Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Allar nánari
upplýsingar á
www.buseti.is
og á skrifstofu
Búseta í síma
520 5788
Síðumúli 10 • 108 Reykjavík • sími 520 5788 • buseti@buseti.is • www.buseti.is
GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR
Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
3ja og 4ra herbergja íbúðir í Þverholti og Einholti
• Íbúðir afhendast fullbúnar með gólfefnum
• Vandaðar innréttingar frá GKS
• Spanhelluborð og blástursofn
• Stæði í bílgeymslu fylgir öllum íbúðum
• Rafmagnstengi við öll sérbílastæði
• Aðstaða til hjólaviðgerða í kjallara
• Aðgengi að sal og „laundromat“ Smiðjuholts
• Glæsilegur innri garður með dvalarsvæðum
• Fyrirmyndar aðgengi og hljóðvist
ÁVINNINGUR MEÐ BÚSETAÍBÚÐ
• Örugg búseta meðan þér hentar
• Þú festir minni fjármuni í fasteign
• Þú færð vaxtabætur líkt og eigandi
• Lægri kaup- og sölukostnaður
• Búseti sér um allt ytra viðhald á húsnæði
• Hátt þjónustustig
VERÐDÆMI: EINHOLT 12
Rúmgóð 3ja herb. endaíbúð - 108,3 m2
Sveigjanlegur búseturéttur með eða án aukinnar eignarmyndunar.
Mánaðargjald frá kr. 224.785,-
Mánaðargreiðsla innifelur fjármagnskostnað, fasteignagjöld, bruna- og
húseigendatryggingar, hita íbúðar, hússjóð, þjónustugjald og framlag
í viðhaldssjóði.
B-
08
-1
21
6
Aðeins
8 íbúðir
eftir
„Um leið og allir
vissu að ég væri
stelpa og héti
Gabríela, þá leið
mér svo ótrú-
lega vel. Bara
miklu betur,“
sagði Gabríela
Daðadóttir
í viðtali við
Fréttatímann
í vor. Stolt af að
vera trans
Hin níu ára gamla transstelpa, Avery Jackson,
prýðir forsíðu National Geographic sem kemur út
í janúar. Gabríela María Daðadóttir hefur líka stigið
opinberlega fram sem trans og fagnar umfjölluninni.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Það besta við að vera stelpa er að
nú þarf ég ekki að þykjast vera strák-
ur,” segir Avery á forsíðunni. Móðir
hennar, Debi, deildi forsíðunni stolt
á Twitter í vikunni og skrifaði: „Ég
skelf svo mikið að ég get varla skrif-
að. Takk fyrir að fjalla um Avery!
#transisbeautiful“ Tölublað National
Geographic mun fjalla um „kynja-
byltinguna“.
Hin ellefu ára gamla Gabríela Mar-
ía Daðadóttir fagnar blaðinu en hún
var í forsíðuviðtali við Fréttatím-
ann í maí þar sem hún hvatti aðra
transkrakka til að vera óhrædd við
að vera þau sjálf. „Mér líst voðalega
vel á þetta. Mér finnst flott að hún
komi út sem transgender og er bara
stolt af því. Þetta er ekkert mál og
hún sýnir það alveg að hún er bara
venjuleg eins og allir hinir.“
Gabríela María skilur vel hvað
Avery meinar með orðunum á for-
síðunni. „Já, það er gott að þurfa
ekki að þykjast. Þú þarft ekkert að
vera hrædd við að sýna að þú sért
transgender, eða hafa áhyggjur af
því að einhver ætli að vera leiðin-
legur við þig út af því. Maður er bara
venjulegur þó maður sé transgend-
er.“
Sjálf hefur Gabríela María alltaf
viljað vera stelpa þó hún hafi fæðst
strákur og verið skírð Gabríel. Í
viðtalinu í vor veitti hún öðrum
transkrökkum góð ráð; „Mig langar
að segja þeim að vera hugrökk. Ekki
vera hrædd. Verið eins og þið eruð.
Gerið þetta bara. Það er heimsku-
leg tilhugsun að ef maður fæðist ein-
hvern veginn þá eigi maður bara að
vera þannig. Mér
finnst hræðilegt
þegar foreldrar
leyfa ekki börnun-
um sínum að ráða
hvort þau eru stelpa eða strákur.
Það er örugglega það heimskuleg-
asta sem til er í heiminum. Ég hef
alltaf fengið að vera stelpa. Þannig
líður mér best.“
Að sögn Siggu Birnu Valsdóttur,
fjölskylduráðgjafa hjá Samtök-
unum ‘78, sem hefur unnið náið
með transkrökkum og fjölskyldum
þeirra, hefur svona umfjöllun mikla
þýðingu. „Það hjálpar auðvitað að
börn stígi svona fram, því þá sér
fólk að þetta er ekki óyfirstíganlegt.
Þetta er eitthvað sem hægt er að tak-
ast á við. Öll umræða er góð. Mér
finnst þessi orð Avery á forsíðunni
alveg frábær. Við verðum vör við að
krökkum finnist þau þurfa að þykj-
ast vera af því kyni sem þeim var út-
hlutað við fæðingu.“
Hún segir vitundarvakningu
hafa orðið að undanförnu á Íslandi.
„Meðvitundin í samfélaginu hefur
aukist gífurlega síðastliðin fimm ár.
Það eru þónokkur börn á grunn-
skólaaldri á Íslandi sem hafa þegar
skipt um nafn. Fólk bregst fyrr við
nú en áður. Foreldrar heyra bet-
ur það sem börnin segja og hafna
ekki hugmyndum þeirra. Þeir leita
sér aðstoðar og ráðgjafar fyrr.
Oft felst hræðsla foreldranna í að
börnin þeirra verði fyrir aðkasti og
fordómum í samfélaginu. Okkar
upplifun er hinsvegar sú að þeim
börnum vegnar vel sem fá samþykki
frá fjölskyldu og umhverfi. Unga
kynslóðin á yfirleitt auðveldara með
að aðlagast en eldri kynslóðin. Ég
heyri að krökkum finnist ekkert mál
að einhver í bekknum þeirri skipti
um nafn eða sé ekki lengur það kyn
sem því var úthlutað í fæðingu. Við
megum samt ekki gleyma því að
ungt transfólk er ennþá í mestri
hættu á vanlíðan, sjálfsskaðandi
hegðun og á því að svifta sig lífi.
Þess vegna hjálpar það gegn for-
dómum að vekja athygli á aðstæð-
um transkrakka.“
Hin níu ára gamla trans-
stelpa, Avery Jackson prýðir forsíðu National Geographic
sem kemur út í janúar.