Fréttatíminn - 17.12.2016, Síða 76
Fjarðarkaup eru stolt af því
gríðarlega mikla úrvali af vegan
hráefni sem Fræið hefur að
geyma. Í Fræinu geta þau sem
kjósa að sneiða hjá dýraafurð-
um keypt í jólamatinn allt það
sem hugurinn girnist. Mikið úr-
val af hvers kyns vegankjöti s.s.
oumph-i sem er orðið gríðarlega
vinsælt í veganrétti enda hægt að
matbúa það á ótal vegu. Hægt er
að fá mjög góðan veganís sem er
dásamlegur eftirréttur með sósu
sem gerð er úr einhverju því góm-
sæta vegansúkkulaði sem fæst í
Fræinu. Síðast en ekki síst er vert
að nefna vegan hnetusteik Helgu
Mogensen sem er einungis fáan-
leg fyrir jólin. Steikin selst alltaf
upp svo það er um að gera að
tryggja sér steikina hennar Helgu
sem allra fyrst.
Fræið fyrir
grænmetisætuna
8 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016MATARTÍMINN
Jólamatur fyrir alla
í Fjarðarkaupum
Villibráð, oumph og allt þar á milli.
Unnið í samstarfi við Fjarðarkaup
Jólamatur landans hefur breyst töluvert á undan-förnum árum og fjöl-breytnin eykst frá ári
til árs. Svo virðist sem margar
hefðir séu að láta undan og fólk
er ófeimið við að prófa nýja hluti
sem á árum áður þótti algerlega
óhugsandi á mörgum heimilum.
Gísli Sigurbergsson, verslun-
arstjóri í Fjarðarkaupum, hef-
ur verið viðriðinn verslunina frá
stofnun hennar eða í 43 ár og
hefur því fylgst með jólainnkaup-
um Íslendinga í yfir fjóra áratugi.
„Hamborgarhryggurinn er ekki
eins vinsæll og hann var, það er
ekki mjög langt síðan að hann var
að borðum örugglega 90% lands-
manna um jólin. Það eru kannski
6-7 ár síðan þetta fór að breyt-
ast mikið,“ segir Gísli og bendir á
að kílóið af hamborgarhryggnum
sé á tæpar 1700 krónur, ódýrari
en kíló af roðflettri ýsu. „Þannig
að jólamaturinn er orðinn frekar
ódýr, má segja, matur sem þú
færð þér þó bara einu sinni á
ári.“ Svínakjötið er einnig vinsælt
segir Gísli, ekki síst svínabógur-
inn sem er fastur liður á mörgum
heimilum. „Og fyrst við erum að
tala um verð má nefna að þar ertu
komin með 850 krónur kílóið!“
Gísli segir marga vera farna að
borða kalkún á jólunum og jafnvel
afbrigði af honum eins og smjör-
sprautað kalkúnaskip sem er
mjög mikið selt í Fjarðarkaupum
fyrir jólin.
Veglegt kjötborð
Eins og áður sagði hefur fjöl-
breytnin aukist mikið undanfarin
ár og fólk. Fjölskylda Gísla versl-
unarstjóra ber þess til að mynda
vitni; áður fyrr var ávallt borðað
hangikjöt á jóladag en síðustu ár
hefur verið skipt yfir í nautalund!
„Þetta er auðvitað bara einu sinni
á ári en hér áður fyrr var alltaf
borðuð skata á Þorláksmessu
og hangikjötsbiti um kvöldið. Á
aðfangadagskvöld var svo reykti
svínahryggurinn og svo afgangar
í hádeginu og svo hangikjöt á
jóladagskvöld. Þetta er ansi mikið
reykt og saltað,“ segir Gísli.
Í Fjarðarkaupum er mikið úrval
af villibráð í ár, endur, andabring-
ur, gæsir, pekingönd, lynghæna,
erlend rjúpa, fasani, krjónhjart-
arsteik, skosk villiönd, krón-
hjartarfilet.
Kjötborðum hefur fækkað mik-
ið síðasta áratuginn en kjötborðið
í Fjarðarkaupum hefur aldrei verið
veglegra. „Þar geturðu komið og
handvalið það sem þú vilt. Eins
og með hamborgarhrygginn, þú
getur bara valið þann hluta af
hryggnum sem þú vilt. Mörgum
finnst það gott. Við erum með
kjötiðnaðarfólk og afgreiðslufólk
með margra áratuga reynslu.“
Einnig er hægt að sérpanta fyllt
læri og hryggi. „Við getum gert
raunar hvað sem fólki dettur í
hug,“ segir Gísli.
Fólk leitar meira í ferskleik-
ann
Þar sem Gísli hefur verið viðriðinn
verslunina í allan þennan tíma
er ekki úr vegi að spyrja hann í
lokin hver sé stærsta breytingin
sem hann merkir í jólaverslun-
inni gegnum árin. „Það er kannski
þetta að fólk er að baka minna en
það gerði áður, við erum með mik-
ið af tilbúnu deigi sem fólk kaupir
og það er bara mjög fín vara.
Svo er kannski mesta breytingin
dósirnir, við vorum með niður-
suðudósir hérna í bílförmum;
niðursoðna sveppir, niðursoðna
ávexti og niðursoðinn aspas til
dæmis. Í dag er þetta ananasinn,
grænu baunirnar og rauðkálið en
það er meira að segja að minnka
mikið líka. Fólk leitar meira í
ferskleikann.“
Fræið er ævintýri líkast - þar fæst allt fyrir
hátíðarmat grænmetisætunnar. Mynd | Rut
Hnetusteikin hennar Helgu
Mogensen hefur slegið í gegn
og færri fá en vilja. Mynd | Rut
Oumph, ís og allskonar góðgæti. Mynd | Rut