Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 10

Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016 anna hafði hann varað kjósend- ur við því að þeir hefðu „24 stundir til þess að bjarga NHS“. NHS á síðustu árum Á árunum eftir fjármálahrunið og eftir að breski Íhaldsflokkurinn myndaði samsteypustjórn með Frjálslyndum demókrötum árið 2010, hrikti aftur hressilega í stoð- um NHS. Þá lagði Andrew Lansley, þáverandi heilbrigðismálaráð- herra, fram umdeilt frumvarp sem mætti mjög mikilli andstöðu frá starfsfólki NHS. Bæði læknar og yf- irstjórnendur héldu því fram að það myndi gera út af við NHS. Áætlun Lansley var að útrýma hundruðum NHS sjóða sem veittu grunnþjón- ustu innan heilbrigðiskerfisins og í staðinn innleiða það sem einungis er hægt að lýsa sem nokkurs kon- ar einkavæddri læknisþjónustu. Heilsugæslustöðvar í eign lækn- anna og með því átti að færa aukið vald til almennings um val á þjón- ustu. Frumvarpið var gríðarlega umdeilt og fór í gegnum miklar um- bætur eftir að David Cameron setti það í bið, en varð svo að endingu að lögum árið 2013. Brexit og innantóm loforð Heilbrigðiskerfið í Bretlandi hefur alla tíð verið gríðarlega pólitískt deiluefni og var enn og aftur not- að sem pólitísk beita, nú síðast í kosningabaráttunni um veru Bret- lands í Evrópusambandinu í sumar. Brexit fylkingin, sem barðist fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandsins, með Boris Johnsons, fyrrum borgarstjóra London, og Nigel Farage, formann hinna þjóð- ernissinnuðu UKIP, fremsta í fylk- ingu, gaf það út að þær 350 milljón- ir punda sem færu á hverri viku til Evrópusambandsins myndu þess í stað renna beint til NHS. Þessi loforð hafa reynst vera orðin tóm eins og svo mörg önnur loforð og staðhæfingar sem runnu undan rifjum Brexit kosningabaráttunn- ar. Martin McKee, prófessor í lýð- heilsufræði við London School of Hygiene and Tropical Medicine, skrifaði í Guardian í apríl á þessu ári, í aðdraganda kosninganna, að NHS sé betur sett innan Evrópu- sambandsins en utan þess. Hann bendir á í grein sinni að hættan sem steðji helst að NHS sé ekki Evrópu- sambandið heldur standi hin raun- verulega ógn mun nær, það sé fyrst og fremst innanríkismál og að al- mannahagur sé mikill af þeim lög- um og reglugerðum sem koma frá Evrópusambandinu. McKee bend- ir ennfremur á kaldhæðnina í því að auknar fjárveitingar til NHS séu notaðar sem kosningaáróður í þeim pólitíska tilgangi að knýja fram út- göngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu af mönnum sem hafa áður á opinberum vettvangi kallað eftir einkavæðingu NHS og jafnvel ver- ið lobbýistar fyrir tóbaksiðnaðinn. Einn stærsti atvinnuveitandinn Það hefur mikið verið tekist á um NHS og það er ljóst að mikið hefur mætt á þessu kerfi og menn hafa alla tíð tekist á um hvernig sé best að fjármagna það. Fyrir þá sem að sjá heilbrigðisþjónustu sem sjálf- sögð mannréttindi hefur það alla tíð verið hörð barátta að vernda almennt aðgengi að hágæða heil- brigðiskerfi sem enn sér ekki fyrir endann á. Það er augljóst að þetta er ekki fullkomið kerfi sem að hef- ur sætt réttmætri gagnrýni á mörg- um sviðum, eins og er með flesta innviði mannlegs samfélags. Það verður ekki hjá því komist að tak- ast á um það. Alls starfa um um 1,5 milljónir manns fyrir NHS í dag sem að gerir það að fimmta stærsta atvinnuveitenda í heimi, ásamt MacDonalds, Walmart, bandaríska varnarmálaráðuneytinu sem held- ur utan um herinn og svo kínverska herinn. Þetta er vissulega ótrúleg staðreynd, sérstaklega þegar litið er til þess að tveir af stærstu at- vinnuveitendum heims eru herir ríkja sem eru margfalt stærri en Bretland. NHS sýnir okkur ber- sýnilega fram á það hvað sam- takamátturinn og möguleikinn til skipulagningar innviða samfélags geta verið miklir þegar horfið er frá hernaði og skammsýni til heil- brigðis og uppbyggingar. Breska heil- brigðiskerfið var stofnað eftir áföllin í heimsstyrj- öldunum, þegar einhugur ríkti um að allir ættu jafnan rétt til læknisþjónustu. Síðan hefur fyrirkomulagið verið pólitískt átakamál. Því var svo komið árið 1997 að NHS varð stærsta mál kosninganna. Verka- mannaflokkurinn komst aftur til valda með Tony Blair við stjórnvölinn, en í aðdraganda kosninganna hafði hann varað kjósendur við því að þeir hefðu „24 stundir til þess að bjarga NHS“. Hér fagnar hann sigrinum ásamt eigin- konu sinni, Cherie Blair. VERSLUN MÖRKINNI 6 - 108 REYKJAVÍK - ESJADEKOR.IS s:699-7911 - opið: 17.des: 11-18 - 18.des: 12-16 - 19.-22.des: 11-19 - 23.des: 11-20 - 24.des: 10-12 JÓLAGJAFAHUGMYNDIR FYRIR BARNAHERBERGIÐ OG HEIMILIÐ! 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 1. Flögg (2 gerðir) kr.3.990.- 2. Vegghilla+límmiðar kr.6.990.- 3-4. SNURK rúmföt (margar gerðir til) kr.9.690.- 5. Play&Go dótateppi/hirsla kr.6.990.- 6. Fjalla vegghilla+límmiðar kr.6.990.- 7. Dótapoki kr.9.990.- 8. Segulmagnað dýraveggfóður kr. 16.990.- 9. Grjónapúði kr.12.990.- 10. Keilur kr.7.990.- 11. Indíánatjald kr.29.990.- 12. Gjafaaskja - 6 ilmkerti kr.13.990.- 13. Dima speglar (3 saman) kr.8.990.- 14. Brons klukka kr.11.490.- 15. Brons/marmara klukka kr.9.990.- 16. Ilmkerti kr.4.990/5.990.- (margar gerðir) 17. Veggteppi kr.7.990.- 18. Blómapottar 2 í pk. kr.9.490.- 19. Blómapottur kr.3.990.- 20. Blaðagrind (líka til brons) kr.6.990.- 21. Bakki kr.4.490.- 22. Paris plakat kr.9.990.- 23. Myndarammi kr.2.990.- 24. Veggvasar kr.6.490/7.490.- 25. Vegghilla kr. 9.990.-

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.