Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 17.12.2016, Síða 14

Fréttatíminn - 17.12.2016, Síða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016 Sara Kamban Reginsdóttir og Gunnar Már Sigfússon eiga 8 ára tvíbura, þau Leu Maríu Kamban og Regin Kamban. Þau eiga einnig tvö eldri börn en Sara segir hér frá því sem hún upplifir öðruvísi og skemmtilegt við tvíburaupp- eldið og sambandið þeirra á milli.  „Þegar þau voru lítil snérist þetta um að greina aðalatriðin frá auka- atriðunum og þú bjargar því barni sem er meira að fara sér að voða í hvert sinn,“ segir Sara og hlær þegar hún rifjar upp smábarnaárin með tvíburunum. „Þegar ég fór í sturtu þá varð ég bara að skilja þau eft- ir ein á efri hæðinni. Þau voru far- in að skríða út um allt. Ég passaði eins og ég gat upp á að þau gætu ekki farið sér að voða, en ég bara varð að skilja þau eftir. Og við lifðum það af! En þetta er kaos og snýst samt um að halda rosalegri rútínu. Þau borðuðu alltaf klukkan 18. Fóru í bað klukkan 18.30 þar sem þeim var gef- ið meira að borða, graut eða skyr fyrir nóttina, og svo að sofa klukk- an 19. Þannig fengu eldri systkinin smá pláss og við foreldrarnir líka.“ Þolinmóðir vinir Sara ákvað að kenna tvíburunum strax þolinmæði. Það voru mótmæli frá þeim báðum til að byrja með en svo lærðu þau að það þýddi ekki. Þau urðu að læra að deila og læra að bíða. „Ég varð að vera skynsöm og hugsa um mig og vera ströng á marga hluti til að halda andlegri vellíðan.  Ég vildi að þau myndu taka tillit hvort til annars. Því var ætíð bara ein skeið og ein stút- kanna notuð við matarborðið. Ég gat ekki matað tvö í einu svo þau þurftu að sýna þolinmæði og tillit á matmálstímunum. Þau hafa alltaf verið rosalega góðir vinir og sofið vel saman allar nætur frá 8 mánaða aldri án þess að trufla hvort ann- að. Þau hafa alltaf verið svo hraust, ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta væri ef þau hefðu verið mik- ið veik. Ég lét þau alltaf fá bol eða slæðu frá mér sem ég hafði verið í þann daginn til að róa þau og svo þau fyndu lyktina af mér. Í dag eiga þau í koju en klessa sér samt ávallt saman í annarri kojunni, límd upp við hvort annað.“ Engar smellur takk Sara segist ekki muna mikið eftir tímabilinu frá því tvíburarnir voru 9-18 mánaða. Það var mikil vinna og tvíburarnir komnir á skrið. Hún var með barnapíu sem kom einu sinni í viku og segir hana hafa létt mjög undir. „Ég vill meina að hún hafi bjargað lífi mínu. Þá gat ég farið út úr húsi eða klárað þvottinn.“ Sara reyndi að einfalda alla hluti til að halda í gleðina og liður í því var að útrýma öllum smábarnafötum með smellum. Hún hlær þegar hún segir að það hafi einfaldlega tek- ið of langan tíma og of mikla ein- beitingu, sem ekki var til staðar, að smella öllum þessum smellum. „Ég fjarlægði alla galla og samfell- ur með flóknum smellum. Það bara gerði mann vitlausan, maður var bara að smella allan daginn enda er maður alltaf að skipta um bleyjur og föt. Ég skipti yfir í rennilása. Svo á nóttunni setti ég þau bæði í nátt- kjóla til að sleppa við þetta vesen að klæða úr þegar þurfti að skipta um. Þetta er mjög mikilvægt ráð fyrir tvíburaforeldra.“ Hugsa í fleirtölu Tvíburarnir Regin og Lea eru mjög náin enn í dag. Þau eru saman í bekk og vilja vera saman í vinahóp- um og öðrum tómstundum. Sara segir það  líka  betra fyrir foreld- rana sem þurfi þá til dæmis ekki að hlusta tvisvar á blokkflaututónleika eða mæta á tvær jólaskemmtanir í skólanum. „Það sparar áreiti og tíma að hafa ekki tvöfalt af öllu og það er gaman að upplifa þau svona saman. Þau eru samt mjög ólíkir persónuleikar og með ólíkar þarf- ir. Lea þarf knús og umhyggju en Regin þarf ekkert slíkt, nema knús frá Leu!“ Tvíburarnir eru mjög náin og þau rífast ekki. „Þau eru mjög tillitsöm hvort við annað. Þau hugsa allt í fleirtölu, eru alltaf að passa upp á hvort annað. Það er alltaf til nóg af öllu hjá þeim fyrir hvort annað og eiga auðvelt með að gefa með sér. Ef þau taka sér nammi úr skál taka þau alltaf tvö, fyrir hitt líka. Sjálf kem ég úr stórum systkinahópi og ég man eftir einstaklingshyggjunni þar, að passa upp á sitt, að passa að hinir tækju ekki frá manni. En þau hugsa þetta alls ekki þannig, það er alltaf nóg til, sem er svo fallegt að sjá.“ Í sitt hvorum skónum Sara rifjar upp fjöruferð sem fjöl- skyldan fór í eitt sinn þar sem tvíburanándin birtist sýnilega í verki, eitt af mörgum skiptum. „Lea var í skóm sem henni þóttu óþægi- legir í fjörunni og var að kvarta yfir því. Það voru engir aðrir skór með í för svo ég spáði ekki meira í það. Þau eru þarna að leika sér en svo sé ég að Regin er að klæða sig úr einum sínum skó og lætur Leu fá. Þarna voru þau bæði í sitt hvorum skónum og þá varð allt betra, þau voru bæði í einum góðum skó og einum vondum. Svo hef ég séð þau fara í skólann í einu bláu og einu bleiku stígvéli og svona og það er bara nákvæmlega eins og það á að vera“. Sara Kamban Reginsdóttir segir að tvíburarnir Regin og Lea María séu einstaklega tillitsöm hvort við ann- að og hugsi allt í fleirtölu. Mynd | Rut Tvennt af öllu Að eiga tvíbura er bæði erfitt og skemmtilegt. Foreldrar tvíbura segja frá hvernig þeir takast á við uppeldið, veita ráð og lýsa þessu sérstaka sem þau sjá við tvíburana. Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ritstjorn@frettatiminn.is Kaos í rútínu „Þau eru mjög tillitsöm hvort við annað. Þau hugsa allt í fleirtölu, eru alltaf að passa upp á hvort annað,“ segir Sara. LAUGAVEGI | SMÁRALIND | KRINGLUNNI | WORLD CLASS LAUGUM | LEIFSSTÖÐ VIÐ HÖFUM OPNAÐ NÝJAN STAÐ Á LAUGAVEGI. KÍKTU VIÐ Í ÓMÓTSTÆÐILEGAN DJÚS, SAMLOKU OG SHAKE. ER LOKSINS MÆTTUR NIÐUR Í BÆ! Joe P.S. VIÐ GERUM FÁRÁNLEGA GOTT KAFFI LÍKA! Sjáumst á JOE & THE JUICE.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.