þar af nokkur börn, þurftu að leita
á sjúkrahús vegna reykeitrunar fyrr
í mánuðinum.
„Zulejhi datt á leiðinni út og á
erfitt með að ganga núna,“ segir
Ensa sem bætir við að læknir hafi
skrifað vottorð til Útlendingastofn-
unar, þar sem beðið var um að
brottvísun hennar yrði frestað ef
hægt væri að koma því við, vegna
meiðsla hennar. „Þeir hlustuðu ekk-
ert á það,“ segir Ensa.
Eldur átti eftir að koma aftur við
sögu hjá fjölskyldunni, nú af alvar-
legri ástæðum. Ungur karlmaður
frá Makedóníu kveikti í sér sjálfum
í Víðinesi á dögunum, en Ensa frétti
fljótt að maðurinn hefði verið ná-
granni hans í Skopia.
„Ég þekki bróðir hans vel, þannig
ég hringdi í hann og lét vita af stöðu
mála,“ segir Ensa sem var kunn-
ingja sínum innan handa á þessum
erfiðu tímum.
„Það var hræðilegt að heyra þess-
ar fréttir. Hann var góður maður,“
segir Ensa um manninn sem lést.
Ensa segist hafa flúið óróleika í
Makedóníu og gjörspillta menningu
sem viðgengst þar í landi. Hann
sagðist hafa ítrekað orðið fyrir árás-
um fanta sem njóta verndar ríkis-
stjórnarinnar og vaða uppi og beita
fólk ofbeldi án þess að nokkur geri
neitt í því.
„Að lokum lenti ég í mjög fólsku-
legri líkamsárás árið 2013, sem varð
til þess að ég endaði á spítala,“ seg-
ir Ensa en ástæðan var sú að hann
hvatti vini og kunningja til þess að
mæta á mótmæli gegn ríkisstjórn-
inni og spillingu í landinu.
Aðspurður hvort Íslendingar
skilji ekki til fulls neyð íbúa frá
landinu, en Útlendingastofnun
hefur skilgreint landið sem öruggt
land, svarar Ensa játandi.
„Þarna vaða uppi fantar sem
ganga í skrokk á fólki. Einstaklingar
eru myrtir án dóms og laga og þessu
verður varla lýst öðruvísi en sem
landi þar sem þjóðin er kúguð með
ofbeldisfullum hætti.“
Athygli vekur að vísa á fjöl-
skyldunni úr landi en stúlkurnar
tvær eru báðar fæddar hér á landi.
Umboðsmaður Alþingis hefur nú
á borði sínu samskonar mál, þar
sem kannað er hvort það sé lög-
mætt að vísa börnum sem fæðast
hér úr landi. Í lögum segir orðrétt:
„Útlendingi sem fæddur er hér á
landi er óheimilt að vísa frá eða úr
landi hafi hann frá fæðingu átt hér
óslitið fasta búsetu samkvæmt þjóð-
skrá.“
Vandinn er þó sá að stúlkurnar
tvær eru með bráðabirgðaskrán-
ingu, sem veldur því að þær eru
ekki með búsetu samkvæmt þjóð-
skrá, þrátt fyrir að þekkja ekkert
annað en Ísland.
„Þarna vaða uppi fantar
sem ganga í skrokk á
fólki. Einstaklingar eru
myrtir án dóms og laga
og þessu verður varla lýst
öðruvísi en sem landi þar
sem þjóðin er kúguð með
ofbeldisfullum hætti.“
Stúlkurnar eru báðar fæddar hér á landi, en þær lentu í eldsvoða og voru fluttar
á spítala með reykeitrun fyrir skömmu. Mynd | Hari
Benedikt fjörutíufaldaði fjárfestingu sína
Viðskipti Benedikt Jóhannesson
gefur ekki upp hvaða einstak-
lingum hann seldi hlutabréf sín í
móðurfélagi Kynnisferða. Hann
segist hafa hagnast um 44 milljón-
ir króna.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Benedikt Jóhannesson, þingmað-
ur og formaður Viðreisnar, rúm-
lega fjörutíufaldaði fjárfestingu
sína í viðskiptum með hlutabréf í
fyrirtækinu Alfa hf., móðurfélagi
Kynnisferða. Hann segist í svari til
Fréttatímans hafa hagnast um 44
milljónir á hlutabréfunum þegar
hann seldi þau í vor. Áætlað virði
hlutabréfa í Alfa hf., sem er fjöl-
skyldufyrirtæki bræðranna Einars
og Benedikts Sveinssona og ætt-
ingja þeirra, var þá tæplega fjórir
milljarðar króna. Benedikt er ná-
frændi þeirra bræðra.
Fréttatíminn sagði frá viðskipt-
um Benedikts með hlutabréfin í síð-
ustu en þá kom ekki fram hversu
mikill hagnaður Benedikts í við-
skiptunum var. Miðað við það að
hann seldi hlutabréfin á 45,1 millj-
ón hafa hlutabréf hans ríflega fjör-
tíufaldast í verði á liðnum árum en
Kynnisferðir eru eitt stærsta ferða-
þjónustufyrirtæki landsins. Alfa hf.
greiddi út 1398 milljóna arð í fyrra
eftir að selt þriðjung hlutafjárins
til fjárfestingarsjóðs sem meðal
annars er í eigu lífeyrissjóða og fékk
Benedikt 15,8 milljónir af þeirri fjár-
hæð. Fjárfesting hans var því mjög
arðbær.
Benedikt vill ekki gefa upp hvaða
einstaklingar eða fyrirtæki keyptu
hlutabréfin af honum en segir að
það hafi verið aðrir hluthafar í Alfa
hf. „Innan félagsins er forkaups-
réttur að hlutabréfum og nokkrir
forkaupsréttarhafar úr hópi hlut-
hafa nýttu sér þann rétt og keyptu
hlutabréfin.“
Benedikt Jóhannesson hagnaðist um 44 milljónir á hlutabréfunum í Alfa hf. sem
hann seldi á rétt rúmar 45 milljónir króna.
Fjölmiðlar
Íslandsbanki vill lögreglurannsókn
Íslandsbanki ætlar að óska eftir lög-
reglurannsókn á því hvernig gögn
um verðbréfaviðskipti hæstaréttar-
dómara, sem fjallað var um í fjöl-
miðlum, komust í hendur óviðkom-
andi fólks.
Bankinn segir í tilkynningu til
fjölmiðla að málið sé litið alvarleg-
um augum en bankaleynd ríkir um
slík gögn.
Innra eftirlit bankans hefur lok-
ið við að rannsaka málið en niður-
staða þeirrar rannsóknar er að ekk-
ert bendi til þess að umrædd gögn
hafi borist fjölmiðlum frá Íslands-
banka eða starfsmönnum hans.
Gögnin sem til umfjöllunar hafa
verið eru öll gömul og eiga rót að
rekja úr starfsemi Glitnis banka hf.
fyrir hrun.| þká
Innra eftirlit bankans hefur rannsakað
málið.
Stjórnmál Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir, yngsti þingmaður
Alþingis og ritari Sjálfstæðis-
flokksins, fékk langhæstu styrk-
ina í prófkjörsbaráttu sinni af
þeim 14 frambjóðendum flokks-
ins sem hafa skilað útdrætti úr
uppgjöri til Ríkisendurskoðanda.
Áslaug Arna fékk samtals 3.357.000
krónur í styrki vegna prófkjörsins
vegna alþingiskosninga fyrr á þessu
ári.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður flokksins til þrettán ára,
komst næst henni en hann fékk
2.874.241 krónu í styrki. Það segir
þó ekki alla söguna því þar af var
tæplega einnar milljónar króna
framlag frá honum sjálfum með-
an eigið framlag Áslaugar Örnu var
ekkert.
Ásmundur Friðriksson er í þriðja
sæti yfir þá Sjálfstæðismenn sem
fengu hæsta styrki en heildar fram-
lög til hans voru ríflega tvær og
hálf milljón. Hann fékk mest allra í
styrki frá fyrirtækjum, eða tæplega
tvær og hálfa milljón.
Athygli vekur að ólíkt öðrum
frambjóðendum koma styrkir til
Áslaugar Örnu fyrst og fremst frá
einstaklingum en hún fékk tæplega
tvær og hálfa milljón frá einstak-
lingum meðan fyrirtæki styrktu
hana um tæpa milljón. | hjf
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
alþingismaður.Áslaug Arna er
styrkjadrottning
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08