Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Gréta G. Guðjónsdóttir, ljósmyndari, kennari og fjallgönguleiðsögu-kona, f lutti til Ma-drídar í haust og hóf
mastersnám í ljósmyndum við IED,
sem er hönnunar- og listaskóli í
borginni. Þegar á hólminn var kom-
ið var námið húmbúkk og vitleysa.
Og hvað gera konur þá? Jú...sitja í
fýlu í 3 daga og kaupa sér svo miða
til Nepals til þess að labba upp á Ev-
erest í (base camp eða grunnbúðir)
í jólafríinu. FB færsla Grétu á mið-
vikudaginn hljóðar svona: Ég hef
ákveðið að sleppa jólunum þetta
árið. Engar smákökur, (er einmitt
þekkt fyrir myndarskap þar) ekk-
ert jólatré né jólaskraut, engin
jólahreingerning, engar kjólinnfyr-
irjólináhyggjur, nóasúkk eða jóla-
át. Ekki einu sinni malt og appelsín.
Sjálf mun ég sitja með nepalskri fjöl-
skyldu í Kathmandu 24. desember.
Pönkarinn og rapparinn
Gréta er ævintýrakona og hefur
komið meiru í verk en margur. Hún
er ljósmyndari, kennari og leið-
sögukona. Móðir tveggja barna,
rapparans GKR og Dúnu, fjarnema
í Fjölbraut við Ármúla, sem býr
með henni í Madríd. Í viðtali við
I-D magazine þakkar GKR móður
sinni músíkuppeldið, en hann segir:
„Mamma er ljósmyndari og einstæð
móðir. Hún var pönkari og kynnti
fyrir mér músík eins og Sex Pistols,
Nick Cave og David Bowie.“
Gréta sem hefur lifað mörg líf tók
enn einn viðsnúninginn á þessu
Sleppir jólunum
og gengur á Everest
Ljósmyndarinn, pönkarrinn, kennarinn,
einstæða móðirin og fjallaleiðsögukonan Gréta G.
Guðjónsdóttir ætlar að verja jólunum á Everest.
með betri græjur en þetta. Ég ákvað
samt að sitja á mér þangað til að ég
fór að skynja að fleiri í hópnum voru
orðnir óánægðir.“
Blómið og sveitaferðin
Aðal maðurinn í deildinni og titlað-
ur deildarstjóri var fyllibytta og vildi
helst kenna á barnum. Hann sendi
nemanda í gegnum Whasapp að það
væri hittingur á tilteknum bar og svo
gengu skilaboðin á línuna. Þar fékk
fólk stóru dómana og hann dreifði
hóli eða vandlætingu á nemendum
og verkum þeirra Ef hann mætti
svo í skólann þá var það aldrei fyrir
klukkan 11 á morgnana. Við fengum
verkefni hjá honum og áttum að taka
mynd af blómi. Stuttu síðar kom vin-
kona mín úr skólanum, sem er frá
Úkraínu, og segir við mig: „Gréta
hann setti blómið mitt á heimasíð-
una sína,“ og það var rétt, blóm-
ið hennar var komið á heimasíðu
deildarstjórans undir hans nafni
þar sem jafnframt eru margar fínar
ljósmyndir af frægu fólki sem Gréta
efast núna um að hann hafi tekið
sjálfur.
„Eitt skiptið vorum við í þessu
ljósmyndastúdíói skólans og hann
að bisa við að setja upp annað af
þessum tveim ljósum sem virk-
uðu. En þá snéri hann regnhlífinni
öfugt. Við stóðum bara og trúðum
ekki eigin augum, deildarstjórinn
og aðalkennarinn kunni ekki að
setja upp ljós og einn nemandinn
hljóp til og leiðbeindi honum. Næst
stakk hann upp á því að við færum í
sveitaferð að mynda fjalllendið sem
er í klukkustundar lestarferð frá Ma-
dríd. Þegar við stigum út úr lestinni
var förinni heitið upp í fjall en þar
rákumst við „fyrir tilviljun“ á bar
þar sem hópurinn settist niður. Ég
nennti þessu ekki og fór í hlaupaföt-
in og hljóp ein upp á fjallið og þar
var æðislegt útsýni. Ég myndaði og
kom sátt niður og þar sátu allir enn-
þá og ekkert fararsnið, enginn áhugi
einu sinni fyrir því að finna veitinga-
stað og borða. Á endanum stóðum
við upp, hann orðin ansi drukkinn
og mundi ekkert hvar lestarstöðin
var og við þekktum ekki til í bænum.
Þá hófst leitin að lestarstöðinni og
þegar hún var fundin þá var lestin
okkar farin.“
Ekkert mastersnám
Það var ekki eitt heldur allt, það
var ekkert sem gekk upp í þessum
skóla. Skyndilega var námið orðið
mánuði styttra en auglýst hafði ver-
ið og þegar Gréta fór að grennsl-
ast fyrir þá var skólinn ekki með
mastersnám og hún því ekki að ná
sér í mastersstigsgráðu þrátt fyrir að
hún hefði skráð sig í þess konar nám,
samkvæmt öllum upplýsingum frá
skólanum. „Óánægjan kvisaðist út
og ég skrifaði Lingó og kvartaði yfir
því við fyrirtækið að það hefði sent
mig í mastersnám sem var alls ekk-
ert mastersnám né nokkuð sem kall-
ast gæti nám,“ segir Gréta. Frá Lingó
fékk hún engin haldbær svör og
Gréta, Gaukur, Dúna og Bjarni, faðir Dúnu, jólin 2014 á Vesturgötu. Bjarni kemur
að venju alltaf seinni hluta kvöldsins og dvelur með krökkunum og Grétu.
Gréta starfar sem
fjallaleiðsögumaður,
bæði á Grænlandi og
Íslandi. Myndin er
tekin á Lónsöræfum í
vinnuferð.
ári. Eftir kennslu í tuttugu ár ákvað
húna að taka sér námsleyfi og bæta
við sig mastersgráðu í ljósmyndun.
Fyrst fór hún á náðir Lingó-Mála-
miðlun sem hefur meðal annars
milligöngu um erlenda skóla. Það
var einmitt hjá Lingó sem Grétu var
kynntur hönnunar- og listaskólinn
IED í Madrid. Þarna væri skóli við
hennar hæfi með mastersnám í
ljósmyndun. Hún fékk inngöngu í
skólann og borgaði skólagjöldin, 1,5
milljón krónur. Íbúðin í vesturbæn-
um fór í árs útleigu og mæðgurnar,
Gréta og Dúna flugu til Madríd.
Úr slömminu í fína hverfið
„Madríd er svo stór og fjölbreytt
borg. Fyrstu vikurnar bjuggum
við í slömmhverfinu í íbúð á Jesu y
maria calle ásamt 8 kakkalökkum.
Frá bakgarðinum hljómaði sinfón-
ía af hrotum, prumpi, sjónvarpi,
svita og matargerð. Dópsalar og ind-
verskir veitingastaðir og matargjafir
til heimilislausra á hverju kvöldi á
næsta horni.“ Mæðgurnar eru samt
ánægðar að vera fluttar úr slömm-
inu í fína hverfið. „Í nýju íbúðinni
okkar eigum við friðsamar nætur
og okkur líður eins og „On the topp
of the world“ en erum reyndar bara
á 6 hæð, en enginn er okkur ofar
né við hlið. Nú getum við opnað
glugga og fengið ferskt loft, en ekki
loft sem er búið að velkjast um í lok-
uðu húsasundi 32 nágranna með til-
heyrandi lykt frá hverjum og einum
og prumpað í friði án þess að ein-
hverjir kallar í annarri íbúð fari að
skellihlæja. Og svo er hérna Retiro
Park, garðurinn þar sem ég hleyp og
undirbý mig fyrir Everest.“
Skólinn var svikamylla
Gréta byrjaði í skólanum ásamt
öðrum nemendum víðsvegar að
úr heiminum. Námið var auglýst
sem mastersnám fyrir atvinnuljós-
myndara en fljótlega kom í ljós að
aðeins hluti af nemendunum voru
raunverulega ljósmyndarar. En það
sem var öllu verra var að kennararn-
ir voru tæplega ljósmyndarar held-
ur eða bara alls ekki ljósmyndarar
yfirhöfuð. „Þetta var allt stórfurðu-
legt. Kennararnir höfðu ekki hug-
mynd um hvað þeir ættu að gera
við okkur í skólastofunni, það var
ekkert plan. Þá var farið með okkur
niður í það sem kallaðist ljósmynda-
stúdíó skólans þar sem tveir lamp-
ar af fimm virkuðu. Ég afskrifaði
þessa aðstöðu fljótlega. „Ég er sjálf
kennari og menntaskóli á Íslandi er
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VILNÍUS Í LITHÁEN
Vilníus er eins og margar aðrar borgir í
Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir
því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins
1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco.
Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í
gamla bænum og gamli byggingastíllinn
blasir hvarvetna við.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.