Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 2
Skipulagsmál Systrasamlagið er
á förum frá Seltjarnarneslaug.
Ástæðan er að Seltjarnarnesbær
vill aðeins gera skammtímaleigu-
samning á húsnæði þeirra vegna
þess að 2007 var gert ráð fyrir
bílakjallara á lóðinni. Samt hefur
bærinn engin áform um að ráðast
í framkvæmdina. Björn í World
Class segir kjallarann ónauðsyn-
legan og vill Systrasamlagið
áfram.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Íbúar á Seltjarnarnesi eru reiðir
yfir því að bæjaryfirvöld geti ekki
tryggt framtíð Systrasamlagsins við
íþróttamannvirki bæjarfélagsins. Í
spjallhópi á Facebook segja íbúar
að Systrasamlagið sé límið í hverf
inu sem glæði það lífi og bjóði upp á
hollan og góðan mat. Þeir saka bæj
aryfirvöld um að fæla burt frábæra
en viðkvæma starfsemi.
„Nú er ekki rekstrargrundvöll
ur fyrir okkur hér lengur. Húseig
andinn hefur aðeins fengið árs leig
usamninga í senn, undanfarin þrjú
ár. Vegna óvissunnar hefur hann
ekki viljað kosta viðhald á húsinu.
Við systurnar höfum því ákveðið
að færa okkur um set og opnum á
Óðinsgötu 1 um miðjan janúar. Við
hefðum viljað vera áfram því hér eig
um við djúpar rætur,“ segir Guðrún.
Þær systur eru fjórða kynslóð sem
heldur til á þessum stað á Nesinu en
forfeður þeirra voru útvegsbændur
á jörðinni.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar hafa
tekið málið upp í bæjarstjórn og vilja
tryggja Systrasamfélaginu áfram
haldandi samning. Meirihluti bæj
arstjórnar hefur ekki viljað það.
„Leigusamningur húseigandans
rann út 2014 og vegna samþykktar
frá 2007 um að gera bílakjallara á
þessum stað, höfum við ekki viljað
leigja út nema til árs í senn. Við lof
uðum samt leigjanda að gefa góð
an fyrirvara á framkvæmdirnar.
Að öðru leyti er þetta mál Systra
samlagsins og húseigandans,“ segir
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi.
Ásgerður segir þó ekkert ákveðið
um hvort eða hvenær gera eigi bíla
kjallarann.
Hvort telur þú mikilvægara að hafa
bílakjallara eða verslun á staðnum?
„Ég tel öryggi gangandi vegfar
enda og bílaumferðar vega þyngst,“
segir Ásgerður.
Björn Leifsson, sem rekur World
Class við sundlaugina, segir bílakjall
arann óþarfan. „Fyrir níu árum var
á teikniborðinu að gera bílakjallara
sem hefði bætt við um 30 stæðum.
Það er alltof dýr framkvæmd fyrir
svona lítinn ávinning, auk þess sem
við gátum bætt við stæðum fyrir aft
an húsið. Ég hefði viljað hafa Systra
samlagið þarna áfram, þær skapa líf
í hverfinu.
„Algjörlega ótrúlegt þegar loksins
einstaklingar eru tilbúnir að hefja
rekstur á Nesinu, byggja upp öflugt
vörumerki í anda stefnu bæjarins;
fjölskylduvænt og grænt – að þá er
bærinn ekki tilbúinn að framlengja
samning,“ skrifar Guðrún Tinna
Ólafsdóttir, íbúi á Seltjarnarnesi, á
íbúasíðu Seltirninga á Facebook um
ákvörðun bæjaryfirvalda.
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri
Seltjarnarness,
segir öryggi gangandi
vegfarenda og bíla-
umferðar mikilvæg-
ast.
Þökkum góð samskipti á árinu sem er að líða
og hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Árbæjarsafn · Landnámssýningin · Sjóminjasafnið í Reykjavík · Ljósmyndasafn Reykjavíkur · Viðey
Menntamál Þrátt fyrir loforð í
sumar um að leysa úr máli vefsíð-
unnar tala.is bannar Árnastofnun
enn forritaranum David Blurton
að nota gagnagrunn Beygingar-
lýsingar íslensks nútímamáls.
David varði 100 klukkustundum í
að smíða síðuna en markmið henn
ar er að hjálpa útlendingum að læra
íslensku. David furðar sig á við
brögðum stofnunarinnar og telur
allt tal um að vilja leysa málið vera
gert til að afvegaleiða málið og láta
það gleymast.
David segir í samtali við Fréttatí
mann að skriffinnskan hafi gert það
að verkum að hann hafi að nokkru
leyti misst áhugann á því að vinna
við gerð síðunnar. Guðrún Nor
dal, forstöðumaður Árnastofnun
ar, segir að það standi til að smíða
forritaskil og muni allir geta feng
ið aðgang að gögnunum. Málið hafi
tafist þar sem ritstjóri BÍN er í rann
sóknarleyfi til 1. september á næsta
ári. Auk þess skorti stofnunina fé
til að fara í verkefnið. „Því miður
höfum ekki getað gert þetta eins og
hratt og við hefðum viljað,“ segir
Guðrún. | hjf
Segir Árnastofnun afvegaleiða
David Blurton furðar sig á Árnastofnun. Mynd | Hari
Vodafone hyggst kaupa ljósvaka-
og fjarskiptaþjónustu 365 miðla
fyrir rúmlega milljarði minna en
upphaflega var stefnt að, sam-
kvæmt tilkynningu frá fyrirtæk-
inu.
Þannig segir í tilkynningu nú
að kaupverðið sé 2,2 milljarðar
króna sem greitt verða annars
vegar með rúmlega 32 milljón
hlutum í Fjarskiptum og hinsvegar fimm hundruð milljónum í
reiðufé. Þá mun Vodafone taka yfir skuldir upp á 4,6 milljarða, og
verður heildarkaupverðið því 6,8 milljarðar. Upphaflega var þó
stefnt að því að kaupa fyrirtækið fyrir um 8 milljarða.
Við höfum miklar
áhyggjur af þessu,
segir Páll Matthí-
asson, forstjóri LSH.
Kaupa 365 miðla fyrir
rúmlega milljarði minna
Alþingi „Þótt sumir borði of mikið
af sykri og öðru óhollu, spili rass-
inn úr buxunum í fjárhættuspil-
um eða staupi sig meira en góðu
hófi gegnir, er kannski óþarfi að
banna hófsemdarmönnum í þess-
um efnum alla gleði eða okra á
þeim til að draga úr henni,“ segir
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Þingmenn felldu tillögu um að
færa gosdrykki í efra þrep virðis
aukaskatts á fjárlögum, alls greiddu
45 þingmenn atkvæði á móti en 9
þingmenn VG með. Katrín Jak obs
dótt ir, formaður Vinstri grænna,
segir að hver Íslendingur drekki
að meðaltali 130 lítra af gosi á ári
og sykur skatt ur sé besta leiðin til
þess að draga úr syk ur neyslu. „Við
erum í raun og veru að horfa á tíma
sprengju í heil brigðis kerfi nu þegar
Viðskipti
Þingmenn vilja ekki sykurskatt þótt
Íslendingar eigi Norðurlandamet í
neyslu gosdrykkja.
Tímasprengja í
heilbrigðiskerfinu
kem ur að vax andi sykurneyslu,“
sagði hún þegar hún mælti fyrir til
lögunni. | þká
Systrasamlagið þarf
að víkja fyrir bílastæði
Systurnar Jó-
hanna og Guðrún
í Systrasamlaginu
eru á förum frá
Seltjarnarnesi því
leigusamningur-
inn við bæinn
fæst aðeins til
skamms tíma.
Mynd | Hari
Heilbrigðismál „Þetta dugar
ekki til,“ segir Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans. Hann
segist fagna því að Alþingi hafi
sýnt viðleitni til að koma til móts
við spítalann en það þurfi meira
til. Landspítalinn sé vel rekin
stofnun sem hafi hingað til farið
mjög vel með það fé sem henni
hafi verið trúað fyrir.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Fjárlaganefnd leggur til að
Landspítalinn fái tvo milljarða til
viðbótar við þá rúma 59 milljarða
sem gert hafði verið ráð fyrir í fjár
lagafrumvarpi fjármálaráðherra.
Verja á rúmum milljarði til að
styrkja rekstrargrunninn og einum
milljarði í viðhald og endurbætur
vegna myglu, að auki er verið að
gefa eftir eldri halla upp á tæpan
milljarð.
„Fjárlagafrumvarpið var með
tíu prósenta niðurskurðarkröfu á
Landspítalann sem er fordæma
laust,“ segir Páll. „Enn vantar 1900
milljónir til að koma í veg fyrir
niðurskurð í þjónustu spítalans og
uppsagnir starfsfólks.“
Hann bendir á að hvert stöðugildi
kosti að meðaltali um 10 milljónir
og því sjái hver maður að þetta yrðu
fjöldauppsagnir. „Við höfum miklar
áhyggjur af þessu. Ef litið er til vilja
þjóðarinnar og þess sem alþingis
menn sögðu fyrir kosningar en slík
ur niðurskurður óraunhæfur,“ segir
hann.
Hann bendir á að enn sé tæpum
2,2 milljörðum óráðstafað á lið sem
heiti sjúkrahús óskipt, á fjárlögum.
Það sé því hægt að koma til móts
við brýnustu þörf spítalans án þess
að finna nýja tekjustofna. Þá sé gert
ráð fyrir 600 milljónum til viðbót
ar til spítalans ef hann auki fram
leiðslu sína á næsta ári. Það sé þó
ólíklegt að það gerist, ekki síst í ljósi
fjölda aldraðra sem geti ekki útskrif
ast í annað úrræði.
Það þarf meira til, segir forstjóri LSH