Fréttatíminn - 17.12.2016, Page 68
Alla laugardaga
Fastur liður á jólum
Jólatónleikar KK og Ellenar eru orðnir fastur liður í jólahaldi
margra Íslendinga. Líkt og áður verða þau á faraldsfæti og
syngja jólalög í bland við sín eigin lög. Hægt er að nálgast
miða á tónleika þeirra um helgina á midi.is
Arnaldur efstur í tveimur flokkum
Erlendir ferðamenn spenntir fyrir bókum hans
hér á landi.
Fáðu þér ilmolíu-
lampa í stofuna
Ilmolíulampar eru það allra
heitasta í dag og eru þeir sérstak-
lega sniðugir til að fá góðan ilm
inn á heimilið, með frekar heil-
næmum hætti. Margir þeirra eru
einnig rakatæki og með róandi
ljósi, svo um er að ræða fallegt
stofustáss með margþættan til-
gang. Best er að nota ilmkjarna-
olíur í lampana, en margar þeirra
eru taldar hafa lækningamátt.
Lavender-olía er til dæmis
mjög vinsæl en hún er góð við
bruna, þurrkblettum og ung-
lingabólum. Þá er hún róandi og
talin virka gegn kvíða, þunglyndi,
hormónaójafnvægi, höfuðverkj-
um og meltingatruflunum. Svo er
piparmintuolía talin geta komið
í veg fyrir flensu eða dregið úr
flensueinkennum og háum blóð-
þrýstingi.
Það er ekki amalegt að fylla
heimilið af unaðslegri angan og
bæta heilsuna í leiðinni.
Ilmolíulampa og ilmkjarnaolíur
er til að mynda hægt að fá á síð-
unni ilmoliulampar.is. Þá fást ilm-
kjarnaolíur í mörgum heilsubúðum
og apótekum.
„Þetta kom okkur og auðvitað
Arnaldi skemmtilega á óvart,“
segir Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins.
Nýr metsölulisti Eymundsson
var kynntur í vikunni en þar vakti
athygli að Arnaldur Indriðason
situr í efsta sætinu í tveimur flokk-
um. Annars vegar á aðallistanum
og yfir íslenskar bækur en hins
vegar á lista yfir landkynningar-
bækur. Íslenskir aðdáendur Arn-
aldar kaupa nú nýjustu bókina,
Petsamo, í gríð og erg en erlendir
ferðamenn virðast afar spenntir
fyrir bókinni Reykjavíkurnætur,
sem flokkuð er með handbókum
ýmiss konar.
„Ég held satt að segja að þetta
hafi ekki sést áður á metsölulista
svona skömmu fyrir jól, að sami
höfundur sé í fyrsta sæti bæði
aðallistans og svo í fyrsta sæti yfir
landkynningarbækur. Það er ljóst
að það eru ekki bara Íslendingar
sem ætla að lesa Arnald yfir jólin,
erlendir ferðamenn virðast hafa
áttað sig á þessu og kaupa núna
Reykjavíkurnætur á ensku í
bílförmum,“ segir Egill Örn.
Arnaldur Indriðason má vel við una fyrir
þessi jólin því hann á bæði íslenska sem
erlenda aðdáendur hér á landi. Mynd | Getty
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar
tegundir lyfja. Mikið og
fjölbreytt úrval af heilsulyfjum,
bað- og ilmvörum, gjafavörum
auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt verð.
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Verðmat
fasteigna
verdmat.com