Fréttatíminn - 17.12.2016, Qupperneq 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
anna hafði hann varað kjósend-
ur við því að þeir hefðu „24 stundir
til þess að bjarga NHS“.
NHS á síðustu árum
Á árunum eftir fjármálahrunið og
eftir að breski Íhaldsflokkurinn
myndaði samsteypustjórn með
Frjálslyndum demókrötum árið
2010, hrikti aftur hressilega í stoð-
um NHS. Þá lagði Andrew Lansley,
þáverandi heilbrigðismálaráð-
herra, fram umdeilt frumvarp sem
mætti mjög mikilli andstöðu frá
starfsfólki NHS. Bæði læknar og yf-
irstjórnendur héldu því fram að það
myndi gera út af við NHS. Áætlun
Lansley var að útrýma hundruðum
NHS sjóða sem veittu grunnþjón-
ustu innan heilbrigðiskerfisins og í
staðinn innleiða það sem einungis
er hægt að lýsa sem nokkurs kon-
ar einkavæddri læknisþjónustu.
Heilsugæslustöðvar í eign lækn-
anna og með því átti að færa aukið
vald til almennings um val á þjón-
ustu. Frumvarpið var gríðarlega
umdeilt og fór í gegnum miklar um-
bætur eftir að David Cameron setti
það í bið, en varð svo að endingu að
lögum árið 2013.
Brexit og innantóm loforð
Heilbrigðiskerfið í Bretlandi hefur
alla tíð verið gríðarlega pólitískt
deiluefni og var enn og aftur not-
að sem pólitísk beita, nú síðast í
kosningabaráttunni um veru Bret-
lands í Evrópusambandinu í sumar.
Brexit fylkingin, sem barðist fyrir
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandsins, með Boris Johnsons,
fyrrum borgarstjóra London, og
Nigel Farage, formann hinna þjóð-
ernissinnuðu UKIP, fremsta í fylk-
ingu, gaf það út að þær 350 milljón-
ir punda sem færu á hverri viku til
Evrópusambandsins myndu þess
í stað renna beint til NHS. Þessi
loforð hafa reynst vera orðin tóm
eins og svo mörg önnur loforð og
staðhæfingar sem runnu undan
rifjum Brexit kosningabaráttunn-
ar. Martin McKee, prófessor í lýð-
heilsufræði við London School of
Hygiene and Tropical Medicine,
skrifaði í Guardian í apríl á þessu
ári, í aðdraganda kosninganna, að
NHS sé betur sett innan Evrópu-
sambandsins en utan þess. Hann
bendir á í grein sinni að hættan sem
steðji helst að NHS sé ekki Evrópu-
sambandið heldur standi hin raun-
verulega ógn mun nær, það sé fyrst
og fremst innanríkismál og að al-
mannahagur sé mikill af þeim lög-
um og reglugerðum sem koma frá
Evrópusambandinu. McKee bend-
ir ennfremur á kaldhæðnina í því
að auknar fjárveitingar til NHS séu
notaðar sem kosningaáróður í þeim
pólitíska tilgangi að knýja fram út-
göngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu af mönnum sem hafa áður
á opinberum vettvangi kallað eftir
einkavæðingu NHS og jafnvel ver-
ið lobbýistar fyrir tóbaksiðnaðinn.
Einn stærsti atvinnuveitandinn
Það hefur mikið verið tekist á um
NHS og það er ljóst að mikið hefur
mætt á þessu kerfi og menn hafa
alla tíð tekist á um hvernig sé best
að fjármagna það. Fyrir þá sem að
sjá heilbrigðisþjónustu sem sjálf-
sögð mannréttindi hefur það alla
tíð verið hörð barátta að vernda
almennt aðgengi að hágæða heil-
brigðiskerfi sem enn sér ekki fyrir
endann á. Það er augljóst að þetta
er ekki fullkomið kerfi sem að hef-
ur sætt réttmætri gagnrýni á mörg-
um sviðum, eins og er með flesta
innviði mannlegs samfélags. Það
verður ekki hjá því komist að tak-
ast á um það. Alls starfa um um
1,5 milljónir manns fyrir NHS í dag
sem að gerir það að fimmta stærsta
atvinnuveitenda í heimi, ásamt
MacDonalds, Walmart, bandaríska
varnarmálaráðuneytinu sem held-
ur utan um herinn og svo kínverska
herinn. Þetta er vissulega ótrúleg
staðreynd, sérstaklega þegar litið
er til þess að tveir af stærstu at-
vinnuveitendum heims eru herir
ríkja sem eru margfalt stærri en
Bretland. NHS sýnir okkur ber-
sýnilega fram á það hvað sam-
takamátturinn og möguleikinn til
skipulagningar innviða samfélags
geta verið miklir þegar horfið er
frá hernaði og skammsýni til heil-
brigðis og uppbyggingar.
Breska heil-
brigðiskerfið
var stofnað
eftir áföllin
í heimsstyrj-
öldunum, þegar
einhugur ríkti
um að allir ættu
jafnan rétt til
læknisþjónustu.
Síðan hefur
fyrirkomulagið
verið pólitískt
átakamál.
Því var svo komið árið 1997 að NHS
varð stærsta mál kosninganna. Verka-
mannaflokkurinn komst aftur til valda
með Tony Blair við stjórnvölinn, en í
aðdraganda kosninganna hafði hann
varað kjósendur við því að þeir hefðu
„24 stundir til þess að bjarga NHS“. Hér
fagnar hann sigrinum ásamt eigin-
konu sinni, Cherie Blair.
VERSLUN MÖRKINNI 6 - 108 REYKJAVÍK - ESJADEKOR.IS
s:699-7911 - opið: 17.des: 11-18 - 18.des: 12-16 - 19.-22.des: 11-19 - 23.des: 11-20 - 24.des: 10-12
JÓLAGJAFAHUGMYNDIR
FYRIR BARNAHERBERGIÐ
OG HEIMILIÐ!
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10 11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24 25
1. Flögg (2 gerðir) kr.3.990.- 2. Vegghilla+límmiðar kr.6.990.- 3-4. SNURK rúmföt (margar gerðir til) kr.9.690.- 5. Play&Go dótateppi/hirsla kr.6.990.- 6. Fjalla vegghilla+límmiðar kr.6.990.-
7. Dótapoki kr.9.990.- 8. Segulmagnað dýraveggfóður kr. 16.990.- 9. Grjónapúði kr.12.990.- 10. Keilur kr.7.990.- 11. Indíánatjald kr.29.990.- 12. Gjafaaskja - 6 ilmkerti kr.13.990.-
13. Dima speglar (3 saman) kr.8.990.- 14. Brons klukka kr.11.490.- 15. Brons/marmara klukka kr.9.990.- 16. Ilmkerti kr.4.990/5.990.- (margar gerðir) 17. Veggteppi kr.7.990.- 18. Blómapottar 2 í pk. kr.9.490.-
19. Blómapottur kr.3.990.- 20. Blaðagrind (líka til brons) kr.6.990.- 21. Bakki kr.4.490.- 22. Paris plakat kr.9.990.- 23. Myndarammi kr.2.990.- 24. Veggvasar kr.6.490/7.490.- 25. Vegghilla kr. 9.990.-