Fréttatíminn - 23.12.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016
Jólin Eva Lilja Rúnarsdóttir er
í annað skipti sjálfboðaliði hjá
Hjálpræðishernum á aðfanga-
dagskvöld. Hún segist í raun taka
þátt af sjálfselskum ástæðum þó
aðrir njóti góðs af. Henni finnst
þetta einfaldlega svo æðislegt og
gefandi.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
„Þegar ég þjónaði í fyrsta skipti
upplifði ég mest gefandi jólahá-
tíð sem ég hafði upplifað í langan
tíma,“ segir Eva Lilja Rúnarsdóttir
sem verður sjálfboðaliði hjá Hjálp-
ræðishernum á aðfangadagskvöld.
Hún tók fyrst þátt í hittiðfyrra en
hafði lengið hugsað að sig langaði
að prófa, en þar sem hún var með
lítil börn var það erfitt.
„Nú skiptum við foreldrarnir
jólunum á milli okkar, enda búin
að vera fráskilin í nokkur ár, og
þá er annar hver aðfangadagur
laus hjá mér. Í hittiðfyrra ákvað ég
að stökkva á þetta og hafði sam-
band. Ég vissi í raun ekkert hvað
ég var að fara út í. Ég mætti bara
og það myndaðist mjög sérstök en
skemmtileg stemning. Það var mikil
gleði og húmor í hópnum.“
Allir að gera gagn
Eva er því að taka þátt í annað skipti
í ár og hlakkar mikið til. „Við erum
þarna öll með það sama í huga,
að gera eitthvert gagn. Ég hef sjálf
aldrei verið jólabarn og skil ekki
þetta stress. Ég hef alltaf litið á jólin
sem hálfgerð kaupmannajól, en ef
hugmyndafræðin er að hafa jólin
sem kærleikshátíð, þá skiptir máli
að gefa af sér. Sælla er að gefa en
þiggja. Hugmyndafræðin verður að
raunveruleika þegar maður virki-
lega tekur þátt, eins og hjá Hjálp-
ræðishernum.“
Eva fór á fund með sjálboðaliðun-
um í byrjun mánaðarins þar sem
einn sjálfboðaliði, sem er búinn að
taka þátt í mörg ár, sagðist ekki vera
að gera þetta af auðmýkt heldur af
sjálfselskum ástæðum. Hann sagð-
ist vera að gera þetta fyrir sig, því
honum þætti þetta svo æðislegt.
„Ég er alveg 100 prósent sammála
því. Ég er að þessu því þetta gefur
mér svo mikið og mér finnst þetta
æðislegt. Þetta eru jólin fyrir mér.
Að koma þarna, gefa af mér og vera
til staðar fyrir þann sem hefur ekk-
ert að gefa, líður illa eða er mjög
blankur. Það er allskonar fólk sem
kemur. Það eru öryrkjar, aldraðir,
útigangsfólk, útlendingar og flótta-
fólk.“
Sumir hafa engan að tala við
Hópurinn sem sér um að þjóna er
líka samsettur af allskonar fólki,
sem vill taka þátt af hinum ýmsu
ástæðum. „Síðast var þarna sjó-
maður sem var ekki með börnin
hjá sér um jólin, einstæðingur sem
átti enga fjölskyldu og vildi frekar
gera þetta en að fara í matarboð
hjá fjarskyldum frænda og ungur
strákur sem vildi ekki vera heima
hjá sér því það var drykkjuástand
á heimilinu. Þetta er allskonar fólk
sem kemur saman í þeim tilgangi að
gleðja aðra.“
Eva segir fólk fá að velja hvaða
starfi það vill sinna. Sumir vilja
vera í eldhúsinu og uppvaskinu en
aðrir þjóna til borðs. „Svo snýst
þetta líka um að setjast hjá fólki og
spjalla, því það eru margir þarna
sem hafa engan til að tala við,“ út-
skýrir hún. Svo ganga allir saman í
kringum jólatré, syngja jólasöngva
og fá gjafir.
„Ég veit að ég mun gera þetta
aftur og aftur og ég ætla að plata
börnin mín til að taka þátt á næsta
ári, þau eru orðin það stór. Þetta
er rosalega gefandi og þarna sýn-
ir maður kærleikann í verki. Jólin
eiga að snúast um það að sýna ná-
ungakærleika og ég vil frekar gera
þetta en að sitja á rassinum heima
og belgja mig út af alltof miklum
mat og fá svo samviskubit yfir því.“
Fer sæl að sofa
Gert er ráð fyrir að um 200 manns
borði hjá Hjálpræðishernum á að-
fangadagskvöld en Eva segir þá tölu
hæglega geta hækkað. „Í hittiðfyrra
þá kom töluvert af útlendingum inn
af götunni sem höfðu ekki fundið
opna veitingastaði í borginni og
voru orðnir sársvangir.“
Hún segir matinn sem boðið
er upp á vera æðislegan. „Það er
kokkur frá Hereford sem hefur tek-
ið þátt í mörg ár. Núna erum við
með lambakjöt fyrir þá sem borða
ekki svínakjöt þannig fólk sem að-
hyllist mismunandi trúarbrögð get-
ur borðað saman. Það er svo margt
ótrúlega fallegt við þetta. Ég veit að
ég á að eftir að fara sæl að sofa á að-
fangadagskvöld.“
Eva segist hafa upplifað mest gefandi jólahátíð í langan tíma þegar hún þjónaði hjá Hernum í fyrsta skipti. Mynd | Hari
Þetta eru jólin fyrir mér
„Svo snýst þetta líka
um að setjast hjá fólki
og spjalla, því það eru
margir þarna sem hafa
engan til að tala við.“
3.900 KR.
1 par
6.900 KR.
3.450 parið
2 pör
9.900 KR.
3.300 parið
3 pör
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Aðeins 9.900 kr.
Notalegar og
hlýjar jólagjafir
Komdu í Dorma
TVENNUTILBOÐ
Dúnsæng og dúnkoddi
Sæng 140x200 cm. 85% smáfiður
og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 9.900 kr
Koddi 50x70 cm. 70% smáfiður
og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 4.900 kr.
Fullt verð samtals: 14.800 kr.
ÓTRÚLEGT
jólatilboð
Dúnsæng + dúnkoddi
Inniskór sem laga sig að fætinum
og dreifa þyngd jafnt um allt
fótasvæðið. Ný og
endurbætt útgáfa!
HINIR MARGRÓMUÐU
Memory Foam heilsuinniskór
Jólin Hjálpræðisherinn býst við
metfjölda í jólaveislu hersins á
aðfangadag. Ástæðan er stærra
húsnæði og aukinn fjölgun hæl-
isleitenda hér á landi. Lambakjöt
verður á boðstólum og jólaball
sem hefst fyrr um daginn.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Sigurður Ingimarsson, foringi í
Hjálpræðishernum, býst við rúm-
lega 200 manns í mat í Ráðhúsi
Reykjavíkur þar sem herinn heldur
árlega jólveislu sína.
„Við höfum eiginlega alltaf boðið
upp á lambakjöt,“ svarar Sigurður
Ingimarsson, foringi í Hjálpræðis-
hernum, spurður hvað verður á
boðstólum í jólaveislu Hjálpræðis-
hersins á aðfangadagskvöld.
Sigurður segist búast við yfir 200
manns í mat um kvöldið, „og þar af
verður líklega nokkuð af hælisleit-
endum,“ segir hann til útskýringar
um fjölgunina. Hann býst því við að
fleiri mæti í jólamatinn á aðfanga-
dagskvöld en nokkurntímann áður
en Hjálpræðisherinn hefur fundið
mikið fyrir stórauknum straumi
hælisleitenda hingað til lands á
þessu ári.
„Jólaskemmtunin hefst svo um
klukkan fjögur um daginn, en við
vorum yfirleitt með hana á eftir. Við
breyttum því fyrir börnin,“ segir
Sigurður og því ljóst að fjörið hefst
snemma í ráðhúsinu.
Það er Hereford-kokkurinn Andr-
és Kolbeinsson sem mun sjá um
matseldina, auk þess sem fjöldi
sjálfboðaliða tryggir að allt gangi
snurðulaust fyrir sig.
Sigurður segir að fleiri hafi mætt
í mætt í jólaveisluna síðan þeir fóru
að halda hana í ráðhúsinu, það
skýrist þó aðallega af þeirri ein-
földu ástæðu að það er meira pláss.
„En svo hefur hælisleitendum
fjölgað nokkuð, og það telur,“ segir
Sigurður.
Sigurður
Ingimarsson
er foringi í
Hjálpræðis-
hernum.
Mynd | Rut
Býst við metfjölda í jólaveislu Hjálpræðishersins
Skemmtiatriði verða yfir matn-
um, bæði tónlist og upplestur, þá
er hægt að skrá sig í veisluna á vef
Hjálpræðishersins, herinn.is.