Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 56
56 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Nokkrar bestu kvendrifnu þáttaraðirnar
Samtök kvenna í sjónvarpi
og kvikmyndum á Íslandi,
eða Wift konur, tóku saman
þáttaraðir sem voru í sérlegu
uppáhaldi á árinu. Um er að
ræða bestu kvendrifnu sjón-
varpþáttaraðirnar árið 2016,
að þeirra mati. Hér eru nokkrar
af þeim þáttum sem Wift konur
töldu upp:
Skam
Flestar eru sammála um að Skam
(í. Skömm) væri ein af bestu þátta-
röðum ársins. Um norskt unglinga-
drama er að ræða sem hefur farið
sigurför um heiminn og sýnir RÚV
nú fyrstu þáttaröðina en þriðja
þáttaröðin hefur þegar verið sýnd
í Noregi og hana má nálgast á vef-
síðu norska ríkissjónvarpsins.
The Crown
Þáttaröðin fjallar um fyrstu ár
Elísabetar Englandsdrottningar en
þáttaröðin er ein sú dýrasta sem
framleidd hefur verið í Bretlandi
og er vel farið í hin ýmsu smáat-
riði.
Réttur 3
Flóknar og klókar kvenpersónur.
Góð framvinda með feminískum
undirtóni þar sem normalíserning
kynferðisofbeldis á öllum stigum
er opinberuð. Flott leikaraval.
Happy Valley
Æsispennandi glæpaþáttaröð, full
af breyskum og skemmtilegum
kvenpersónum. Þættirnir gerast
í bæ á Englandi sem hefur farið
hvað verst út úr eiturlyfjafaraldr-
inum þar í landi.
Stranger Things
Þær geta verið áhugaverðar
kvenpersónurnar í Sci Fi mynd-
um og eru Stranger Things engin
undantekning. Wiona Rider á góða
endurkomu sem móðirin Joyce
og hin unga Millie Bobby Brown
vakti heimsathygli fyrir leik
sinni sem hin dularfulla Eleven.
Persónunarnar sterkar en í senn
brothættar. | bg
◀ Réttur 3.
▲ Skam.
◀ Stranger
Things.
▼ Happy Valley
◀ The Crown.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Það var ekki mikið af pökkum
hér áður fyrr. Ég var átta ára þegar
ég fékk fyrstu jólagjöfina. Það
var kertapakki, lítill með snún-
um kertum í öllum regnbogans
litum. Það var ekkert rafmagn
þá og þegar fór að birta af degi á
jóladag þá fór ég með kertin fram
í bæjardyr til að skoða herleg-
heitin, ég gleymi þessu aldrei,“
segir Hólmfríður, íbúi á Hrafnistu
í Reykjavík.
Þegar blaðamaður kom á Hrafn-
istu var jólakvennaboð í matstof-
unni. Það verið að ræða gamlar
og nýjar jólahefðir, hvernig jóla-
maturinn hefur þróast og hvað
gjafamenningin hefur breyst. Á
borðum var jólabland, hangikjöt
og smákökur. „Nú er mikil hefð
fyrir rjúpum en ég vil bara ekki
láta drepa rjúpur. Eftir að ég las
kvæðið Óhræsið eftir Jónas Hall-
grímsson um rjúpuna þá get ég
ekki hugsað mér að borða hana,“
segir Þorgerður. „Grænar baunir
frá Ora og vel brúnaðar kartöflur
með miklum sykri og heimagert
rauðkál verða alltaf að vera á
jólunum,“ segir Þórunn Benný.
„Bíldudals grænu baunirnar stóðu
samt alltaf fyrir sínu,“ segir Þor-
gerður og beinir orðum sínum til
Þórunnar.
Pása var tekin á umræðum um
mat og lesið var kvæði frá Stefáni
frá Hvítadal um jólin:
„Ó, blessuð jólin,
er barn ég var.
Ó, mörg er gleðin
að minnast þar.
Í gullnum ljóma,
hver gjöf mér skín.
En kærust vor mér
kertin mín.“
„Þetta lýsir nú boðskap jól-
anna,“ segir Hólmfríður, „og hvað
er hægt að gleðjast yfir litlu,“ segir
Þórunn. Konurnar á Hrafnistu
taka eftir því að meira stress fylgi
jólunum nú en áður fyrr. „Ég var
nú að taka eftir því í útvarpinu,
því ég hlusta bara á útvarp, að það
var verið að tala um undirbún-
ing jólanna og allt í kringum þau
og það var hvergi minnst á það
að það hafi barn fæðst á jólun-
um,“ segir Hólmfríður. „Það eru
flestir búnir að gleyma því. Allir
að kafna í þessum gjöfum og ves-
eni,“ segir Þórunn um jólastressið
sem einkennir landann um þessar
mundir.
„Alltaf klukkan sex á að-
fangadag átti maður að vera kom-
inn í jólafötin. Þá var lesinn hús-
lestur af húsbónda heimilisins,“
segir Þórunn. Húslestur var stund
á heimili fólks og lesin guðsorð
þegar heimilisfólk hafði ekki tök
á að fara til kirkju til messu vegna
veðurs. „Þessi stund var heilög og
tengdi fjölskylduna saman. Núna
eru allir að flýta sér, ég bara skil
þetta ekki,“ segir Hólmfríður. „Á
mínu heimili var alltaf lesið guð-
spjallið áður en pakkarnir voru
teknir upp, við vorum ekkert að
flýta okkur,“ segir Þorgerður og
brosir.
Jólaboðinu lauk með laginu
Bráðum koma blessuð jólin til þess
að koma öllum í jólaskapið.
Borðar ekki rjúpur
vegna Jónasar
Hallgrímssonar
Konurnar á Hrafnistu ræða jólahefðir,
Bíldudals grænar baunir og jólastressið.
Konurnar á Hrafnistu ræða gamlar og nýjar jólahefðir, hvernig jóla-
maturinn hefur þróast og hvað gjafamenningin hefur breyst. Mynd | Hari